26.08.1919
Neðri deild: 45. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (1008)

26. mál, laun embættismanna

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg skal strax geta þess, að jeg býst við, að framsaga mín í þessu máli verði síður en skyldi, og fer það að vonum, þar sem öllum má ljóst vera, að jeg ber ekki meira skyn á þetta mál en flestir aðrir.

En til þess að geta skoðað það rjettum augum og dæmt af þekkingu, þyrfti embættismann til eða mann, sem væri talsvert kunnugur á ýmsum sviðum.

Annað, sem gerir framsöguna talsvert erfiða, er það, að nefndin í þessu máli hafði talsvert sundurleitar skoðanir, og það má segja um ýms atriði málsins, að þau voru studd af mismunandi meiri hluta, og ýms atriði voru jafnvel samþ. af meiri hluta eftir því, hvernig lá á nefndinni í það og það skiftið.

En það er ekkert undarlegt, þótt skoðanir manna sjeu sundurleitar um þetta mál, því að það má segja, að síðan fyrst voru sett laun embættismanna hjer á landi, þá hafi stöðugt á einhvern hátt verið óánægja yfir þeim, annaðhvort frá hálfu embættismanna eða þjóðarinnar eða þá hvorra tveggja, og það má vera, að það sje það algengasta.

Naumast hefir nokkurt þing verið svo háð, að einhverjar raddir hafi ekki heyrst um það, hve mikil byrði þjóðinni embættismennirnir væru, og ýmsir þm. hafa skoðað sig vera sjálfkjörna talsmenn þessarar skoðunar.

Á framboðsfundum hefir það oft verið aðaltrúarjátning margra frambjóðenda, að eitt af því fyrsta, sem þyrfti að gera, væri að fækka embættismönnum, jafnvel draga úr launum þeirra og afnema eftirlaun. Og þessi skoðun var og átti að vera töluð út úr hjörtum kjósendanna.

Sparnaður á landsfje, ekki síður á þessum sviðum en öðrum, hefir verið talinn ekki það lakasta til þess að ná kjörfylgi.

Aftur á móti hefir frá hálfu embættismanna, sjerstaklega nú á síðari árum, verið umkvörtun um of lág laun. Og nú á stríðsárunum hafa, af eðlilegum ástæðum, kröfurnar orðið ákveðnari, og má segja, að nú hafi þær náð hámarki, þar sem embættismannastjettir landsins hafa bundist samtökum um það, að fylgja fram þessum kröfum í það ítrasta.

Frá þingsins hálfu hefir ýmislegt verið gert til þess að reyna að koma jöfnuði á laun embættismanna og útkljá þetta mál með sanngirni. Þannig var með konungsúrskurði 9. des. 1914 skipuð milliþinganefnd í launamálið, sem starfaði, þar til í júlí 1916, og eru skýrslur hennar allmikið verk. Till. þessarar nefndar mættu misjöfnum dómum og allhörðum frá sumum embættismönnum landsins, og áttu þó sæti í nefndinni háttstandandi embættismenn þjóðarinnar.

Og þeir dómar hafa að líkindum gert það að verkum, að ekki hefir verið lögð áhersla á að koma till. milliþinganefndarinnar í framkvæmd.

Aftur hafa frá alþýðu manna litlir dómar verið lagðir á þetta starf. En enn þá er þó sjálfsagt lifandi sú skoðun úti um land, að síst beri að hækka laun embættismanna, og þaðan af síður að skapa ný embætti. Og það sýnist eins og milliþinganefndin hafi verið snortin af þessar skoðun. En það undarlega kemur fyrir, þegar tilraun á að gera til þess að fækka embættum, að þá vilja engir missa embættismanninn.

Síðan prestaköllunum var breytt og þau sameinuð hafa komið fram ákveðnar óskir um að liða þau í sundur aftur og fjölga prestunum.

Þegar ræða var hjer nýlega um það í háttv. deild að sameina Dala- og Strandasýslur undir einn sýslumann, þá kom fram ákveðin mótstaða, og málinu var vísað til stjórnarinnar, til þess víst að fá yfirlýsingu hlutaðeigenda og láta þá ráða.

