09.09.1918
Sameinað þing: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í C-deild Alþingistíðinda. (172)
5. mál, vantraustsyfirlýsing
Fjármálaráðherra (S. E.):
Það er eitt, sem óneitanlega þreytir mig og gerir mjer örðugt um að taka þátt í þessum umr., og það eru hinar stöðugu endurtekningar andstæðinga minna, endurtekningar á því, sem er marghrakið. Þeir vaða áfram endalaust í sandinum á eyðimörku röksemdaleysisins.
Fyrst nokkur orð til hv. 1. þm. N.-M. (J. J.). Viðvíkjandi ummælum hans um stimpilgjaldið skal jeg láta þess getið, að lögin voru send til staðfestingar í júlí, en staðfest 12. ágúst. Ástæðan fyrir því, að þau voru ekki send fyr, var sú, að gera þurfti ýmsar ráðstafanir til undirbúnings því, að lögin gengju í gildi. En staðfestingin drógst einnig nokkuð vegna þess, að konungurinn var ekki staddur í Kaupmannahöfn þegar lögin voru send út. Hjer er því um engan þann drátt að ræða, er stjórninni verði gefinn að sök, og auk þess munu fáir farmar hafa farið út á þessu tímabili, svo dráttur þessi mun ekki hafa valdið nema örlitlum tekjumissi.
Hv. 1. þm. Rang. (E. P.) vjek orðum sínum til mín, og skildist það á honum, að hann mundi greiða atkv. með viðaukatill. hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) . Skildist mjer hann vilja gera lítið úr viðleitni stjórnarinnar til að afla landinu tekna. Jeg vil benda honum á skattafrumvörpin, er jeg bar fram á síðasta þingi. Sömuleiðis vil jeg benda honum á það, að stjórnin hefir útvegað landinu lán í útlöndum. Var það að vísu forsætisráðherra, sem lánin útvegaði, en það var í fullu samráði við fjármálastjórnina og að undirlagi hennar, að lánin voru tekin. Við þetta mun hv. 1. þm. Rang. (E. P.) kannast, en segir kann ske, að stjórnin hefði átt að gera enn fleiri ráðstafanir til tekjuauka fyrir landssjóð. En jeg hygg, að það hefði verið mjög örðugt að koma fleirum skattafrv. gegnum þingið. Jeg hafði hugsað mjer tekjuskattinn hærri en þingið fjelst á. Nd. dró úr ákvæðum tekjuskattsfrumvarpsins Er því naumast sanngjarnt af þm. að gera meiri kröfur til stjórnarinnar um fjáröflun. Mjer er næst að halda, að tekjuaukinn hefði ekki orðið meiri, hver svo sem hefði setið í minni stöðu. Munu flestir þm. játa þetta, er þeir líta á það ofstækislaust. Gjaldþolið — og þá einkum gjaldþol almennings — er altaf að minka. Er því ekki nema eðlilegt, að stjórnin kynoki sjer við að leggja takmarkalausa skattabyrði á allan almenning. Aftur hefir þingið, eins og jeg tók fram, amast við háum sköttum á þeim, sem mestar hafa tekjurnar. Var það auðheyrt, hve tekjuskattsfrumvarpið kom nálægt hjartanu í hv. þm. N.-Ísf. (S. St.), enda er ekki nema mannlegt, að auðkýfingarnir vilji halda tekjum sínum óskertum, þó miklar sjeu. Það, sem hv. 1. þm. Rang. (E. P.) að öðru leyti vildi skrifa á mitt syndaregistur, var aðallega Öskjuhlíðarvinnan, en þar sem fleiri hv. þm. líka mintust á það atriði, mun jeg síðar koma að því. En áður en jeg kveð hv. 1. þm. Rang. (E. P.) skal jeg láta í ljós ánægju mína yfir því, að hann hafði ekki meira í pokahorninu en hann hafði.
Jeg hefi sýnt fram á, að stjórnin hefir gert sjer alt far um að auka tekjur landssjóðs, og hið svo kallaða Öskjuhlíðarfargan er svo vaxið, að jeg mun aldrei iðrast afskifta minna af því, þótt jeg verði gamall maður.
