16.07.1918
Efri deild: 67. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (921)
118. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs
Forseti:
Viðvíkjandi orðum þeim, sem háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) beindi til mín, um setninguna: „Dýrtíðaruppbót veitist eigi á 6.000 kr. ... 6.000 kr.“ í 1. gr., þá hefi jeg athugað það vandlega, að það er alveg rjett, að þessi málsgrein átti að falla niður, úr því að stafliður b í 2. gr. var samþyktur eins og hann er, og því hefði á þingmáli átt að telja þessa málsgrein sjálffallna. Málsgreinin er, eins og nú er komið frv., gersamlega þýðingarlaus og meiningarlaus. Jeg tel því rjett, og mun leggja svo fyrir, að þessi málsgrein verði feld niður, þegar skrifstofan lætur prenta frv. sem lög í þingtíðindunum.