09.09.1918
Sameinað þing: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í C-deild Alþingistíðinda. (174)
5. mál, vantraustsyfirlýsing
Benedikt Sveinsson:
Út af orðum hv. hv. 6. landsk. þm. (G. B.) vil jeg segja fáein orð. Hann gat þess, með hve miklum atkvæðafjölda frv. var samþykt í lok síðasta þings, 100 daga þingsins, að 38 þjóðfulltrúar hefðu greitt atkv. með frv., en 2 hefðu ekki greitt atkv., „án þess þó að segja nei“. Mátti draga það út úr orðum hans, að þessir tveir hefðu verið hikandi í málinu, eða jafnvel mætti telja þá með því.
Til þess að fyrirbyggja misskilning, vil jeg skýra, hvernig á þessu stóð. Frv. var borið undir atkv. ¼ klukkustundar eftir að þm. fengu skýringar þær, er því fylgdu, athugasemdir nefndarinnar, og hæstv. forsætisráðh. var mikið í mun að heimta atkvgr. þá þegar. Við mótmæltum því, tveir þm., að nokkur atkvgr. færi fram á þeim fundi, og rökstuddum mál okkar um það, hve slíkt væri gersamlega ótilhlýðilegt. Vildum við, að þm. hefðu alls óbundnar hendur, er þeir kæmu aftur til þings, og atkvgr. biði þangað til málið fengi lögformlega meðferð á Alþingi, samkvæmt þingsköpum. Hugðum við, að fæstir þm. hefðu þá á takteinum rökstudda skoðun um þetta stórmál og afleiðingar þess, og mundi þeim ekki veita af tímanum og íhuga það til seinna aukaþingsins. Væri það og harla fráleitt, að þm. gengju þá þegar svo frá þessu afarflókna og afdrifaríka máli, að hjer sæti „steingert fólk með bundnar tungur“, þegar þingið settist aftur á rökstóla og ætti fyrst að fara að ræða málið í heyranda hljóði fyrir þjóðinni.
Af þessum ástæðum neituðum við að eiga nokkurn þátt í atkvgr. á þeim fundi, og jeg tók það skýrt og skorinort fram, að eigi mætti „telja mig með meiri hlutanum“, því að í sjálfu sjer væri jeg þegar reiðubúinn að greiða atkv. gegn frumvarpinu. Bað jeg og hæstv. forseta sameinaðs þings, að láta þess getið við nefndarmennina dönsku, hvers vegna jeg tæki ekki þátt í atkvgr., til þess að þeir væru að engu blektir um fylgi mitt við frumvarpið, og vildi jeg hafa alls óbundnar hendur. Þó bauð jeg forseta að greiða þegar atkv. á móti, ef honum þætti þessi greinargerð mín ekki nógu glögg, en hann neitaði því, og mun hann kannast við, að þetta er alt rjett hermt, er jeg hefi hjer sagt. — Það var einnig kunnugt, að jeg hafði greitt atkvæði gegn frv. í þingflokknum, ásamt öðrum þingmanni, og yfir höfuð var stjórninni svo kunnugt um skoðanir flestra þingmanna, að einsætt var, að hún mátti vel þar við hlíta þangað til málið var tekið til meðferðar á löglegan hátt. En henni hefir þótt tryggara að binda hendur manna fyrirfram.
Jeg hefi sjeð það í blöðum hjer, að þau virtu svo, að því hefðum við ekki greitt atkv. á pukurfundinum, að við hefðum þá ekki þóst vera búnir að átta okkur á málinu. Jeg hefi ekki hirt um að leiðrjetta þetta, en úr því að svipaður misskilningur kom nú fram í ræðu hv. 6. landsk. þm. (G. B.), þá vildi jeg gera þessa leiðrjetting og læt það atriði útrætt.
Mikil var samúðin og heitur kærleikurinn innan meiri hlutans fyrstu daga þingsins, meðan hann var að deila við minni hlutann um rjettindi Íslands. Þá var þar alt „ein hjörð og einn hirðir“. En nú þykir mjer skjótlega hafa skipast veður í lofti, og sannast áþreifanlega orð hins forna spekings, að:
„Eldi heitari
brennr með illum vinum
friðr fimm daga.
En þá slokknar, er enn sjetti kemr,
ok versnar allr vinskapr.“
Það er sjaldan, að spakmæli hefir ræst jafnbókstaflega. Rjetta 5 daga lágu þeir í faðmlögum, allir meiri hlutamenn, meðan afgreidd voru sambandslögin hjer í deildinni, en á 6. deginum rigndi vantraustsyfirlýsingunum niður sem skæðadrífu yfir þingið. Það er mjög einkennilegt, hve þetta forna spakmæli hefir ræst bókstaflega á sambandslagavinunum. En annað er töluvert athugavert, sem sje það, að þessi deila sýnir hugarfarið, sem gengið er með að þessu máli, því að ef unnið er saman að stærstu og helgustu málunum, þá eru allar smærri deilur látnar niður falla, og allur urgur er horfinn. Má nokkuð ráða í, hve djúpt þetta mál stendur í hugum þingmanna, er þeir hafa ekki fyr slept síðasta orðinu um þetta stórmál en þeir eru komnir í slíka snerru og sundrung sem nú. „Oft hefir Ingunn illa látið, en aldrei sem í kvöld“, er 4 þingflokkar og einir 8–9 smáflokkar sitja á svikráðum hver við annan. Þetta hefði þó getað leynt sjer þar til lokið var samþykt þessa „helga“ máls, sem átti að sameina alla krafta Íslendinga — og Dana líka.
Menn munu nú geta skilið, að mjer er nokkuð sama, hvort rökstudda dagskráin nær fram að ganga eða eitthvað annað. Hjer munu þeir einir við eigast, að jeg mun láta mjer í ljettu rúmi liggja, hverjir sigri eiga að hrósa. Skal jeg því eigi trufla þá mjög í þeim fagra leik.