07.09.1918
Efri deild: 4. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í B-deild Alþingistíðinda. (63)
1. mál, dansk-íslensk sambandslög
Forseti:
Margir háttv. þm. óska að ljúka umr. um sambandsmálið í kvöld, og hefir mjer skilist svo, sem báðir hv. frsm. sjeu því samþykkir.
Jeg vil því spyrja, hvort háttv. þm. sjeu því mótfallnir, að fundur sje settur aftur eftir stutta málhvíld, til þess að afgreiða málið, og mun jeg leita leyfis til þeirra afbrigða frá þingsköpum.