07.09.1918
Efri deild: 4. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (55)
1. mál, dansk-íslensk sambandslög
Frsm. meiri hl. (Jóhannes Jóhannesson):
Nál. meiri hl. hafa allir háttv. þm. haft tíma til að kynna sjer. Málið hefir verið rætt mjög ákaft og ítarlega í háttv. Nd., og háttv. þm. Ed. hlustað á þær umræður. Það væri því ekki til annars en þreyta háttv. þingdm. á endurtekningum og lengja þingtíðindin með því sama, ef jeg færi nú að lýsa frv. þessu nánar eða fara út í einstakar greinar þess. Get jeg látið mjer nægja að vísa í því efni til nál. meiri hl. og umræðnanna um málið í háttv. Nd., sem prentaðar verða í þingtíðindunum á undan umræðunum í þessari háttv. deild, en háttv. þingdm. hafa hlýtt á.
Það einasta, sem er nýtt í málinu og ekki þrautrætt, er nál. háttv. þm. Ísaf. (M. T.), sem útbýtt var í dag hjer í deildinni. Við það vildi jeg leyfa mjer að gera fáeinar athugasemdir, en verð að játa, að jeg hefi haft nauman tíma til að athuga það, svo að athugasemdir mínar geta ekki orðið eins ítarlegar og vel fram fluttar og jeg hefði viljað.
Áður en jeg sný mjer að nál. háttv. þm. Ísaf. (M. T.) vil jeg gera þá athugasemd, að mál það, sem hjer liggur fyrir, er eiginlegs eðlis og frábrugðið öðrum lagafrv., þótt það kalli sig svo.
Í raun og veru er það sáttmáli eða samningur milli tveggja jafnrjetthárra og fullvalda ríkja, sem Alþingi Íslands og stjórn og fulltrúar Ríkisþings Dana og stjórnar hafa gert með sjer, eftir ítarlegar samningatilraunir, og öðlast gildi, er hann er formlega samþyktur af Alþingi og meiri hluti mættra íslenskra alþingiskjósenda hefir greitt honum jákvæði sitt við leynilega atkvæðagreiðslu, Ríkisþing Dana samþykt hann og hinn sameiginlegi konungur vor og Dana staðfest hann.
Það er því sá mikli mismunur á þessu frv. og öðrum lagafrv., að Alþingi getur ekki breytt þessu frv. að neinu leyti, nema eiga það á hættu, að allar samkomulagsumleitanir verði að engu og alt samkomulagið fari í mola.
Af þessu eðli frv. þessa leiðir það og, að það er ekki að öllu leyti eins og vjer helst hefðum óskað, og að vjer íslensku nefndarmennirnir myndum hafa gert það nokkuð öðruvísi úr garði, ef vjer hefðum verið einráðir og ekkert tillit þurft að taka til annara.
En svo er aldrei um samninga, og síst er reglan sú, að sá samningsaðilinn, sem minni máttar er og á minna undir sjer, geti einn ráðið innihaldi samningsins.
Þetta verður að hafa fyrir augum, þegar frv. þetta er athugað og metið, og þá verður að gera upp þann reikning, hvort kostirnir, sem það færir oss, sjeu eigi svo miklir, að sjálfsagt sje að samþykkja það, þótt einhverjir agnúar fylgi, í sumra augum meiri, í annara minni.
Það var þetta eðli þessa frv., sem gerði það að verkum, að fella varð allar brtt. háttv. þm. N. Þ. (B. Sv.) í Nd., og er því til fyrirstöðu, að nokkur af brtt. háttv. þm. Ísaf. (M. T.) geti orðið sampykt í þessari deild.
Þá vil jeg snúa mjer að nál. háttv. þm. Ísaf. (M. T.), á þgskj. 5.
Segir hann (M. T.) þar á 1. síðu, að vjer Íslendingar höfum haldið því fram, að Ísland væri að rjettum lögum fullvalda ríki í einberu konungssambandi við Danmörku, og hafi sú skoðun fengið æ fleiri formælendur, bæði meðal erlendra fræðimanna og bestu manna sambandsþjóðar vorrar, Dana.
