07.07.1919
Neðri deild: 3. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)

26. mál, laun embættismanna

Bjarni Jónsson:

Jeg verð að telja það gert af mikilli trygð af stjórninni að byggja þetta launafrv. á starf launamálanefndarinnar sælu, án þess að taka tillit til þeirra breytinga, er orðið hafa á öllum lífskjörnu. Jeg hefði kosið, að stjórnin hefði bygt á þörfinni eins og hún er nú.

Eins og allir vita, hafa starfsmenn landsins minni laun og verri aðbúnað en starfsmenn annara vinnuveitenda, svo það er orðið að orðtaki haft hjá útgerðarmönnum, er þá vantar menn í síldarvinnu: „Ættum við ekki að fá nokkra lærða menn þeir eru kaupódýrari en aðrir“. Þetta er í sjálfu sjer ekki nema eðlilegt, þar sem vinnuveitandinn greiðir kaupgjald embættismanna eftir verðmæli, sem er mjög breytilegur, í stað þess að greiða það eftir verðmæli, sem fer eftir lífsþörfum manna. Þessi verðmælir er landaurareikningurinn íslenski. Því að þegar það hefir nú sýnt sig, að gjaldeyrir landsins er svikinn, — þó ekki viljandi — svo sviknu, að það þarf að fjórfalda hann ef rjett á að vera, þá fer stjórnin fram á það, að þingið bæti hann ekki upp nema að einum þriðja. Það er því engin furða, þó að sókst sje eftir lærðum mönnum í síldarvinnu, og lærðir menn verði að fara í síldarvinnu. Hvers vegna tók stjórnin ekki öll launin með til margföldunar með verðlagstölunni, svo að embættismenn fengju nú jafnmikið tiltölulega og á undan stríðinu? Það er undarlegt, að menn skuli alveg hafa gleymt landaurareikningnum, sem hjer hefir verið notaður um þúsund ár.

Annars stóð jeg ekki upp til þess eingöngu að benda mönnum á þetta, heldur til þess að vekja athygli þeirrar nefndar, sem kosin verður, á því, að þegar útgjöld landssjóðs fjórfaldast, án þess að nokkuð komi inn, þá er fjárhagnum hætta búin. En sú hætta er ástæðulaus, því hvers vegna má ekki taka tollana eftir landaurareikningi, til þess að vega uppá móti útgjöldunum? Þá mundi það jafnvægi komast á, er heillavænlegt væri, og þyrftu menn þá ekki á hverju þingi að brjóta heilann um launalög og landssjóðstekjur. Jeg vil því leiða athygli nefndarinnar, sem kosin verður, og sömuleiðis fjárhagsnefndar, að því, að gera þær breytingar, að bæði tekjur og gjöld landssjóðs verði reiknuð eftir landaurum. Því það sannast, að sú leiðin verður heilladrýgst, þótt alíslensk sje. Gæti þá svo farið, að menn yrðu jafnhissa og um árið, er það frjettist, að Búlgarar ætu skyr og yrðu langlífir af. Íslendingar höfðu etið skyr frá alda öðli; en svo var það haft eftir dönskum manni, að það væri skrælingjaháttur að leggja sjer slíkt til munns. Þá hættu Íslendingjar að eta skyr, en þegar þeir svo fréttu, að Búlgarar yrðu langlífir af að eta skyr, tóku þeir skyrátið aftur upp, og varð gott af. Gæti því eins farið svo, að þessi uppgötvun um landaurareikninginn kæmi yfir Alþingi Íslendinga eins og óvænt hepni, líkt og fregnin um skyrát Búlgara yfir landsmenn, og mundi þá verða talað minna um tekjuhalla á fjárlögunum en áður.