09.09.1918
Efri deild: 5. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (70)

1. mál, dansk-íslensk sambandslög

Frsm. meiri hl. (Jóhannes Jóhannesson):

Nú er þá hin langþráða stund komin, er Alþingi Íslendinga leggur sína síðustu hönd á sáttmála við sambandsþjóða vora, Dani, um það, að Ísland skuli vera viðurkent og auglýst frjálst og fullvalda ríki í konungssambandi einu við Danmörku og ævarandi hlutlaust í ófriði.

Leyfi jeg mjer fyrir hönd fullveldisnefnda beggja deilda að láta í ljós þá ósk og von, að frv. þetta fái ekki lakari undirtektir hjá þjóð vorri við atkvæðagreiðslu þá, sem um það á fram að fara hjer á landi innan skamms, en það hefir fengið hjer á Alþingi.

Það er ósk mín og von, að sáttmálinn verði samþyktur af löggjafarþingi sambandsþjóðar vorrar og hljóti staðfestingu sameiginlegs konungs vors, að hann, er hann gengur í gildi, verði vel þokkaður af báðum þjóðum, og að milli þeirra megi takast bróðurleg samvinna til ánægju og hagsmuna fyrir þær báðar.