06.09.1918
Neðri deild: 3. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

2. mál, sérstakar dómsþinghár í Skarðs- og Klofningshreppum

Flm. (Bjarni Jónsson):

Það þarf ekki að hafa langan formála fyrir þessu stutta frv. Jeg get þess að eins fyrir þá, sem lítt þekkja til þar vestra, að hreppur þessi hefir verið alt of stór til að vera einn hreppur; hann er góð þingmannaleið af einum enda á annan, og þótt þingstaðurinn væri í miðjum hreppnum, var hart á, að hægt væri að komast á dag að heiman og heim fyrir þá, sem í landi bjuggu, og enn tvísýnna fyrir eyjabúa. Þessum stóra hrepp hefir þegar verið skift í tvo hreppa, og nú óska allir íbúar beggja hreppanna, að hinni fornu þinghá verði skift í tvær þinghár með sömu takmörkum sem hinir nýju hreppar hafa fengið.

Jeg vona, að háttv. deild leyfi málinu fram að ganga án þess að nefnd sje skipuð í það; því að hjer er hvorki um vandamál nje vafamál að ræða.