15.07.1918
Neðri deild: 71. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í B-deild Alþingistíðinda. (902)

118. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs

Jón Jónsson:

Af því að hjer hefir verið sagt, að þetta frv. væri betra en Nd. frv. þá vildi jeg mæla nokkur orð. Jeg get ekki fallist á, að svo sje. Jeg hefi dálítið athugað, hvernig fjeð, sem veitt er, skiftist niður eftir þessu frv., og virðist þessi breyting Ed. ekki vera til batnaðar, heldur kemur fjeð miklu siður að nokkru verulegu gagni. Vjer vitum, að þetta frv. er komið fram fyrir þá sök, að nokkrir menn í háttv. Ed. vildu láta alla presta njóta þessarar sömu dýrtíðaruppbótar En þetta er svo óveruleg launabót, að hún skiftir litlu sem engu máli fyrir prestana. Hvað munar prest, sem situr að búi sínu í sveit, þótt hann fái frá 50—300 kr ? Þar að auki verða þessir menn svo misjafnlega úti, að það þýðir ekki að neita því, að þar er blábert ranglæti í frammi haft í frv. Þetta sjest t. d., þegar maður ber saman prest, sem enga ómegð hefir, og annan, sem hefir þungt heimili. T. d. hefi jeg rekið mig á það, að presturinn í Eydölum, sem hefir 9 ómaga, fær 30 kr. minna en eftir gömlu lögunum, ef þetta gengur fram. Aftur á móti þekki jeg prest, sem býr á Hofteigi, í grend við mig. Hann er einhleypur maður og fær þó á 4. hundrað kr. hærri dýrtíðaruppbót eftir þessu frv. en áður. Sjá allir, að þetta er ekki sanngjarnt Ætlun okkar í Nd. var, að láta launabótina ná til þeirra, er helst þyrftu, svo að þá munaði það einhverju, en ekki hitt, að láta þessa launabót vera hjegómakák eitt, sem auk þess kemur ranglega niður, þar sem nokkuð kveður að. Við ætluðum þeim hana aðallega, sem búa á mölinni og lifa eingöngu á launum sínum, eins og t. d. kennurum við landsskólana hjer í Reykjavík. En svo þegar litið er á, hver hagur þeirra er eftir þessu frv., þá fá þeir hjer um bil allir lægri launabætur en eftir frv. Nd. T. d. í Mentaskólanum fær að eins einn maður, Pálmi Pálsson, 5 kr. hærra en eftir okkar frv., en allir hinir lægra, og 2 þeirra, Sigurður Thoroddsen og Jón Ófeigsson, yfir 300 kr. lægra hvor. Sama máli er að gegna um Háskólann. Einn fær nokkuð hærri viðbót (Lárus H. Bjarnason), en allir hinir lægra, svo að skiftir hundruðum króna.

Enn má nefna kennaraskólann. Skólastjóri fær eftir frv. þessu 250 kr. minna en eftir till. okkar, og dr. Ólafur Daníelsson yfir 300 kr. minna.

Jeg skil ekki í því, að þetta sje neitt rjettlæti, því að jeg tel það rjettlátt, að þeir hljóti styrk, er ekkert hafa við að styðjast annað en launin úr landssjóði, og ómögulega má missa úr embættum. Hinir þurfa þess miklu síður, er lifa í sveit og hafa framleiðslu, hvort sem það eru prestar eða aðrir. Hvað prestana snertir, þá vil jeg benda á, að eftir frv. Nd. voru ætlaðar 8.000 kr. til útbýtingar meðal þeirra presta landsins, sem einkum þyrftu uppbótar. Og ímynda jeg mjer, að nokkrir prestar hefðu þar fengið hærri uppbót, eftir þeim mælikvarða, en þessum sem hjer er markur. T. d. hefðu prestarnir hjer í Reykjavík fengið 500 kr. En eftir þessu frv. fær t. d. síra Bjarni Jónsson 150 kr. viðbót frá því, sem áður var, og lifir hann ekki lengi á því. Eins getur verið með fleiri presta út um land. En úr því að svo er komið, að þetta á nú að ná til allra, dregur það sig saman og verður talsverð upphæð, eins og líka hv. Ed. hefir bent á. Hún gerir ráð fyrir 50—60 þús. kr. hækkun. En jeg leyfi mjer mjög að efast um, að hún geti sagt um það með nokkurri vissu, en það hlýtur að vera allmikil upphæð.

En gallinn er sá, að þessi upphæð kemur ekki rjett niður, nje að neinu verulegu gagni. Þeir einu, sem fá sómasamlega uppbót, eru læknarnir.

Háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) segir, að það þurfi að bæta kjör þeirra, er við erfiðust kjör hafa búið. Það er satt, en gallinn er sá, að þetta frv. bætir mjög lítið úr. Sjerstaklega finst mjer það dálítið óviðkunnanlegt, að þessi háttv. þm. (S. St.) mælir með frv., því að áður hefir hann látið sjer þau orð um munn fara, að ekki væri vel við eigandi að gera mikið að fjárveitingum á þessu þingi.