Þá skal jeg leyfa mjer að víkja að ræðu hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.). Því er nú ver og miður, að jeg hefi ekki „punktað“ hjá mjer alt, sem jeg vildi, úr ræðu hans, því hin líðandi suða dáleiðir mig stundum í dottið. Hv. þm. (G. Sv.) mintist mikið á landsverslunina og gerði mikið úr því afskaplega tapi, sem af henni hafi leitt. (G. Sv.: Nei, það er ekki rjett.) það gleður mig að heyra, að hv. þm. (G. Sv.) játar villu síns vegar, og þarf jeg þá ekki að svara því. — Rekstur Tjörnesnámunnar get jeg ekki talað um. Jeg var ekki í ráðherrastöðu þegar það mál var á döfinni. En það man jeg, að þingið ætlaðist til, að alt væri gert, sem unt var til að afla eldsneytis. Hitt er aftur „factum“, að tapast hefir á námurekstrinum. En mig brestur kunnugleika til að tala nánar um þetta mál, enda hefi jeg ekki haft nein afskifti af því. — Skal jeg þá snúa mjer beint að „Öskjuhlíðarfarganinu“ svo kallaða. Hv. þm. V. Sk. (G. Sv.) vildi halda því fram, að Öskjuhlíðarvinnan hafi átt rót sína að rekja til þess, að stjórnin hafi viljað stinga dúsu upp í alþýðuna hjer á Reykjavík eftir sykuræsingarnar. Þetta er alveg tilhæfulaust, og á jeg ógn hægt með að reka það aftur. Áður en nokkur hækkun á sykurverði kom til var það bókfært á fundi ráðuneytisins, að forsætisráðherra æskti þess, að byrjað væri sem allra fyrst á einhverju fyrirtæki, sem almenningur gæti haft vinnu af. Jeg skal fúslega játa, að fyrir forsætisráðherra vakti Hafnarfjarðarvegurinn. En það kemur ekki þessu máli við. Það, sem máli skiftir, er, að ákveðið var að stofna til dýrtíðarvinnu löngu áður en nokkur sykurhækkun kom til. Hefi jeg með þessu rekið aftur ummæli hv. þm. V.-Sk. ( G. Sv.), sem hrein og bein ósannindi. Annað mál er hitt, að jeg mun hafa ráðið mestu um það, í hverskonar vinnu var ráðist. Það, sem vakti fyrir mjer með Öskjuhlíðarvinnunni, er annað og meira en það eitt, að stofna til atvinnu fyrir fólkið. Jeg get ekki neitað því, að það er eitt mál, sem borið er fram af kvenþjóð þessa lands, sem frá upphafi hefir haft fullan samhug minn. Jeg á við Landsspítalamálið. Nú var það ætlun mín, að úr því að landssjóður þyrfti að veita vinnu, væri svo best farið, að hún kæmi niður þar, sem gagn væri að. Landsspítalamálinu er fylgt með áhuga um alt land, enda er það velferðarmál allrar þjóðarinnar. þótti mjer vel við eigandi, að þessi vinna, sem veitt var til að styðja fátæklinga í lífsbaráttunni, yrði til að bera þetta mál áfram. Hyrningarsteinar Landsspítalans máttu gjarnan hafa verið bjargvættir fátæks almúga, þegar harðast svarf að honum. Og það svarf að fólkinu síðasta vetur.
Jeg hefi hvað eftir annað sjeð menn fara grátandi út af skrifstofu minni, af því að jeg gat ekki útvegað þeim hjálp þá, er þá vantaði, og hið sama segja þeir, sem stóðu fyrir atvinnuskrifstofunni. Oft mun hafa reynt á þolrifin í þeim. En því ljestu ekki bæjarsjóð þerra tárin? Veit jeg að þeir kaldlyndu menn spyrja. Enginn þarf að deyja úr hungri, sem þangað á athvarf. En það ættu menn að þekkja, að til eru svo ríkar tilfinningar hjá sumum mönnum, að þeir vilja heldur líða hungur en að þurfa að biðja um sveitarstyrk; svo er stolt þessara manna sterkt og sjálfstæðistilfinning. Hingað til hafa sveitamenn ekki getað gert sjer ljósa grein fyrir því, hversu skórinn hefir krept að mörgu kaupstaðarfólki, því að fram að þessu hefir styrjöldin ekki leikið þá eins hart og bæjarbúana. En jeg er alveg viss um, að ef þeir hefðu getað gert sjer í hugarlund, hve þörfin var brýn, þá mundu þeir hafa sagt við mig: „Hjálpaðu í öllum bænum fólkinu“. Svo vel þekki jeg brjóstgæði íslensks sveitafólks, að jeg er viss um þetta. En var þá hjálpin veitt þannig, að eigi hefði verið hægt að framkvæma hana á annan hagkvæmari hátt? Mjer skildist á hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að atvinnuskrifstofan hefði verið sett á stofn vegna vina minna. Hjer er borið á borð dálítið nýnæmi í minn garð, nýnæmi, sem jeg hefi ekki hingað til átt að venjast hjer á þingi, þótt hnútur hafi flogið um borð. Við þeim er að búast, og þær tek jeg mjer ljett. Mjer hefir aldrei verið brugðið um, að jeg væri vilhallur vinum mínum um of, hvorki sem sýslumaður, bæjarfógeti nje ráðherra; þvert á móti hefir mjer verið borið á brýn, að jeg gerði of lítið fyrir þá. En hverjir eru þessir vinir, sem jeg á að hafa hlaðið undir? Jeg vona, að hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) skýri frá því.