Þetta sýnir það fyrst og fremst, að það hefir aldrei verið rótgróin skoðun alþjóðar að fækka embættum. Öll mótstaða gegn embættismönnum mun hafa stafað af því í fyrsta lagi, að með launalögunum 1875 hafa laun embættismanna verið of hátt sett eftir okkar mælikvarða, og í öðru lagi af því, að embættismennirnir voru lengi talsvert fjarlægir alþýðunni. En embættisvirðingin hjelt þeim langt fyrir ofan fáfræði alþýðunnar. Ýmsir erfiðleikar, sem yfir þjóðina gengu og skildu þar eftir glögg og greinileg spor, snertu of lítið embættismennina. Þeirra aðstaða var betri. En alþýðan fann það, og hún þóttist of góð til að vinna fyrir embættismönnunum, sem væru landsómagar. Í þessum kolum hefir altaf lifað. En skoðanirnar eru nú að breytast eftir því, sem skilningur á því hefir vaxið hjá alþýðunni, að til þess að halda uppi skipulagi þjóðfjelagsins þurfi ákveðna embættismenn og starfsmenn, hefir því orðið samfara sú skoðun, að það sje metnaður í því, að láta þessa menn lifa sæmilegu lífi. Engin metnaðarþjóð, engin sæmdarþjóð vill kvelja þá, sem hún á að sjá um. En hún heimtar líka að fá dugandi menn í embættin.

Þetta er það, sem þjóðin heimtar nú.

Og hún heimtar það af því, að embættismennirnir eru að ganga úr sjer, sumir flokkar þeirra að minsta kosti. Við höfum nú fáa menn í embættum, sem nokkrir skörungar eru. Og lítið er nú um þann ljóma, sem fyr stóð af þeim mönnum. Og nú vofir sú hætta yfir, að í embættin veljist úrkastið úr mentalýð landsins.

Það er reyndar búist við því af milliþinganefndinni í launamálinu að engin hætta geti verið í því efni, þó meiri laun verði boðin annarsstaðar, vegna þess, að embættin sjeu fastar og tryggar stöður, sem sjeu teknar fram yfir valta atvinnu hjá einstökum mönnum, og altaf sýni það sig, að fjöldi sæki um hvert embætti, sem losnar.

En nú er alt annað uppi. Verkefnunum hefir fjölgað og margir framtíðarmöguleikar skapast, sem áður voru lítt þektir eða óþektir, og alstaðar má segja, að rúm sje fyrir mentaðan og duglegan mann. Af þessu leiðir það, að nú verður að setja þau laun, sem sæmileg mega teljast, og sjer nefndin ekki, eins og nál. ber með sjer, að stjórnin hafi farið hjer of frekt í sakirnar í frv. sínu, og verð jeg að skírskota til þess, sem þar er tekið fram um launahæðina.

Jeg held, að mjer sje nú óhætt að segja, að meiri hluti nefndarinnar sje ekki á móti þeirri launahækkun, sem frv. fer fram á, en hún er miðuð við það, að verðlag það, sem nú er, muni aldrei fara niður úr því, að vera 25% hærra en það var 1914

En þá varð nefndin að skera úr því, hvort þessi „normal“-laun væru sett hæfilega há. Þá kemur það fyrst til greina, að launin, sem sett voru 1875, hafa ekki hækkað fram til 1914, þrátt fyrir það, að verðlag á allri vinnu hefir breyst mjög á þeim tíma. Verkamannakaup hefir hækkað um helming, og þegar athugað er dagsverk í verðlagsskrám, hefir það hækkað upp um 30%, og er þó altaf seinfara hækkun í verðlagsskrám.

Kaupgjald alt hefir því hækkað að miklum mun. Það verður því ekki sjeð, að stjórnin hafi sett launaákvæðin of hátt, enda ganga till. nefndarinnar ekki í þá átt, að lækka þau heldur oftast að hækka.

Nefndin hefir gert æðimargar breytingar, og skal jeg nú drepa á þær flestar og gera stutta grein fyrir þeim.

Það er þá fyrst brtt. 1, við 1. gr. frv.

En hún er sett til þess að tryggja það, að ríkissjóður beri ekki viðhaldskostnað á húsum þeim, sem embættismenn hafa til ókeypis afnota, nema þar sem húsið er algerlega notað í þarfir hins opinbera.

