07.09.1918
Efri deild: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (42)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Halldór Steinsson:

Jeg vil að eins gera örstutta athugasemd við ummæli hæstv. forsætisráðherra út af gangi þeim, er hann vill láta mál þetta sæta.

Jeg vera að segja það, að mjer finst það ekki viðkunnanlegur hraði, sem hafður var á málinu í háttv. Nd. Jeg vil strax taka það fram, til þess að fyrirbyggja allan misskilning, að þetta kemur alls ekki af því, að jeg sje ekki búinn að átta mig á málinu, eða reiðubúinn til að greiða atkvæði, heldur af því að nú horfir málið öðruvísi við en á síðasta þingi. Þá var enginn minni hluti í málinu. Tveir háttv. þm. greiddu ekki atkvæði um frv., en þar fyrir var ekki víst, að þeir yrðu á móti því. nú hafa þeir tekið upp ákveðna mótstöðu gegn frv., og er þá ekki nema sjálfsögð kurteisi af meiri hlutanum að leyfa þeim nægan tíma til að endurskoða frv. og »kritisera« það. Jeg er því eindreginn á móti því að hraða málinu, nema að minni hlutinn sætti sig við það.

Annars er mjer óskiljanlegt, hvern áhuga stjórnin hefir nú á því að hraða þinginu, eftir framkomu hennar á síðasta þingi, en hverjar ástæður stjórnin hefir nú til þess að vilja losna sem fyrst við þm., það má henni sjálfri vera best kunnugt.