12.06.1918
Efri deild: 42. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (85)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Fjármálaráðherra (S. JE.):
Jeg yrði að telja það mikla óvarkárni af þinginu að varpa allri ábyrgðinni á dýrtíðarmálunum yfir á stjórnina. Jeg veit ekki til, að slík takmarkalaus lánaheimild hafi verið gefin í nokkru landi, sem sú, er felst í till. nefndarinnar. Ef hungursneyð ber að höndum, mun stjórnin auðvitað gera alt til að afstýra henni. En þessi lög eru ekki miðuð við slíkt ástand. Þau eru gerð til að ljetta undir með fátæku fólki í baráttunni við dýrtíðarörðugleikana. Þá hjálp er sjálfsagt að takmarka, og veita hana sem styrk, eins og aðrar þjóðir hafa gert. En verði farið inn á hina brautina, lánaleiðina, veit enginn, hvorki þing nje stjórn, hve mikið fje er í húfi. Út í slíka óvissu má síst fara, þegar svo er háttað fjárhag landsins, sem nú er.
Vonast jeg því til, að allar brtt. nefndarinnar verði feldar, en frv. samþykt, eins og það er komið frá Nd.