09.09.1918
Efri deild: 6. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (138)

Þinglausnir

forseti:

Þá er störfum þessarar hv. deildar lokið að þessu sinni og hafa ekki fleiri mál legið fyrir henni en þau tvö frv., sem nú voru afgr.

En það er sögulegur viðburður, að á þessu ári hafa tvö þing verið háð, hið lengsta, 100 daga þingið, og nú hið stysta, er sögur fara af.

Hverjar afleiðingarnar verða fyrir þjóðina mun framtíðin sýna.

En vjer þingmenn förum hjeðan í þeirri góðu trú og von, að það verði þjóðinni til heilla og blessunar.

Það kann að virðast af sumum, að í mikið sje ráðist af oss, svo fámennri þjóð, er vjer nú tökum að oss að ráða sjálfir öllum vorum málum. En sú var tíðin áður, að þessi litla þjóð hafði full forráð mála sinna, og þótt hún væri minni flestum þjóðum, var hún að sama skapi merkari.

En síðan eru liðnar langar stundir, og margt hefir á dagana drifið.

Hallæri og drepsóttir, eldur og ís hafa sótt á landið í sameiningu.

En það voru ekki mestu meinin. Það var annað, sem kom þjóðinni á knje.

Það var skorturinn á trú á sjálfa sig, von á framtíðina og kærleikanum til landsins.

Það kom þjóðinni og sjálfstæði hennar á knje.

En sjálfstæði hennar höfum vjer nú reist við aftur, og þá biðjum vjer þess, að hana megi aldrei skorta þetta þrent, trú á sjálfa sig, von á framtíðina og ást á landinu, því að það er víst, að sú þjóð, sem elskar land sitt, hún bíður ekki ósigur. Hennar vonir bregðast ekki.

Með þeim óskum, að hið nýja sjálfstæði verði þjóðinni heilladrýgra og endingarbetra en hið forna frelsi, skiljum vjer nú á þessu þingi, og vona jeg, að vjer hittumst heilir aftur.

Óska jeg yður öllum góðrar heimferðar og segi þar með slitið stöfum deildarinnar.