Mjer var það ljóst, að í jafnstórum bæ, sem Reykjavík er, þar sem þeir skiftu jafnvel þúsundum, sem vinnu þörfnuðust, og þar sem ekki var hægt að veita öllum þessum hóp vinnu, þá var nauðsynlegt að vinsa vandlega úr þá, sem mesta höfðu þörfina. Þetta var mikið verk og vandasamt, og vart hægt að gera það á annan veg, svo vel færi, en með því að setja upp atvinnuskrifstofu. Auk þessa hafði þessi skrifstofa annað markmið; hún átti líka að leitast við að útvega atvinnulausu fólki hjer úr bæ atvinnu annarsstaðar. Mjer kom það á óvart, að jeg skyldi vera víttur fyrir það að hafa sett þessa skrifstofu á fót, ekki síst eftir það, að síðasta þing hafði sterkan hug á að setja á stofn samskonar skrifstofu fyrir alt landið, þótt eigi gæti af því orðið að þessu sinni. En það má ekki kippa sjer upp við, þótt þeir, sem altaf eru að leita að árásarefni á stjórnina, gleypi við öllum hviksögum, sem þeir heyra henni til vansa, og máli alt með sem svörtustum litum, sem stjórnin gerir. En af þessu leiðir, að stóryrði andstæðuflokksins eru úti um land skoðuð sem tóm markleysa, er menn láta sem vind um eyrun þjóta. Og þótt þessi andstöðuflokkur vilji engu góðu um stjórnina trúa, þá hefir hann samt trú á henni í hjarta sínu, og þeir vita, að hún hefir gert margt gott, þrátt fyrir alla erfiðleikana, sem hún hefir átt við að stríða.
Þegar litið er á ástandið hjer í bæ síðasta vetur, og þess gætt, hversu mikla hjálp landssjóðsvinnan veitti, þá má það ekki mikið kallast, þótt á spítalavinnunni kunni að hafa tapast fyrir landssjóð rúm 40.000 kr. þær hafa meira en unnist upp óbeinlínis fyrir landið og bæinn; og síst er um þetta að fárast, þegar þess er gætt, að eftir fyrirmælum síðasta þings má veita bænum á næsta vetri yfir 70.000 kr. styrk, ef þörf gerist. Með því hefir þingið enn að nýju, og eftir að það vissi um Öskjuhlíðarvinnuna, sýnt fúsleik sinn til að veita hjálp á þessum erfiðu tímum, þegar þörf krefur. — Jeg átti tal um þetta við mikilsvirtan danskan stjórnmálamann, og gat þess, að sumir teldu það leitt, ef landssjóður tapaði á dýrtíðarvinnu sinni. En hann sagði mjer, að Danir væru nú að undirbúa að byrja á hinu sama; þeir álitu það betra fyrir siðferðistilfinningar fólksins, að það væri látið vinna eitthvað fyrir styrkinn, er því væri veittur. Ef Öskjuhlíðarvinnan á að vera máttarviðirnir í vantraustsyfirlýsingu andstæðinganna, þá er mjer sama, þótt yfir dynji þrjár eða fleiri slíkar yfirlýsingar.
Þá talaði hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hjartnæmlega um sykurmálið eða sykurhneykslið, eins og hann mun hafa nefnt það. Því hefir verið haldið fram af sumum mótstöðumönnum stjórnarinnar, að þetta væri eitt hið stærsta mál landsins, að sykurverð var hækkað um vikutíma og lækkað aftur, eftir fyrirheiti, er danski sykurinn fjekst.