Fyrri hluti greinarinar hljóðar svo: „Embættismaður, sem lagt er til ókeypis húsnæði, skal um viðhald íbúðar sinnar sæta sömu kjörum sem leigjendur alment.“

Samkvæmt því yrði ríkissjóður að bera ábyrgð á viðhaldi hússins, en nefndin telur það ekki rjett, nema húsið sje eingöngu notað í landsins þarfir, og vill því bæta við á eftir orðunum „ókeypis húsnæði“: „í húsi, sem að öðru leyti er notað í þarfir hins opinbera“.

Þar með er við því sjeð, að ríkissjóður greiði viðhaldskostnað á húsum, sem að einhverju leyti kynnu að vera notuð í annara þarfir.

Þá er brtt. 2. við 8. gr. frv. Sú brtt er komin frá sambandi starfsmanna ríkisins, eins og svo margar aðrar, og er hún aðallega til að stytta gr. frv. og gera ákvæðið skýrara.

Brtt. hljóðar svo: „En greiða skal hinn gjald í tryggingar- eða lífeyrissjóð embættismanna, af viðbót þeirri er hann kann að fá við laun sín eftir þessum lögum, enda fær hann lífeyri greiddan af þeirri upphæð, samkvæmt lögum um lífeyrissjóð embættismanna.“

Það var að eins um greiðsluna af þessari viðbót, sem ákveða þurfti, bar sem um hitt fer eftir gildandi lögum.

Þá er brtt. 3, við sömu gr., að aftan við hana bætist þetta: „Þá skal og talinn til þjónustuára þeirra embættismanna, sem hlut eiga að máli, sá tími, sem þeir hafa gegnt stunda- eða aukakennaraembætti við skóla ríkisins, með eigi minni stundafjölda á viku en krafist hefir verið af föstum kennurum.“

Þessi brtt. er líka frá sambandi starfsmanna ríkisins, og þótti nefndinni rjett að fallast á hana, þar sem þessir menn gegna sömu störfum og þeir, sem embætti hafa fengið, enda gildir þetta ákvæði einnig annarstaðar.

Þá er brtt. 4, við 9. gr., að í stað 500 kr. í 2. málsgr. komi 1000 kr. Eru það viðbætur við talningarfje ríkisfjehirðis. Þótti nefndinni rjett að hækka þá upphæð upp í 1000 kr., og er það líka eftir till sambands starfsmanna ríkisins.

Þá er brtt. 5, við 10. gr. frv. Nefndin fjekk tilmæli um það frá háttv. allsherjarnefnd, að taka upp í frv. laun dómara í hæstarjetti, í stað dómaranna í landsyfirrjettinum, og tók nefndin upp till. hennar og hefir engu breytt. Er það gert af því, að frv. um hæstarjett er nú að verða að lögum frá þinginu.

Þá kemur brtt. 6, við 11. gr. Sú breyting er að eins til skýringar og færir saman alla þá sýslumenn, sem líka eru bæjarfógetar. Þetta var að eins óljóst orðað í frumvarpsgreininni.

Með brtt. 7, við sömu gr., hefir nefndin felt niður Dala- og Strandasýslu, og byggist það á því, að frv. hæstv. stjórnar um sameining þeirra var felt hjer í deildinni. Með brtt. 8 eru þær aftur sundurgreindar og settar inn á sinn stað í frv.

Þá er brtt. 10, við sömu gr. Nefndinni barst erindi frá fangaverðinum um það, að gleymst hefði að taka hann upp í frv. Hefir nefndin með brtt. þessari tekið hana upp og ákveðið laun hans í samráði við hæstv. stjórn.

Þá kemur að 12. gr. frv., og hefir hún tekið miklum breytingum í nefndinni.

Fyrsta málsgr. er um laun landlæknis. Hefir nefndin lagt til að hækka byrjunarlaun hans um 1000 kr. og sömuleiðis hámarkslaun; enn fremur skrifstofufjeð um 500 kr.

Nefndin leit svo á, að hjer væri um svo erfitt embætti að ræða, að ekki veitti af hækkun þessari, og þótt skrifstofufjeð sje hækkað um 500 kr., mun það tæpast nógu hátt, því að ekki verður komist af með minna handa aðstoðarmanni; en skjöl þau, sem embættinu fylgja, eru nú orðin svo mikil, að núverandi landlæknir telur sig ekki hafa húsrúm fyrir þau lengur í sínum húsum, og gefur þá að skilja, að skrifstofufje þetta er helst til lítið, ef leigja verður hús fyrir þau. En nefndin hefir þó ekki farið lengra en þetta.

