12.06.1918
Efri deild: 42. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (84)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Magnús Kristjánsson:
Jeg tek til máls af því, að svo stendur á, að jeg var ekki viðstaddur þegar nefndin hleypti síðustu brtt. af stokkunum. Jeg er henni algerlega mótfallinn og get því skoðast sem framsögumaður minni hluta nefndarinnar.
Jeg er sömu skoðunar og báttv. 1. þm. Rang. (E. P.) um það, að hann sje ekki búinn að átta sig á málinu. Það leyndi sjer ekki. Það er ófært að hafa nokkurt takmark fyrir því, hve há lán megi veita. Síðasta brtt. nefndarinnar er því ómynd, svo að jeg segi ekki meira. Það liggur í hlutarins eðli, að það er barnaskapur að setja nokkur takmörk fyrir hjálp, þegar um það er að ræða að bjarga lífi manna. Jeg veit ekki, til hvers stjórnin getur treyst sjer, ef hún þorir ekki að hafa heimild til að verja því fje, sem þarf — hvort sem það er mikið eða lítið — til að bjarga landsmönnum úr neyð. Jeg verð að andmæla síðustu till. nefndarinnar, en fylgi hinum fyrri fast fram. Ef þær verða feldar, sje jeg mjer ekki annað fært en að greiða atkvæði á móti frv. stjórnarinnar. Væri kann ske best farið, að allar brtt. nefndarinnar og sjálft frv. fjelli, eins og það leggur sig, því að þá standa enn í gildi lögin frá síðasta þingi. Þau lög eru góð. Þau gefa heimild til þess að hjálpa, ef neyð ber að höndum, og það er nóg.