Jeg hefi nú lýst afstöðu minni hjer á þinginu til þessa dauða máls og sýnt fram á, um hvaða hjegóma var hjer að ræða. Allir sjá líka, að það getur ekki heyrt undir mig að reikna út vöruverð í landsversluninni. Jeg læt mjer því nægja að vísa til þess, sem jeg hefi áður sagt um þetta mál, en það vil jeg hjer enn endurtaka, að það hefði verið stórvítavert, ef stjórnin hefði sagt ósatt um málið, en það hefir hún auðvitað ekki gert, þó óskammfeilnin hafi gengið svo langt, að bera stjórninni þetta á brýn. Jeg held, að atvinnumálaráðherrann hafi ekki tekið til máls á borgarafundinum um sykurmálið, og það, sem jeg sagði á þeim fundi, var prentað í blaði einu hjer í bæ, og get jeg staðið við alt, sem þar stendur, enda hefi jeg í þessu háa þingi í heyranda hljóði hrakið öll ósannindabrigsl óhlutvandra blaða um þetta efni.
Hv. þm. (G. Sv.) fór annars að draga nokkuð úr áburði sínum á stjórnina með því að segja, að hún hefði látið aðra bera fram ósannindin. En það er jafntilhæfulaust eins og ósannindaáburðurinn á stjórnina sjálfa. Það hefir annars brugðið svo undarlega við, að síðan jeg og hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) háðum baráttuna um þingmensku í kjördæmi hans hjer um árið, og hann laut í lægra haldi, þá hefir honum verið mjög gjarnt að ráðast á mig. Það getur verið næsta mannlegt, en vart munu þessar árásir hans bæta málstað hans í kjördæmi hans. Margt getur komið fyrir á langri leið, og vera má, að við eigum enn eftir að mætast í kjördæmi hv. þm. (G. Sv.), en hvað sem öðru líður, þá þykist jeg þess fullviss, að gamlir sýslubúar mínir og kjósendur hv. þm. (G. Sv.) muni ekki væna mig ósanninda eða nokkurs ódrengskapar.
Þá kem jeg að hv. þm. N.-Ísf. (S. St.). Því er nú svo varið, sem fyrri daginn, að þótt orð hans sjeu hljómmikil, þá verka þau ekki á mig eins og ætla mætti að hv. þm. (S. St.) vildi að þau verkuðu, og jeg skal segja hv. þm. (S. St.), hvernig á því stendur. Þegar hv. þm. (S. St.) hefir látið dembuna dynja yfir mig, og kemur svo til mín brosandi út undir eyru með tóbaksdósirnar á lofti og býður mjer ofurkompánlega í nefið, þá finst mjer alvöruleysið skína svo gegnum orð hans og gerðir, að jeg get ekki varist þeirri hugsun, að öll frammistaða hv. þm. (S. St.) sje leikur tómur, leikinn fyrir kjósendum hans og áheyrendum.
Jeg sagði, að jeg hefði skotið máli mínu til þjóðarinnar, og eins og hv. þm. (S. St.) veit, þá er jeg landskjörinn þingmaður og það annar í röðinni. Þetta sýnir, að þjóðir ber traust til mín, þrátt fyrir árásir hv. þm. (S. St.) og annara á mig.
Hv. þm. (S. St.) talaði um framkomu mína í ríkisráðinu í fánamálinu og að jeg hefði ekki komið því þar fram. Jeg ætla ekki að fara að deila við hv. þm. (S. St.) um þetta. Dómur sögunnar á eftir að ganga um þetta mál, og getur hann orðið á annan veg en hv. þm. (S. St.) býst við. Það liggja margir þræðir að niðurstöðu þeirri, sem vjer höfum nú náð í sjálfstæðismáli voru, og má vera, að einn þeirra, og það ekki sá veigaminsti, sje spunninn úr mótstöðu minni í ríkisráðinu. Jeg veit, að þeir, sem altaf eru að reyna að klína á mig vantraustsyfirlýsingum, muni aldrei fallast á þetta; þeir um það; jeg læt mjer dóm þeirra í ljettu rúmi liggja.
