07.09.1918
Efri deild: 4. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (52)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Frsm. minni hl. (Magnús Torfason):

Jeg get lýst yfir því, að vegna þess, að atkv. háttv. þm. um málið munu fyrirfram ákveðin, þá tel jeg umr. þýðingarminni og minna gera til, þátt málinu sje flytt.

Nál. mínu var útbýtt í dag við 1. umr., og ef háttv. fram. meiri hl. (Jóh. Jóh.) hefir haft tíma til þess að kynna sjer það, þá ætti jeg ekki að vera varbúinn.

En jeg áskil mjer það, að málið verði ekki tekið til 3. umr. að mjer óviðbúnum, og sjerstaklega ef framhaldsnál. kemur frá meiri hl. Þá vil jeg hafa tíma til líka að koma með framhaldsnál.