Jeg neita því ekki, að slíku hafi verið haldið fram af oss Íslendingum, en hitt var mjer ókunnugt um, að bestu menn Dana fylli þann flokk. Þætti mjer fróðlegt að heyra, hverjir þeir menn eru og á hverju háttv. þm. (M. T.) byggir þessi ummæli sín.
Þá segir hann (M. T.), að fullvalda ríki geti afsalað öðru ríki fullveldi sínu, og er það að vísu alveg rjett, en ekkert er nýtt í þeirri kenningu.
Jeg býst við, að fá sjeu þau ríki, sem sjeu algerlega fullráð gerða sinna; flest munu vera bundin öðrum ríkjum með einhverjum samningum, sem að meira eða minna leyti takmarka umráðarjett þeirra yfir eigin málum.
Þá segir hann (M. T.), að okkur sje þarflaust að samþykkja önnur ákvæði en þau, er eigi rót sína í þörf vorri, hagsmunum og aðstöðu allri.
En jeg vil benda á það, að svo fremi sem ná á einhverjum samningum, er við því búið, að maður verði að ganga að einhverskonar skilyrðum.
Og hjer er ekki gengið að öðrum skilyrðum en þeim, sem nauðsynleg eru til þess, að samningar náist.
Sje oss nauðsynlegt að frá viðurkent fullveldi vort og að hlutleysi vort sje auglýst öðrum þjóðum, þá eiga þau ákvæði rót sína að rekja í þörf vorri, sem samþykkja verður til þess að þetta fáist.
Það er því alls ekki rjett að tala hjer um gjöf til Dana.
Vil jeg um það atriði leyfa mjer að vísa til nál. meiri hlutans, þar sem sýnt er fram á, að ekki sje auðið að komast að betri kjörum en hjer eru í boði.
Þá eru ummæli háttv. þm. (M. T.) um 6. gr. frv., sem jeg vil leyfa mjer að nefna kórvilla.
Hann tilfærir rjett fyrstu málsgrein hennar, sem svo hljóðar:
»Danskir ríkisborgarar njóta að öllu leyti sama rjettar á Íslandi sem íslenskir ríkisborgarar fæddir þar, og gagnkvæmt«.
En í útlistuninni fer hann með ákvæði þetta eins og þar stæði »meiri rjettar á Íslandi«, í staðinn fyrir »sama rjettar« o. s. frv.
Segir hann, að Danir geti veitt sjer ríkisborgararjett hjer með lagagildi, og fer rjettmæti þeirra orða eftir því, hvern skilning háttv. þm. (M. T.) leggur í orðið »lagagildi«. (M. T.: Verkanir). Með þeim skilningi er þetta rjett.
Þá kemur merkileg setning, prentuð með stóru letri og hljóðar svo: »Hins vegar er dönskum borgurum, Dönum, Færeyingum og Grænlendingum, án tillita til búsetu, óskorað veittur sami rjettur til afnytja á öllum gæðum þessa lands, ám og afllindum, sem börnum þessa landa« o. s. frv.
En ekki veit jeg hvaðan háttv. þm. (M. T.) hefir þessa visku, eða hvers vegna hann skýtur inn orðunum »án tillits til búsetu«; þau eða samskonar orð standa að eins í 3. málsgrein 6. gr. við fiskiveiðarjettinn í landhelgi, og eiga að eins við hann.
Dönum er alls ekki veittur meiri rjettur en Íslendingum, og allar hinar sömu takmarkanir, sem settar eru eða settar verða fyrir rjettindaneyslu Íslendinga sjálfra, gilda þá. Búsetu er að eins eigi hægt að setja sem skorður fyrir fiskiveiðarjetti Dana í íslenskri landhelgi meðan 6. gr. er ekki sagt upp.