Hv. þm. (S. St.) var að halda vörnum uppi fyrir hæstv. forsætisráðherra fyrir framkomu mína gegn honum. Jeg efast um, að hæstv. forsætisráðherra kunni honum þökk fyrir; jeg geri ráð fyrir, að hann hafi litið svo á, sem og er rjett, að flokki vorum, sem altaf hefir skipað sjálfstæðismálinu fremst allra mála, væri skylt að fylgja sjer í baráttunni fyrir því. Mjer finst, að hv. þm. (S. St.) ætti sjálfs sín vegna að minnast sem allra fæst á sjálfstæðismálið, eins og hann hefir komið fram í því, og þarf þar ekki að líta svo langt aftur í tímann, eins og þegar hann snerist í fánamálinu. En út í það mál fer jeg ekki lengra nú, því að jeg hefi enga tilhneigingu til að rifja óneyddur upp syndir annara. Þó get jeg ekki látið vera að víkja að því, að frammistaða hv. þm. (S. St.) í sjálfstæðismálinu á síðasta þingi var hvorki virðuleg nje vænleg til að þoka því áfram. Jeg vissi ekki betur en höfuðáhugamál hans væri þá að hlaupa sem fyrst frá öllu og komast heim. Jeg man það glögt, að þegar hv. þm. (S. St.) rjeðst fyrst á mig í sumar, þá fanst honum ekki þörf á friði og samheldni vegna sambandsmálsins; hann rjeð þá líka allfast á hæstv. forsætisráðherra; það er því ekki til neins fyrir hv. þm. (S. St.) að halda því nú fram, að hann hafi í sumar viljað hlífa stjórninni, til þess að koma engum glundroða á sjálfstæðismálið. Hann reri þá, sem nú, allra manna kappsamlegast að æsingum í þinginu. Þegar jeg hafði skýrt frá fjárhag landsins, rjeðst hann á þá skýrslu og alla fjármálastjórn landsstjórnarinnar og vildi óvægur, að nefnd væri skipuð til að rannsaka fjármál landsins. Hann fjekk þar vilja sinn, en sú rannsókn fór svo, að mjög þvarr vindurinn í belgnum við hana, því að sakir fundust ekki. Hann vildi og láta rannsaka rekstur landsverslunarinnar; og nefnd var fengið þar starf í hendur; og hefði átt að vera nægur tími á 100 daga þinginu til að leysa það verk vandlega af hendi; en ekki man jeg til, að þar kæmi í ljós nokkur skapaður hlutur aðfinsluverður í garð stjórnarinnar; sátu þó í nefndinni menn, sem telja sig allstórvirka til starfa, og mundu sumir þeirra vart hafa grátið, þótt eitthvað hefði fundist, eða stjórnin fengið ofurlítinn skell.
Það er hægt að kasta því fram, að landið hafi tapað miljónum fyrir vanhygni og ráðleysi stjórnarinnar, en að vera að stagast sí og æ á slíku á sjálfu Alþingi, og færa engin rök fyrir, það mundi enginn gera annar en sá, sem farinn væri að ganga í barndómi, því að ekki vil jeg gera hv. þm. (S. St.) þær getsakir, að hann geri þetta af illvilja, í þeirri von, að geta með því vakið kala til stjórnarinnar hjá auðtrúa og fáfróðum mönnum. Það er ekki til neins að vera að kasta því fram, að tapast hafi miljónir á landsversluninni, þar sem það var sýnt og sannað, er reikningar hennar voru gerðir upp, að hún hafði grætt hátt upp í miljón króna. Þetta er að tala eins og ábyrgðarlaus maður talar, en hv. þm. (S. St.) ætti þó að vita það, að hann ber ábyrgð orða sinna og gerða, þótt eigi sje hann ráðherra; hv. þm. (S. St.) má ekki láta æsa sig upp í slíka óhæfu, þótt hlegið kunni að vera að honum á áheyrendapöllunum og hnyttiyrðum hans. Það verður að krefjast þess af þinginu, að það láti ekki slíku athæfi óhegnt, og af þjóðinni, að hún sendi ekki slíka menn á þing, sem ekki virðast hafa hina allra minstu ábyrgðartilfinningu.
