12.07.1918
Efri deild: 64. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

118. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs

Sigurjón Friðjónsson:

Það er ekki margt, sem segja þarf um þessar brtt. okkar á þgskj 494.

Brtt. 1. a. stendur í sambandi við c. undir sama tölulið, og er nokkurs konar afleiðing þar af.

Stafliður b. er til þess að taka það skýrt fram, að styrktarfje og eftirlaun, sem dýrtíðaruppbót veitist af, sje eingöngu það, sem um getur í 18. gr. fjárlaganna. Mun það líka hafa verið tilætlun fjárveitinganefndar, og að eins af ógáti að hún tók það ekki fram.

C-liðurinn gengur út á það, að prestar fái ekki dýrtíðaruppbót af þeim hluta launa sinna, sem þeir taka á afgjaldi af kirkjujörðum.

Við lítum svo á, að afgjald jarða hafi hækkað í verði við dýrtíðina, og því beri ekki að veita neina uppbót af því.

B-liður brtt. stendur svo í sambandi við þetta og leiðir það af sjálfu sjer, að það ákvæði, sem þar er á minst, falli niður.

Viðvíkjandi niðurfærslunni á dýrtíðaruppbót af aukatekjum lækna skal jeg geta þess, að yfir höfuð er jeg mótfallinn allri dýrtíðaruppbót af þeim.

Eins og kunnugt er, hagar svo til í ýmsum hjeruðum landsins, að aukatekjur eru litlar, og er það helst í þeim hjeruðum, þar sem erfiðast er að fá lækna, og því mest þörfin á að bæta kjörin. En samkvæmt þessu frv. fá læknar þar minni uppbót, en hinir meiri, sem síður hafa hennar þörf. Auk þess mundi dýrtíðaruppbót þessi freista til þess, að telja aukatekjurnar í rífara lagi.

Jeg hefði því heldur kosið, að föstu launin hefðu verið færð upp, en til samkomulags höfum við þó gengið inn á þennan miðlunarveg.

En nú hefir háttv. fjárveitinganefnd tekið þessa till. okkar upp, og væri því eðlilegast að við tækjum hana aftur.

Þá er 3. brtt., og er hún gerð til sparnaðar, með tilliti til þess, að víst er að sumum mun þykja hjer alllangt gengið í því, að auka útgjöld landsins. En við lækkun þessa, sem farið er fram á í brtt., sparast fullar 20.000 kr., og þegar þess er gætt, að sú lækkun kemur jafnt niður á allar stjettir, þótt hún komi misjafnt niður á einstaklingana, þá ætti hún ekki að þurfa að vekja neina óánægju.