26.04.1918
Neðri deild: 10. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (936)
10. mál, sala Ólafsvallatorfunnar
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg skil ekki í því, hvers vegna háttv. flutningsmenn komu ekki fram með lagafrv., því að þingsályktunartill. er hjer mjög ófullnægjandi. Gerum ráð fyrir, að nú verði samþ þingsályktunartill. sú, sem fyrir liggur, en eftir eitt eða tvö ár kann svo að koma beiðni frá sýslunefnd Árnessýslu um sölu á jörðinni, eða ný meðmæli með því, að hún verði seld, og yrði þá þingið að taka málið upp á ný. Svo ef fást ætti nokkur trygging fyrir því, að jörðin hjeldist í eigu landsins, þá hefði í stað þingsályktunartill. átt að koma hjer fram lagafrv., eins og háttv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) líka benti á. Annars sje jeg ekki ástæðu til að vera að deila um málið og eyða með því tíma þingsins til ónýtis.