20.04.1918
Neðri deild: 6. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (926)

10. mál, sala Ólafsvallatorfunnar

Flm. (Sigurður Sigurðsson):

Jeg ætla mjer nú ekki að innleiða þessa till., á þgskj. 10, með langri framsögu.

Aðalástæðan fyrir því, að við þingmenn Árnessýslu flytjum þessa till., er brjef Ágústs dannebrogsmanns Helgasonar í Birtingaholti, sem prentað er með till. sem fylgiskjal. Og í þessu brjefi eru færðar ástæður fyrir því, hvers vegna ekki megi selja umrædda jörð með tilheyrandi hjáleigum.

Jörð þessa, Ólafsvelli, telur Ágúst heyra undir þær jarðir, er 2. gr. í lögum um sölu kirkjujarða frá 16. nóv. 1907 gerir ráð fyrir að ekki megi selja. Með brjefinu, sem ella liggur frammi á lestrarsalnum, fylgja tveir útdrættir úr sýslufundargerðum Árnessýslu, er sýna, að sýslunefndin í Árnessýslu hafi áður litið eins á málið. Árið 1916 úrskurðar nefndin með atkvæðagreiðslu, 13:1 atkv., að jörðin heyri undir þær jarðir, er ræðir um í 2. lið 2. gr. áðurnefndra laga.

Jörðin Ólafsvellir er sem sje talin hentugt skólasetur. Fyrir nokkrum árum var stofnun lýðskóla austanfjalls mjög ofarlega á dagskrá. Og þessu máli er enn haldið vakandi þar eystra. í sambandi við þessa skólastofnun var stungið upp á Ólafsvöllum sem skólasetri. Og það verður ekki annað sagt en að jörðin sje hentug til þess, allra hluta vegna. Sjerstaklega má minna á það, að henni er vel í sveit komið og hún liggur nálægt veginum upp Skeiðin. Og þetta hefir ekki breyst frá því 1916. Það, sem þá mælti með jörðinni sem skólasetri, er enn í fullu gildi.

Þess vegna kemur það undarlega fyrir, að sýsluhefndin skuli nú vera horfin frá þessu og vilja leyfa sölu á jörðinni. Það var leyft á nýafstöðnum fundi með 8:5 atkv., og 2 greiddu ekki atkvæði. Ýmsir eru hálfhræddir um, að hjer hafi staðið á bak við einhverjir annarlegir kraftar — eða andar — er valdi þessum undarlegu fyrirbrigðum.

Sá, sem sækir nú um kaup á jörðinni — eða er látinn gera það — er presturinn á Skeiðunum, síra Brynjólfur Jónsson. Hann er maður hniginn að aldri og býr ekki sjálfur á jörðinni og hefir ekki búið á henni í nokkur ár. Því eru ekki horfur á, að þessi maður geti haft neitt við jörðina að gera til framtíðarábúðar.

En jafnvel þótt Ólafsvellir gæti ekki talist heyra undir 2. gr. kirkjujarðasölulaganna, þá er það álit mitt, og það í fullu samræmi við heildarskoðun mína á þessu jarðasölumáli, að þessa jörð ætti alls ekki að selja. Og þegar hjer við bætist, að jörðin er að dómi sýslunefndar Árnessýslu áður mjög hentug til skólaseturs, þá er því síður ástæða til þess að láta jörðina af hendi. Og þótt þessi skólastofnunarhugmynd hafi nú legið niðri síðustu árin, þá er hugsuninni þó haldið vakandi, og málið getur orðið tekið fyrir á ný þá og þegar. Þess vegna er það, að þær ástæður, sem 1916 voru taldar góðar og gildar móti sölunni, eru enn þær sömu og hafa ekki mist kraft sinn.

En til þess nú að hrapa ekki að þessu máli, þar sem verið getur, að einhverjir háttv. þm. eigi enn eftir að átta sig á því, ætla jeg að stinga upp á því, að því, verði vísað til landbúnaðarnefndar og þessari umr. frestað. Það er auðvitað, að jeg geri þetta einungis af velvild til málsins. En því hefir verið hvíslað að mjer, að frestun á samþykt tillögunnar gæti leitt til þess, að hún fjelli síðar meir. Á þetta vil jeg engan trúnað festa, því að jeg vil ekki væna neinn háttv. þm. þess, að hann láti hafa áhrif á sig til þess að greiða öðruvísi atkv. um málið seinna en hann hefði gert nú, eftir að hafa kynt sjer málavöxtu alla.

Jeg tek þetta fram til vonar og vara. Jeg undirstrika það, að jeg ætla ekki að svo komnu að kvíða fyrir „agitationum“ manna, sem kunna að standa bak við þetta mál í skúmaskotum.