26.04.1918
Neðri deild: 10. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (932)

10. mál, sala Ólafsvallatorfunnar

Einar Jónsson:

Jeg ætla mjer alls ekki að fara út í neinar kappræður út af þjóðjarðasölumálinu, sem hjer liggur fyrir, og get því verið ósköp rólegur.

Jeg veit, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) er það kappsmál, að báðar þessar till. nái fram að ganga, en þrátt fyrir það ætti hann ekki að vera með neinar dylgjur um það í minn garð, að jeg sje ekki sem heilastur í þessu máli. Hann ætti heldur að vera svo hreinskilinn, að segja blátt áfram, að jeg sje mágur Skúla í Bæ. En það get jeg sagt honum, að þótt hann ætli að nota það sem vopn á mig, þá mun það aldrei duga honum. Jeg álít, að ekki beri að kippa einni jörð út úr því kerfi, sem til er um þjóðjarðasölu, og um þá skoðun mun jeg ekki breyta, hvort sem í hlut á faðir, sonur eða mágur. Að jeg er þó sammála nefndinni um Ólafsvellina er af því, að svo sjerstaklega stendur á um þá, eins og jeg hefi áður sagt.

Jeg álít enn sem fyr, að bæði þessi mál eigi ekki að fylgjast að, og felli mig því eigi við þá till. háttv. þm. N.-Þ. (B. Sv.), að málið sje nú tekið út af dagskrá, en ekki mundi jeg vera því mótfallinn, að málunum verði nú þegar vísað til stjórnarinnar; ætlast til, að stjórnin gerði þann mismun á sölu, sem sanngjarn væri.