07.09.1918
Neðri deild: 5. fundur, 30. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (88)
2. mál, sérstakar dómsþinghár í Skarðs- og Klofningshreppum
Flm. (Bjarni Jónsson):
Jeg skal leyfa mjer að láta þess getið, að jeg hefi í dag átt tal við sýslumann Dalasýslu um þetta mál, og var hann mjer sammála um, að mikla nauðsyn bæri til þess að samþykkja frv.