Þetta ætti öllum að vera ljóst, þar sem 1. setningin felur í sjer það ákvæði, að Danir njóti á Íslandi sama rjettar, en ekki meiri en Íslendingar, og þar sem Íslendingum er gert það að skilyrði að vera búsettir í landinu til þess að eiga fossa og nota afllindir landsins, þá gilda auðvitað þau skilyrði fyrir Dani líka.
Mig furðar því stórlega á því, að hv. þm. Ísaf. (M. T.) skuli leyfa sjer að koma með slíkar lögskýringar sem þessar.
Í 6. gr., 3. málsgr., stendur einnig, að bæði danskir og íslenskir ríkisborgarar hafi að jöfnu, hvar sem þeir eru búsettir, frjálsa heimild til fiskiveiða innan landhelgi hvors ríkis, og sannar þessi undantekning regluna.
En þetta er alt ítarlega útlistað í athugasemdum meiri hlutans við 6. gr., en háttv. þm. Ísaf. (M. T.) hefir að líkindum ekki verið búinn að lesa það er hann skrifaði sitt nál.
En jeg skal samt láta nægja að vísa til nál. okkar um þetta atriði.
En af þessari kórvillu leiða aðrar fleiri villur.
Síðar á sömu bls. stendur, að Danir megi hagnýta sjer landið eftir bestu vild og getu um næstu 25 ár, sem sameignarmenn vorir að landinu. Þetta nær engri átt.
Síðar á sömu bls. stendur enn fremur, að hjer sje lagt inn á nýja hættubraut, þar sem verið sje að veita Dönum meiri rjettindi en þeir hafi áður haft hjer í landi. En slíkt er algerlega rangt. Danir hafa haft hjer atvinnurjett, og þeim er hvergi með samningum þessum aukinn rjettur.
Á bls. 3 í nál. minni hlutans segir, að búsetuskilyrðin, sem voru í frv. 1908, sjeu hjer þurkuð út. En það er síður en svo, eins og þegar hefir verið margsýnt fram á.
Þá segir enn svo, að Danir hafi áskilið sjer að freka ekki landhelgisgæsluna úr því sem verið hefir, og vill háttv. þm. (M. T.) telja það verra en var 1908. Þar er þeim þó ekki gert að skyldu að auka hana, og okkur sjálfum ekki leyft það. En nú höfum vjer heimild til þess og megum, meira að segja, taka hana alla í okkar hendur, þegar oss sýnist.
Þá mintist háttv. þm. (M. T.) á það, að Danir sjeu 33 sinnum mannfleiri en við, nær 100 sinnum auðugri, og muni því að litlum notum koma fyrir okkur jafnrjetti Dana og Íslendinga í Danmörku, þar sem svo eru ólíkar aðstæður allar.
En þar til er því að svara, að land, sem er 33 sinnum mannfleira og 100 sinnum auðugra, það hlýtur að verja miklu meira fje til almenningsþarfa en hitt, og munu því þeir 7– 800 Íslendingar, sem eiga heima í Danmörku, njóta stórra hlunninda af því að eiga þar sama rjett og Danir sjálfir. Þetta atriði er því alls ekki þýðingarlaust. Hins vegar eru ekki eins margir Danir búsettir á Íslandi og Íslendingar í Danmörku.
Þá minnist háttv. þm. (M. T.) á jafnrjetti danskra og íslenskra skipa hjer við land og í Danmörku. Kveður hann það vera Dönum í hag, vegna þess, að fleiri dönsk skip sigli hingað en íslensk skip til Danmerkur.
Það kann að vera rjett, að svo sje ástatt nú, en þar með er ekki sagt, að svo verði til lengdar. Skipastóll okkar er óðum að aukast, svo að ekki er víst, að langt líði áður en þau verða eins mörg eða fleiri íslensku skipin, sem til Danmerkur koma, og hin dönsku, sem koma til Íslands.
