09.09.1918
Neðri deild: 7. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (153)

4. mál, greiðsla af kostnaði af flutningi innlendrar vöru

Forsætisráðherra (J. M.):

Mál þetta hefir ekki enn verið tekið til sameiginlegrar meðferðar í stjórnarráðinu, enda mun ráðuneytið ekki taka fasta afstöðu í því fyr en það hefir ráðgast við útflutningsnefndina. Jeg get sagt sama sem jeg hefi áður látið í ljós, að mjer virðist sanngjarnt, að tekið sje tillit til erfiðleika þeirra, sem sumir kaupstaðir eiga við að búa, vegna ófriðarráðstafananna. Jeg tel víst, að stjórnarráðið muni bráðlega taka mál þetta til meðferðar, í samráði við útflutningsnefndina. Frekara get jeg ekki sagt nú.