09.09.1918
Sameinað þing: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í C-deild Alþingistíðinda. (173)
5. mál, vantraustsyfirlýsing
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Eftir þessa atkvgr. mun það koma í ljós, að menn sje orðnir nokkuð þreyttir, og skal jeg ekki mikið á þá þreytu auka. Það er langt síðan jeg bað um orðið, svo að jeg mun hafa gleymt ýmsu af því, sem síðan hefir verið til mín beint.
Jeg skal taka það fram, að þeir, sem mjer hafa andmælt, hafa komið með sáralítið nýtt, og það litla, sem til er af slíku, vil jeg nú drepa á. Varnir mínar og almennar athugasemdir hafa ekki verið hraktar.
Fyrst er þá hv. þm. Snæf. (H. St.), sem fór hörðum orðum um afskifti mín af atvinnumálunum. Þar var ekkert nýtt, nema það, að jeg hefði látið það afskiftalaust, er breytt var um forstöðu landsverslunarinnar. Þessu vil jeg mótmæla. Jeg veit ekki betur en að hugmyndin kæmi fram á síðasta fjárlagaþingi, og var jeg henni samþykkur og talaði um við ýmsa menn.
Hv. þm. (H. St.) talaði um galla landsversl. Þó að svo væri, sem hann segir, þá er ekki búið að sýna, á hve miklum rökum þær ákærur eru bygðar, enda þekkja hv. þm. hið blinda fylgi þess hv. þm. (H. St.) við kaupmannastefnuna.
Hin hörðu og staðlausu orð sama hv. þm. (H. St.) um mína persónulegu hæfileiga ætla jeg ekki að gera að umtalsefni. Hygg, að hann hafi þar, sem oftar, skotið ofan við markið.
Þá er hv. 1. þm. N.-M. (J. J.), sem áleit það viðeigandi að lýsa því, hvernig jeg á endanum gekst undir vanda þessarar óvinsælu stöðu. En mjer er óljúft að rekja það, sem gerst hefir á flokksfundum, en jeg skal lýsa yfir því, að hann fór þar ekki rjett með, heldur algerlega rangt. Vona jeg, að einhver af samflokksmönnum mínum skýri það betur. Þó fanst mjer, sem hv. þm. (J. J.) þætti sjer renna blóðið til skyldunnar í enda ræðu sinnar, því að þá fór hann að afsaka mig, og kann jeg honum þó engar þakkir fyrir. Jeg tel ekki rjett að nefna nöfn utanþingsmanna, enda þótt þeir eigi að hafa haft einhver áhrif á mig. En þó er það nýtt, ef þessi hv. þm. (J. J.) er viðkvæmur fyrir slíku, því að ekki verður slík viðkvæmni eða tilfinning fyrir því sæmilega ráðin af skrifum hans í Ísafold.
Þá er næst hv. 1. þm. Rang. (E. P.), sem með vanalegri varfærni lýsti afstöðu sinni. Fann hann mjer þó ekkert nýtt til foráttu nema Hafnarfjarðarveginn, en það er búið að skýra, og þarf því ekki að svara. Hann (E. P.) sagði, að jeg, bændavinurinn, hefði ekki hugsað mikið fyrir landbúnaðinum og lítið gert í þá átt. Má það vel vera, en hvorki frá hv. 1. þm. Rang. (E. P.) nje öðrum bændum, hefir neitt mikilvægt komið fram í þá átt, og því ekki á það reynt, hvernig jeg hefði stutt hv. þingmenn. Enda er nú ekki ljett að ráðast í stórvirki til styrktar landbúnaði eða öðrum atvinnuvegum. Var jeg þó fýsandi samvinnu þingmanna og stuðnings um kaup á síld, og vakti þar fyrir mjer, að hún yrði notuð til fóðurbætis, og jeg var einnig með því, að síldarmjöl var keypt síðastliðið ár, sem varð að bestu notum.
Þá mintist hann (E.P.) á fráfærnafrv. Það var aldrei meining stjórnarinnar að halda því fram, ef aðflutningar teptust ekki, en ef svo færi, taldi hún það gott ráð til að auka matarforða í landinu, og hefir enginn getað mótmælt því.
Þá er hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.). Við höfum stundum áður átt í orðasennu, og vanalega farið vel á. Hann hafði ekkert nýtt að færa fram, nema honum var óljóst, hví jeg gaf kost á því að taka ráðherrasæti fyrir hönd Framsóknarflokksins. Jeg skal ekki rekja það langt, en lýsa yfir því, og hefi jeg þess næg vitni, að jeg færðist langalengi undan því, eins og líka hv. 2. þm. Skagf. (Ó. B.), og gerði tilraun til að fá annan mann. Fór jeg heim til hæstv. forsætisráðh. og ræddi það við hann. Skal jeg ekki tala meira um þetta mál, en það er satt, að fyrst seint og síðar meir gekst jeg undir þennan vanda.
Hv. þm. (G. Sv.) talaði líka um Tjörnesnámuna, og kvað hann munu vera halla af rekstri hennar í sumar. En eftir skýrslu sænska verkfræðingsins hefir ekki orðið halli, heldur ágóði, síðustu þrjá mánuðina, sem hann hefir sent skýrslu yfir.
Jeg er hv. flm. (S. St.) þakklátur fyrir alla prestlega vorkunnsemi, ef hún kemur rjett niður. Báðir erum við teknir að eldast, en óvíst er, hvor eldri verður í orðasennu, ef hún stendur lengi. Jeg man ekki til, að jeg hafi þakkað mjer úrslit sambandsmálsins. Jeg hefi þar ekki annað gert en í samráði við minn flokk að leggja til það, er jeg taldi hollast.
Fleiru mun jeg ekki þurfa að svara.