07.09.1918
Efri deild: 4. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Fjármálaráðherra (S. E.):

Eins og kunnugt er, hefir mál þetta sætt mótspyrnu tveggja flokksbræðra minna, hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) og háttv. þm. Ísaf. (M. T.), og þótt ekki sje um fleiri að ræða, þá hefir þó mótstöðunnar gætt töluvert, sem búast mátti við, þar sem um svo mikla kappsmenn var að ræða.

Jeg veit, að háttv. frsm. meiri hl. (Jóh. Jóh.) mun fara ítarlega út í einstök atriði þessa máls, en jeg mun að eins tala um það í stórum dráttum. Mun jeg gera grein fyrir aðalkostum og göllum frv., frá mínu sjónarmiði, og sýna fram á, hver rök liggi að því, að jeg er málinu eindregið fylgjandi.

Árásum á frv. hefir aðallega verið beint gegn 6 gr., og hefir rjettilega verið tekið fram, að jafnrjetti það, sem þar er gert ráð fyrir, sje í raun og veru misrjetti, þar sem sambandsþjóð vor er stærri en vjer og auðsuppsprettur meiri, sem Danir gætu notfært sjer hjer en vjer þar.

Þótt þetta sje rjett, þá get jeg þó ekki fallist á, að hætta sje afarstór fyrir innrás Dana í landið og auknum áhrifum þeirra við það. Því að þótt hlið standi opin fyrir þá í 6. gr. til þess að fara inn um, þá sje jeg ekki betur, ef beita ætti oss yfirgangi, en að lagalega sje hægt að setja slagbrand í hliðið og verja oss gegn yfirganginum, því að bæði er um það, að hægt er að setja búsetu hjer sem skilyrði fyrir atvinnurekstri o. fl., og yfirleitt leiðir ekki meira af jafnrjettinu en það, að Danir sæta þó eigi betri kjörum en Íslendingar erlendis, sem fæddir eru hjer, og ef vjer takmörkum rjett þeirra hjer, þá takmarkast rjettur Dananna á sama hátt.

Auk þess er sá rjettur, sem heimilaður er í 6. gr., ekki meiri en sá, er Danir hafa hingað til hjer á landi, og gallinn á frv. er því sá, að vjer höfum ekki í 6. gr. lokað því hliði, sem áður var, en hins vegar höfum vjer ekki opnað nýtt hlið.

En hægra ætti þó að vera að standa í hliðinu eftir að fengin er viðurkenning fyrir fullveldi landsins heldur en áður.

Jeg lít því svo á, að úr þessum galla sje of mikið gert, enda er hann framlenging á því ástandi, sem nú er.

Um 7. gr., ákvæðin um utanríkismálin, hefir því verið haldið fram, að tími sá væri alllangur, sem Dönum er falið að fara með þau mál, og um það er jeg sammála.

En samkvæmt frv. er það hvorttveggja, að umboðið er takmarkað, þannig, að vjer undir vissum kringumstæðum getum farið með sum málin, en auk þess er samþykki vort áskilið til þess að binda Ísland, og ef vjer höfum vel valinn mann til þess að gæta rjettar vors í utanríkisráðuneytinu danska, þá eigum vjer yfir höfuð að geta ráðið miklu um þessi mál.

En í þessum tveim greinum eru aðalmeinbugirnir á frv., en eftir minni skoðun vega þeir lítið á móti kostum frumvarpsins.

Líti maður á 1. gr. frv., þá er Ísland þar berum orðum viðurkent frjálst og fullvalda ríki.

En einmitt í þessari viðurkenningu eru óskir vorar að rætast. Þarna er markið, sem barist er að. Og hjer er ekki um orðin tóm að ræða, því að aðrar greinar frv. eru í fullu samræmi við þessa gr., og engin ákvörðun í neinni greininni, sem dragi úr þessari viðurkenningu.

Jafnvel 6. og 7. gr., gallagripirnir, styðja þessa fullveldisviðurkenningu l. gr. Samkvæmt 6. gr. hefir Ísland sjerstakan ótvíræðan ríkisborgararjett, og samkvæmt 7. gr. er Dönum falið að fara með utanríkiamál Íslands í umboði þess. En umboðið er vitanlega gefið af fullveldi Íslands, því að án þess væri umboðið meiningarlaust.

Auk þess bera aðrar gr. frv. fullveldismörkin á sjer, t. d. 17. gr., þar sem í er ákvæði um, hvernig skera skuli úr ágreiningi, er verða kunni um skilning sambandslaganna. Er þar ákveðið, að oddamaðurinn skuli valinn af Norðmönnum eða Svíum. Hjer er því ljóst, að um hreint þjóðrjettarsamband er að ræða.

Þá eru fullveldismerkin ljós í 18. gr., þar sem veittur er rjettur til einhliða að segja upp samningunum.

Því hefir þá verið haldið fram, að atkvæðafjöldi væri þar heimtaður svo mikill, að örðugleikarnir á, að segja samningnum upp væru svo miklir, að hjer væri um pappírsákvæði að ræða.

