11.07.1918
Neðri deild: 68. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (839)
109. mál, kaup landsstjórnarinnar á síld
Einar Jónsson:
Jeg á ekki hægt með að tala í þessu máli, því að jeg er síldarútgerðinni ókunnugur. En þegar það kom til mála hjá háttv. þm. S. Þ. (P. J.), að þessi ráðstöfun mundi verða til góðs fyrir landbúnaðinn, þá get jeg að sumu leyti fallist á að svo kunni að geta orðið, en hins vegar hygg jeg þó, að öll ákvæði vanti í frv., sem tryggja það. Það er og orðið ljóst, að síldarútvegsmennirnir fóru fram á þessa ráðstöfun, af því að þeir þóttust í vanda og hættu staddir, og það furðar mig ekki. En nú hefi jeg heyrt, að ekki rauni verða tjón af síldarsölunni vegna samninga við Svía, sem kaupa muni síldina góðu verði. En þá kemur það upp úr kafinu, að síldarútvegsmennirnir kæra sig ekkert um, að frv. nái fram að ganga, og þykir mjer því framkoma þeirra nokkuð blendin. En nú vil jeg ekki láta landssjóð nota sjer þetta, heldur vil jeg láta framleiðendurna njóta hagnaðarins, ef nokkur verður.
Jeg er samþykkur háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) um, að það er athugavert að láta landssjóðinn bera alla áhættuna, en fá þó ekki nema af hagnaðinum, því að jeg álít, að sá, sem beri áhættuna, eigi og að fá gróðann. Svo er það eitt, sem jeg vildi spyrja háttv. frsm. (P. J.) að og aðra, af því að jeg skil það ekki vel, þar eð jeg hefi haft lítinn tíma til þess að athuga það. En það er þetta, að í 5. gr. geta allir lesið, að hver, sem óskar að nota þennan rjett, segi til þess fyrir 31. júlí 1918. En mjer er spurn: Hvernig fer þá fyrir þeim, sem ekki nota rjettinn og geta ekki komið síldinni á markaðinn? Getur hann þá sloppið með sína síld, eða á hann að vera útilokaður frá því, að geta selt sína síld til landssjóðsins? Það sýnist í 1. gr., að landssjóður hafi heimild til þess að kaupa alla síld, en við það getur 5. gr. komið í mótsögn. Á þessu vildi jeg beiðast skýringar.
Jeg segi ekkert um það, hvort jeg greiði atkvæði með þessu frv. En jeg segi aftur á móti, að landbúnaðurinn gæti haft verulegt gagn af þessu, eins og grasbresturinn er fyrirsjáanlegur, og síldin góður fóðurbætir; en tryggingin fyrir því, að þetta verði landbúnaðinum til góðs, er engin.
Háttv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) sagði, að ef 50.000 tunnur yrðu seldar til Svíþjóðar fyrir sæmilega hátt verð, þá væri hægt að selja mest af því, sem eftir væri, fyrir viðráðanlegt verð hjer innanlands, en því miður vitum vjer ekki með vissu, eða höfum neina tryggingu fyrir því, að svona muni fara; því að ef þetta væri víst, þá gæti hver bóndi greitt atkvæði með frv.