Jeg sje, að jeg hefi hlaupið yfir eina brtt. Er það brtt. 9, við 11. gr., um lögreglustjórann á Siglufirði. Honum voru ákveðin 2000 kr. laun á þinginu 1917. Nefndinni þótti það of lágt, og setur hún honum byrjunarlaun 2500 kr. og hámarkslaun 3500 kr., og er það í samræmi við önnur ákvæði.

Þá kemur brtt. 12, við 12. gr. frv., um laun læknanna, og er það önnur mesta breytingin, sem nefndin hefir gert, og ein aðalbreytingin á launahæðunum.

Eftir frv. stjórnarinnar eiga allir hjeraðslæknar að hafa 1800 kr. árslaun, en um kaup fyrir störf sín eiga þeir að fara eftir gjaldskrá, er ráðherra semur, með ráði landlæknis. Við þetta fekk nefndin brtt. frá læknafundinum, og hefir hún fallist á till. hans. Samkvæmt því er læknishjeruðum skift í flokka, og er miðað aðallega við fólksfjölda, þannig, að í fólksflestu hjeruðunum eru launin lægst; þar eru þau ákveðin 2500 kr. og miðað að við 2000 íbúa. Í öðrum flokki eru launin 3000 kr. og miðað við 1000 íbúa og þar yfir, að 2000, og í þriðja flokknum eru launin 3500 kr. og miðað við fólksfjölda innan við 1000. Alt eru þetta byrjunarlaun, sem hækka um 1000 kr. í hverjum flokki, með ákveðinni hækkun.

Það voru mjög skiftar skoðanir um þetta í nefndinni og ekki stór meiri hluti með þessari brtt. En meiri hlutinn leit svo á, að ekki væri sanngjarnt, að þjóðin ætti ekki jafnan aðgang að þessum starfsmönnum landsins sem öðrum, vegna þess, hve lágt þeir væru launaðir. Í öðru lagi kom fram svo megn ójöfnuður, að láta líf lækna að miklu leyti vera komið undir praxis þeirra. Nú standa ýms læknishjeruð auð, og er augljóst, að orsökin er sú, að læknar búast ekki við að geta lifað í þeim með þeim launakjörum, sem nú eru, þar sem aukatekjur eru litlar eða engar. Fyrir því má altaf gera ráð, að aukatekjur verði svo litlar í ýmsum læknishjeruðum, að læknar geti ekki haldist þar við, nema því að eins, að íbúar þeirra taki á sig byrðar. Þetta telur meiri hlutinn ekki rjett og hvarf því að tillögu læknafundarins um það, að taka þessa breytingu inn í launafrumvarpið.

Í sambandi við þetta má geta þess, að nefndinni barst erindi frá stjórnarráðinu, þar sem henni er sent brjef frá landlækni, er fer fram á það, að stjórnarráðið sjái einhver ráð til þess, að svo há laun verði ákveðin handa lækni í Síðulæknishjeraði, að einhver fáist til að setjast þar að. Jafnframt er þess getið, að læknirinn í Mýrdalslæknishjeraði afsegi að þjóna í Síðuhjeraði, og er því algerlega læknislaust þar. Þar sem örðug læknishjeruð eru er alls ekki að furða, þó læknislaust sje, þegar litið er til þess, að launin eru svo lág, að ómögulegt er fyrir lækni að lifa án praxis, en hún þá jafnframt oft rýr í þeim hjeruðum. Engum dylst þó, hvers virði það er að vernda líf og heilsu manna og að ekki sje rjett að gera mönnum ómögulegt að ná til læknis fyrir það eitt, að hann helst ekki við sakir lágra launa.

Þetta eru ástæðurnar fyrir því, að nefndin kom með þessa brtt.; en auðvitað hefir hún mikla útgjaldahækkun í för með sjer fyrir ríkissjóð, eða um 80 þús. kr.

