02.09.1918
Sameinað þing: 1. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (111)
Þingsetning
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg vil skýra frá því, að hv. 1. þm. Húnv., Þórarinn Jónsson, hreppstjóri á, Hjaltabakka, hefir tilkynt mjer, að hann geti eigi komið til þinga sökum veikinda, og fylgdi tilkynningu hans vottorð læknis.
Jeg vil biðja aldursforseta, háttv. 2. þm. Skagf., Ólaf Briem, um að ganga til forsetasætis og stýra kosningu forseta sameinaðs Alþingis.
Gekk 2. þm. Skagf. (Ó. B.) þá til forsetasætis.