En það get jeg ekki fallist á, þar sem það er á valdi Íslendinga, hvernig þeir haga atkvæðagreiðslunni, og það ætti því að vera í lófa lagið að hafa hana sem greiðasta; mætti jafnvel koma henni svo fyrir, að allir gætu greitt atkvæði, og ekkert væri heldur á móti því að gera atkvæðagreiðsluna opinbera, en þá hygg jeg, að margur dignaði við að greiða atkvæði gegn samningsslitum, ef almennur áhugi væri vakinn fyrir þeim, og áhuginn ætti rót sína að rekja til þess, að Danir leituðust við að beita oss yfirgangi.

Og það mega allir vita, að ef þjóðin finnur til þess, að beita á hana misrjetti, þá vaknar hún til framkvæmda í þeim sökum. Og Íslendingum er þá dugur horfinn að miklum mun, ef þeir nota sjer ekki rjett þennan.

Þetta er því »praktiskur« rjettur og er einn votturinn um fullveldi Íslands og þó ekki sá óskýrasti, enda þá jafnrjettið fallið burt með samningsslitinu.

En sje rjettur þessi notaður, þá er öllum ljóst, að að eins er eftir hreint konungssamband, en það er einmitt markið, sem allir flokkar hafa verið samhuga um að vinna að.

En þá lít jeg svo á, að eðli sambandsins verði að miðast við 18. gr. því að það breytir ekki eðli sambandsins, þótt Ísland veiti Dönum takmarkað umboð til þess að fara með utanríkismálin fyrir sína hönd.

Samband þetta, eins og það verður strax eftir að samningurinn kemst í gildi, er því hreint konungssamband milli Danmerkur og Íslands.

Þá er 19. gr. frv., og ber hún ekki síður á sjer fullveldismark, skýrt og ótvírætt. Samkvæmt henni er Ísland hlutlaust. Það nær því ekki til Íslands, þótt Danmörk lendi í ófriði.

En þetta ákvæði vil jeg leggja áherslu á. Ástandið, sem nú er í heiminum, gerir það að verkum, að einmitt þetta ákvæði samninganna vera um við að meta mjög mikils.

Og jeg er þeim fullkomlega sammála, sem einmitt vegna þessa ákvæðis vilja hraða málinu.

Það liggur í augum uppi, hversu mikils virði það er, nú þegar alt logar í ófriðareldinum, að fá sem fyrst fulla vissu fyrir því, að við lendum ekki í stríðinu, þótt Danir geri það.

Í 6. gr. er ákvæðið um dansk íslenska ráðgjafarnefnd, og mundi jeg ekki hafa saknað þess ákvæðis, þótt ekki hefði verið í frv.

En ekki sje jeg neina hættu á atriði þessu.

Jeg er ekki í vafa um það, að nefnd þessi hefir lítill áhrif, og færi svo, að hún ynni í óþjóðlega átt fyrir okkur Íslendinga, þá mundi þing og stjórn meta störf hennar að vettugi. Enda fer svo altaf, að löggjöfin hlýtur að laga sig eftir lífi og þörf þjóðanna, en nokkrir menn í nefnd mundu ekki geta breytt eðlilegri framþróun löggjafarinnar.

Jeg legg aðaláhersluna á fullveldisviðurkenninguna, sem alstaðar kemur fram í frv. Í upphafi hafði jeg litlar vonir um, að hinir dönsku samningamenn mundu ganga svo langt, að jeg gæti fallist á tilboð þeirra. En jeg áleit rjett samt, að reynt yrði samkomulag, því að Ísland stæði þá betur að vígi eftir sáttaumleitanir, ef látið yrði til skarar skríða.

En hingað til hefir altaf strandað á dönsku ríkiseiningakreddunni, sem vjer aldrei höfum viðurkent. En nú er sú kredda horfin.

Eftir samningunum er það fyllilega viðurkent, að ríkin eru tvö. En það er markið, sem barist var að.

Jeg þykist því nú hafa fært fullar ástæður fyrir því, hvers vegna jeg er samningunum fylgjandi. Jeg veit, að það hefir engin áhrif á niðurstöðu málsins, þótt mikið sje um það rætt. En mjer þótti þó rjett að gera grein fyrir skoðun minni á samningnum.

Mjer þykir leitt, að flokksbræður mínir tveir skuli hjer ekki vera á sama máli og jeg. En svo mætti þó fara, að barátta sú, er þeir nú hefja, yrði til þess, að Íslendingar vaki og standi fast í hliði því, sem ekki er lokað með 6. gr. frv. því þótt fullvalda ríki sje, er því full þörf á að gæta sjálfstæðis síns og hafa vakandi auga á því, sem fram fer, og mundi Íslendingum þess einnig þörf, þótt ákvæði 6. gr. væru öðruvísi.

Vil jeg svo að endingu lýsa yfir því, að jeg mun óhikað greiða frv. atkvæði mitt og hvetja flokksbræður mína um land alt til að gera hið sama.