Auk þess er margur varningur fluttur hingað frá Danmörku á skipum annara þjóða en Dana. En auðvitað er það von okkar allra, að sem flest verði flutt hingað á íslenskum skipum, þegar fram í sækir, og að þess verði ekki langt að bíða.
Enn fremur segir háttv. þm. (M. T.), að önnur ríki muni sennilega krefjast þess að fá eigi verri rjett hjer á landi en Danir. En við slíku er ekki annað að gera en vera á verði og neita um þann rjett, nema annar rjettur jafngóður eða betri sje látinn í tje á móti, og ætti oss að vera treystandi til þess.
Þá segir háttv. þm. (M. T.) svo: »Enn er þess að gæta, að jafnrjetti án búsetuskilyrðis leiðir til leppmensku«.
En jeg hjelt, að búsetuskilyrði myndu frekar leiða til leppmensku. Þetta er er því öfugt við það, sem háttv. þm. (M. T.) vill vera láta.
Fjárhagsatriðið fer hv. þm. (M. T.) ljett yfir, og er hann þar að miklu leyti á sömu skoðun og við íslensku nefndarmennirnir, sem töldum það ekki neitt aðalatriði.
Þó heldur hann því fram, að miljónin í Kaupmannahöfn verði fult eins í þágu Dana og okkar.
Þar get jeg ekki verið á sömu skoðun, því að þar sem svo er fyrir mælt, að henni skuli varið til þess að styðja íslenskar vísindarannsóknir og styrkja íslenska námsmenn, þá hlýtur það frekar að vera í okkar hag en Dana.
Þá eru uppsagnarskilyrðin, og þykir háttv. þm. (M. T.) þau of þung.
En í nál. meiri hlutans er að þeim vikið, og gæti jeg látið mjer nægja að vísa til þess. Er þar sýnt fram á, að þau eru alls ekki eins óaðgengileg fyrir okkur eins og háttv. þm. (M. T.) heldur fram.
Atkvæðagreiðslunni getum við hagað eftir vild. Við getum farið inn á heimilin og sótt atkvæðin. Og við gætum látið atkvæðagreiðsluna fara fram fleiri daga í röð á sömu stöðum, svo að menn gætu skifst á um að fara að heiman til að greiða atkv.
Háttv. þm. (M. T.) staðhæfir það, að auðir selðlar teljist ekki sem greitt atkvæði. En auðvitað er það á okkar valdi að ákveða um það sem okkur sýnist.
Eftir skilyrðum þeim, er samningurinn setur, þarf 56,25% atkvæðisbærra manna með sambandsslitum til þess, að þeim verði á komið.
Þar sem um svo þýðingarmið mál er að ræða sem það hvort þjóðin haldi afram að vera í sambandi við Danmörku eða ekki, þá tel jeg það ekki nema rjett, að tryggilega sje um búið, svo ekki verði flanað að slíkri ákvörðun.
Munurinn á tölunum í brtt. og varatill, og í frv. er ekki svo ýkjamikill. Í stað ¾ komi 3/5 eða til vara 2/3. Munurinn er svo lítilll, að auðsætt virðist, að háttv. minni hl. (M. T.) ætti að geta felt sig við ákvæði frv. eins og það er.
Á bls. 5 í nál. minni hl. (M. T.) stendur:
»Í samninginn vantar ákvæði um, hve mikinn meiri hluta þurfi til að samþykkja samninginn, bæði hjá þingi og þjóð«.
Það er að vísu rjett, að í samningnum sjálfum er ekkert slíkt ákvæði. En ákvæðið vantar þar fyrir ekki. Skal auðvitað fara eftir reglum þingskapanna að því er til Alþingis kemur, og þarf þá einfaldan meiri hluta þess til samþykkis, og sama gildir við þjóðaratkvæðið, eftir almennum reglum.
