26.04.1918
Neðri deild: 10. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (938)

10. mál, sala Ólafsvallatorfunnar

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg vil að eins gera þá örstuttu athugasemd út af ræðu háttv. þm. Dala. (B. J.), að ef hjer er um þingvilja að ræða, þá hefði þessi till. átt að koma frá Alþingi, ekki að eins frá annari deildinni, heldur og hinni, því að engin vissa er fyrir, að hin deildin vildi fallast á það sama, svo að till. frá að eins annari deildinni getur ekki bundið stjórnina í þessu máli. Þetta hefir háttv. þm. Dala. (B. J.) ekki athugað, sem þó hefði átt að liggja honum nærri, úr því að hann fór að tala um vilja þingsins í þessu sambandi. Lagafrv. hefði því verið hjer heppilegra en þingsályktunartill., eins og jeg áður sagði.