02.09.1918
Neðri deild: 2. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í B-deild Alþingistíðinda. (12)
1. mál, dansk-íslensk sambandslög
Forsætisráðherra (J. M.):
Það væri að bera í bakkafullan lækinn, ef jeg færi að rekja andmæli háttv. þm. N.-Þ. (B. Sv.), enda kom ekki neitt nýtt fram í síðustu ræðu hans.
Að eins vil jeg þó nefna eitt atriði. Það var sú fjarstæða, að með frv. sje það gert að reka burt Íslendinga og gefa rúm Dönum, að afleiðingin sje sú, að Íslendingar annarsstaðar missi beinlínis rjettindi.
Þetta er ekki óþekt í ílenskri löggjöf. Skal jeg nefna fossalögin, sem ákveða líkt hjer um, og sama er að segja um námulögin. Þau gera mun á þeim Íslendingum, sem búsettir eru í landinu, og hinum, sem verið hafa langdvölum erlendis. Það, sem háttv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) hefir sagt, er því fjarstæða að þessu leyti. Skal jeg svo ekki fara frekar út í það.
Jeg vildi stuttlega svara háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) um flyti málsins. Það er auðvitað á valdi þingmanna að veita afbrigði. En mjer finst, að þegar nál. er komið fram, þurfi ekki langan tíma til þess að ræða frv. þar á eftir. Og eftir því, sem fram er komið, getur það ekki verið þingmanna vegna, að langan tíma þurfi, þar sem það er vitanlegt, að frv. verður nú samþykt óbreytt.
Þar sem háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) talaði um að samþykkja fána, þá veit jeg ekki, hvað hann á við. Jeg tel sjálfsagt, að þjóðfáninn verði löggiltur jafnframt samningnum. Er jeg því efa um, að nauðsyn sje á lögum um þetta, en ef svo er, þá er það fljótgert.
Jeg verð að telja það óheppilegt og óviðkunnanlegt að breyta stjórnarskránni nú, áður en þjóðaratkvæðið er um garð gengið og málið hefir verið fyrir ríkisþingi Dana, hversu vissir sem vjer kunnum að vera um úrslit málsins.
Aftur er hitt rjett, að flýta málinu, ef lögin eiga að ganga í gildi 1. desember næstkomandi. Þjóðaratkvæði yrði þá að fara fram í októbermánuði og þá, væri óviðkunnanlegt, ef nefndarálitin væru ekki komin út meðal þjóðarinnar áður. Það stendur svo á skipaferðum, að ráðherra verður að fara utan með »Botníu« síðast í oktober, því að um annan farkost er ekki að ræða. »Íslands Falk« verður ekki hjer við land fyrst um sinn. Af þessum ástæðum tel jeg nauðsyn, að málinu verði flýtt svo, að atkvæðagreiðslan geti farið fram snemma í október.
Um önnur mál frá þingmönnum mun það sýna sig, hvort nauðsynlegt verður að draga þingið þeirra vegna.
Um framkvæmdir á sambandslögunum mun umboðsstjórnin væntanlega annast. Sumar þurfa væntanlega að koma bráðlega, en aðrar geta beðið og orðið samferða stjórnarskránni. Jeg tel víst, að stjórnin athugi þetta, og má vera, að rjett sje, sem háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) tók fram, að nefnd hafi hönd í bagga með og gæti framkvæmda í þessu efni. Jeg tel rjett, að þingið kjósi eða bendi á menn samkvæmt 16. gr., sem ættu að skipa nefndina til næsta þings, en að þingið geti ráðstafað því nú til fulls tel jeg hæpið. Og eins er um það, sem háttv. þm. Dala. (B. J.) sagði um ríkismerkið, en um það mætti ráðgast við nefndirnar.
Jeg tel nú fram komnar nægilegar bendingar fyrir nefndina til að skrifa nál. En sem sagt, aðgerðir þingsins mega ekki dragast lengi, ef þær eiga að verða kunngerðar þjóðinni áður en atkvæðagreiðslan fer fram.