Á sömu bls. stendur: »Alþjóð manna er sárókunnugt um málið«, og: »Yfir höfuð er það misráðið að hroða slíku máli af á skömmum tíma«. Þetta var hrakið í háttv. neðri deild, og hefði ekki átt að þurfa að endurtaka hjer. Ekkert mál er kjósendum tiltölulega jafnkunnugt og sambandsmálið. Menn komust vel inn í það 1908 og 1909, og síðan hefir áhuginn á því verið vakandi, enda málið altaf síðan verið á döfinni. Samningum þessum var lokið 20. júlí, og voru þeir birtir alþjóð fyrir mánaðamót. Þjóðin þarf eigi annað en að bera þetta frv. saman við frv. frv 1908 og 1909, sem hún þekkir út og inn, til að átta sig á þeim, og hefir jafnlangan tíma til athugunar og 1908. Það er því ástæðulaust með öllu að tala um, að þing og þjóð hafi ekki nægan tíma.
Á sömu bls. er enn fremur talað um, að ekki þurfi að semja nú til þess, að gangskör verði gerð að því að fá Dani til að lýsa hlutleysi voru, »og ætti það vissulega að vera auðsótt mál«, þótt ekki yrði af samningum. En ef Danir lýstu yfir hlutleysi voru »fyrir vora hönd« — eins og í nál. stendur — þá lægi í því viðurkenning frá þeirra hálfu fyrir fullveldi voru. En hingað til hafa Danir verið mjög ófúsir á að viðurkenna fullveldi Íslands, og á því háttv. minni hl. (M. T.) eftir að sanna, að þetta yrði svo »auðsótt mál«. Hygg jeg, að honum muni veitast það örðugt.
Þá endar nál. minni hl. (M. T.) á þessum orðum: »Að lokum skal yfir því lýst, að samningur þessi hefði mátt verða mun betri í okkar garð, ef rjett og sæmilega hefði verið á málinu haldið af vorri hálfu«, þ. e. a. s. samningsmannanna íslensku; öðruvísi verða þessi orð ekki skilin. Á því á jeg enga sök, að háttv. þm. Ísaf. (M. T.) varð ekki einn af þessum fjórum, svo að hann gæti hindrað alla ósæmilega meðferð á málinu. Það verður hann að eiga við sína eigin flokksmenn, því að eins og kunnugt er, völdu hinir fjórir flokkar hver sinn manninn í samninganefndina. En það álit mitt verð jeg þó að láta í ljós, að flokkur hans hefði ekki getað valið heppilegri mann í samninganefndina innan síns flokka en raun varð á.
Brtt. háttv. minni hl. (M. T.) þýðir ekki að ræða. Ef nokkrar brtt. verða samþyktar, á þing og þjóð það á hættu, að alt fari í mola. Jeg býst við, að þeir verði fáir, sem vilji leggja þetta á hættu. Örfá orð skal jeg þó hafa um brtt.
1. brtt. getur háttv. flm. (M. T.) varla verið ánægður með, eftir hans eigin orðum að dæma. Er að eins búsetuskilyrði bætt inn í. En eftir skilningi meiri hl. á 6. gr. má þegar á næsta þingi setja búsetuskilyrði fyrir öllum rjettindum, öðrum en fiskiveiðarjettinum. Frá sjónarmiði háttv. þm. Ísaf. (M. T.) kemur búsetuakilyriðið ekki að notum.
Hann er búinn að lýsa yfir því, að Danir geti flutt hingað unnvörpum og yfirbugað okkur í öllum okkar málum. Brtt. hans hamlar Dönum ekki frá að setjast að hjer, og setjist þeir að hjer, hafa þeir samkvæmt henni allan sama rjett og Íslendingar sjálfir. Brtt. þessi er því allsendis ófullnægjandi eftir kenningu háttv. flm. (M. T.) sjálfs.
4. brtt. gæti jeg felt mig við. En atkvæði get jeg ekki greitt með henni, þar sem hún raskar samningnum, þótt í litlu sje.
Um 5. og 6. brtt. læt jeg nægja að vísa til umræðnanna í háttv. neðri deild.