11.05.1918
Neðri deild: 20. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (972)
40. mál, sauðfjárbaðlyf
Flm. (Þórarinn Jónsson):
Eins og háttv. deildarmönnum er kunnugt, hefir allvíða orðið vart við fjárkláða síðan útrýmingarböðunin fór fram. í sumum hjeruðum eru svo mikil brögð að þessu, að sýslunefndir æskja þess, að almenn útrýmingarböðun fari fram þegar á þessu ári. Þannig er því varið í Austur-Húnavatnssýslu. Sýslufundur þar samþykti áskorun í þessa átt. Jeg hefi leitað upplýsinga um þetta mál, bæði hjá atvinnumálaráðherranum og hjá dýralækninum, og hafa þeir fært ástæður fyrir því, að telja megi ómögulegt að láta útrýmingarböðun fara fram að svo stöddu. Ástæðurnar eru aðallega þær, að ómögulegt er að fá baðlyf frá útlöndum nægilegt til tvíböðunar á öllu sauðfje landsins, og þótt það fengist, þá yrði kostnaðurinn svo gífurlegur, að sjálfsagt væri að taka það til athugunar, hvort ekki mætti finna einhver ráð til að halda kláðanum niðri þangað til eitthvað hægist um með framkvæmdir á útrýmingarbaði. Nú er reynsla fyrir því, að hægt er að halda kláðanum nokkuð niðri og varna útbreiðslu hans með venjulegum þrifaböðum. Og þótt ekki sje líklegt, að kláðinn verði læknaður eða honum útrýmt með þeim, þá er till. til þess fram komin, að vekja athygli landsstjórnarinnar á því að gera einhverjar ráðstafanir í þá átt, að reynt verði, sem kostur er á, að verjast frekari útbreiðslu kláðans, þar til útrýmingarbað gæti farið fram.
Fyrri hluti till. fer fram á það, að stjórnin sjái um, að nægileg baðlyf til þrifabaða næsta haust verði komin til landsins fyrir ágústmánaðarlok. Hefir það þá þýðingu, að baðlyfin komist kringum landið svo snemma, að baðað verði, þess vegna, á hinum lögskipaða tíma. Síðastliðið haust kom baðlyfið svo seint, að baðanir urðu mjög óreglulegar, og sumstaðar dróst það fram eftir öllum vetri að baða fjeð. Með því móti kemur þrifaböðun að litlu haldi, sjerstaklega þegar ekki er baðað samtímis á þeim bæjum, sem eiga samliggjandi beitarlönd. Þessi dráttur á komu baðlyfsins síðastliðið ár stafaði af því, hve skipaferðir voru litlar og óvissar. Nú eru strandferðir svo ákveðnar, að ef baðlyfið er komið til Reykjavíkur í lok ágústmánaðar, þá getur það komist út um alt land fyrir þann tíma, sem böðun ætti að fara fram. Landsstjórnin telur líklegt, að hægt verði að fullnægja þessari ályktun.
Í öðru lagi fer till. fram á, að sjeð sje um, að nánara eftirlit sje haft með böðununum en nú á sjer stað. Í lögum um sauðfjárbaðanir frá 10. nóv. 1913 er svo fyrirskipað, að hreppsnefndir skuli sjá um, að baðað sje innan þess tímatakmarks, sem lögin ákveða. Sumar hreppsnefndir framfylgja vafalaust þessu ákvæði, en mjer mun óhætt að segja, að þær gera það ekki allar. Reglugerðin um sauðfjárbaðanir frá 16. okt. 1914 er að eins um, hver baðlyf skuli nota og hvernig eigi að nota þau, en ekki þannig, að stjórnin skifti sjer neitt af því, hvernig fyrirmælunum að öðru leyti er framfylgt. Það, sem mestu varðar, er, að böðun fari fram á sama tíma á öllu því svæði, sem hættast er við að sauðfje gangi saman á. Þótt ekki verði með þessu móti hægt að útrýma fjárkláðanum, þá ætti að mega halda honum niðri til þess, er hentugur tími fæst til útrýmingar. Jeg vænti þess, að hæstv. atvinnumálaráðherra taki þessu vel og hlutist til um, að gerðar verði ráðstafanir til, að baðanir fari fram á sem líkustum tíma og sem reglulegast, svo að þær geti komið að sem bestu haldi.