Því neitar enginn, að hv. þm. (S. St.) getur talað áheyrilega og er fyndinn og getur vakið hlátur. En hann minnir mig alt of oft á „reyfara“. Jeg hefi gaman af að lesa þá, en gagnið er lítið, og slíkar bækur bindur maður ekki inn og geymir í skáp sínum, heldur kastar þeim frá sjer eftir að hafa lesið þær einu sinni. Líkt er farið um hv. þm. (S. St.). Það getur verið nógu gaman að heyra hann einu sinni, en það er óþolandi þreytandi að þurfa að hlusta oft á hann og heyra hann berja barlómsbumbuna og syngja öfgasöngvana. Jeg get vel skilið að áheyrendur, sem sjaldan hafa heyrt til hv. þm. (S. St.), segi, þegar þeir koma heim til sín: Það var þó svei mjer skemtilegur „reyfari“, sem jeg heyrði í kveld. En jeg er handviss um, að þegar þeir fara að hugsa um efnið í „reyfaranum“, þá kemur þeim ekki í hug að kosta upp á að binda hann inn.
Hv. þm. (S. St.) vill berja það inn í menn, að hjer sjeu engir flokkar í þinginu, sem haldi saman. Þetta er ein af „reyfara“-sögum hv. þm. (S. St.). Þegar jeg tók við ráðherraembætti, hafði jeg stuðnings Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins líka; og jeg veit ekki til, að nein breyting hafi orðið á því síðan, og býst jeg þó við, að hv. þm. (S. St.) viti ekki betur um afstöðu þessara flokka til mín en jeg sjálfur. Jeg veit að vísu ekki jafnglögt um afstöðu Heimastjórnarflokksins, en mun þó mega fullyrða, að hann kæri sig ekki um að slíta samvinnunni nú. Hver er það, sem elur á kalanum hjer á þingi? Hver er það, sem reynir að vekja óróa? Hver stráir illindum og úlfúð meðal þingmanna? Hver er það, sem lætur ekkert tækifæri ónotað til að trufla samvinnu milli þings og stjórnar? Hver annar en hv. þm. N.-Ísf. (S. St)! Getur það verið, að hann ímyndi sjer, að slíkt geti verið til heilla fyrir þjóðina?
Jeg gæti skilið það, að hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) talar hátt, ef hann hefði þær sakir á hendur stjórninni, er sýndu, að hún vildi sjálf hafa hag af starfsemi sinni. Þá ætti hann líka að tala hátt. En ákærur hans eru sumpart fálm út í loftið, sem ekki hefir við neitt að styðjast, og sumpart smáatriði, sem hvergi gæti verið lögð áhersla á. Í hvaða landi í heimi myndi það viðgangast, er stjórn væri að koma sambandslögum á, eftir 100 ára deilu, að slík stjórn fengi vantraust út af máli eins og Öskjuhlíðarvinnunni? Ef slíkri stjórn væri sparkað af slíkum ástæðum, myndi hvarvetna sagt, að það væru Eskimóar, sem sætu á Alþingi Íslendinga. Það yrði talin sú flónska og heimska, sem enginn stjórnmálamaður gæti skilið. Það er föst regla, að ef einni stjórn tekst að koma í gegn stórum „princip“-málum, þá dettur þingflokkunum ekki annað í hug en að styðja stjórnina.
Það er broslegt, að hv. þm. (S. St.) skuli bera fram vantraustsyfirlýsingu á mig sem fjármálaráðherra, og hafa þó áður samþykt traustsyfirlýsingu á mig sem fjármálaráðherra, með því að fylgja öllum skattamálum mínum fram. Það er enn þá broslegra, að vantraustsyfirlýsingin skuli nú vera rökstudd að nokkru með því, að atvinnumálaráðh. hafi látið vinna of mikið að vegavinnu.
Fyrir það á jeg að fá vantraustsyfirlýsingu. Hver skilur nú?
Hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) var að vitna í „privat“-ummæli hv. 6. landsk. þm. (G. B.), og skal jeg ekkert blanda mjer í það. En jeg gæti mint hann (S. St.) á, hvað hann sagði við mig í þinglok í sumar. Hann sagði þá, að jeg hefði staðið best í ístaðinu af ráðherrunum, og gaf mjer í nefið um leið. Þá var jeg bestur, en nú kemur vantraustsyfirlýsingin. Við öllu má búast úr Djúpinu. Seinni ára stjórnmálasaga hv. þm. (S. St.) er orðin hálfgerð raunasaga. Hann veit ekki hvað hann vill. Það ber enga birtu af honum í þingsalnum; hann er orðinn hreinasta stjórnmálaskar. Og þess mun ekki langt að bíða, að blásið verði á skarið, svo að það sloknar út af til fulls. Og það á að slokna.