09.09.1918
Neðri deild: 7. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

3. mál, sala á kjöti o. fl.

Hákon Kristófersson:

Háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) hefir tekið hógværlega í þetta mál, eins og við var að búast af honum. En niðurlagsorðum hans get jeg ekki verið samþykkur. Það er töluvert annað að flytja kjöt úr eyjunum heldur en lifandi fje, því að það sjá allir, hversu erfitt það muni vera. Jeg gæti nefnt margar sveitir við Breiðafjörð, sem yrði það óbærilegur kostnaður og óþægindi að flytja alt lifandi fje út í kaupstaðinn. En eftir reglugerðinni er ómögulegt að komast að annari niðurstöðu en að eftirlitsmaðurinn eigi að fylgjast með frá því að kindin er skorin, meðan hún er flegin og þangað til kjötið er komið í tunnur og botninn er sleginn í þær.