06.07.1918
Efri deild: 59. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í B-deild Alþingistíðinda. (813)
109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld
Fjármálaráðherra (S. E):
Jeg held fast við það, að ekki sje hægt að byggja á neinni vissu um söluna til Svíþjóðar, fyr en samningarnir eru fullgerðir. Jeg fyrir mitt leyti þekki ekki alla skilmálana. Ef svo er, að fulltrúarnir sjeu að bíða eftir betra verði, þá getur svo farið að tilboðið bregðist.
Yfirleitt getur það oft verið álitamál hve fljótt eigi að „acceptera“ slík tilboð. En hitt, hvort rjett sje að skipa þeim strax að ganga að tilboðinu, það efast jeg um að sje rjett. Það væri óneitanlega heppilegra að leggja það í hendur fulltrúanna sjálfra. Ef til vill eru horfur á, að betra verð fáist.
Annars verð jeg að telja það fremur óheppilegt, að skýrt hefir verið frá tilboði þessu hjer, en um það tjáir ekki að fást framar; það er komið sem komið er.