Þá hefir og nefndin komið með þá brtt., að aðstoðarlæknirinn á Ísafirði skuli hafa í byrjunarlaun 2500 kr., er hækki upp í 3500 kr. Aðstoðarlæknar hafa verið tveir, annar á Ísafirði, en hinn á Akureyri. Á Akureyri er nú ekki aðstoðarlæknir lengur, og býst nefndin ekki við, að slíkur læknir verði skipaður, og ekki heldur á Ísafirði, þegar sá, sem nú er, hættir starfi þessu. Þessi hækkun er því að eins miðuð við núverandi fyrirkomulag og þótti nefndinni rjett að hafa upphæð byrjunarlaunanna jafna byrjunarlaunum hjerðslæknis, með tilliti til þess, að maður sá, er gegnir þeirri stöðu, hefir þegar gert það um langt skeið fyrir mjög lág laun.

Í sambandi við þessa hækkun á launum hjeraðslækna hefir nefndin aftur á móti gert þá brtt., að taxti sá, er nú er falið eftir, haldist óbreyttur.

Þá hefir nefndin gert þá brtt. við 13. gr. frv., að holdsveikralækni sá, sem nú er, skuli fá 1000 kr. árlega launauppbót, með því skilyrði, að hann hafi jafnt eftirleiðis sem hingað til á hendi kenslu við háskólann.

Ástæðan fyrir þessari brtt. er sú, að nefndinni barst áskorun frá holdsveikralækni um launabætur. Átti hann að hafa ásamt launum sínum leigulausan bústað í holdsveikraspítalanum, en getur ekki notað þau hlunnindi vegna þess að laun hans eru svo lág, að hann getur ekki lifað án þess að hafa praxis með fram; en til þess að hafa hana verður hann að búa inni í bæ. Þar við bætist, að þó að læknirinn hefði sjeð sjer fært að búa inni á holdsveikraspítala, er íbúðin, sem honum er ætluð, svo úr garði gerð, að hún verður að álítast óhæfileg læknisíbúð.

Af þessari ástæðu sá nefndin sjer ekki annað fært en að sinna þessari málaleitun, þó með því skilyrði, sem fyr er nefnt.

Brtt. við 14. gr. eru um laun dýralækna. Samkvæmt frv. stjórnarinnar eru þeim ákveðin jöfn laun og mannalæknum. — Nefndin hefir fært þau upp á sama hátt og laun lækna. Þó hefir hún ekki sjeð sjer fært að launa þá nema eins og lægsta flokk mannlækna, og kemur það til af því, að taxti dýralækna er ekki lögákveðinn, og má því ná ósamræminu upp með praxis.

Brtt. við 15. gr., um að í 3., 4. og 5. málsgrein komi „tveggja“ í stað „þriggja“, er flutt eftir ósk sambands starfsmanna ríkisins, og fanst nefndinni sanngjarnt, að hækkunin færi fram á styttri fresti en til var tekið í stjórnarfrv.

Við 4. málsgrein er gerð sú brtt., að í stað 2000 kr. komi 2400 kr. Meiri hluti nefndarinnar áleit rjett að hækka byrjunarlaun póstafgreiðslumannanna í Reykjavík og á Seyðisfirði um 400 kr. — Jeg get ekki sagt, hvort þessi hækkun byggist á greinilegum ástæðum, saman borið við starf annara slíkra starfsmanna, en hygg þó, að launin megi ekki vera minni.

Við 15. gr. er það athugandi, að brtt. eru gerðar áður en póstskipuninni var breytt. Er nú komin brtt. til að koma samræmi á þetta, og því óþarfi að fjölyrða um hana fyr en flutningsmaður hennar hefir tekið til máls. Nefndin tók greinina eins og hún var í stjórnarfrv., þar sem hún vissi ekki, hvern enda frv. um breyting á póstskipuninni mundi fá.

Við 16. gr. hafa verið gerðar ýmsar smábreytngar, mest til að samræma og þræða saman laun samsvarandi starfsmanna, t. d. stöðvarstjóra. Er ætlast til, að þeir fái ókeypis húsnæði, ljós og hita, auk launa sinna, og með það fyrir augum er svo ákveðið, að stöðvarstjórinn í Reykjavík fái 500 kr. á ári í húsaleigustyrk, uns landssíminn reisir hús með stöðvarstjóraíbúð. — Einstaka starfsmönnum er bætt inn í 16. gr., svo sem varðstjórum við ritsímann, svo og áhalda- og efnisverði. — Þá leggur og nefndin til, að í stað „talsímameyjar“ komi „talsímakonur“, og er það gert til að koma samræmi á í greininni. Enn fremur er lagt til, að laun þeirra hækki á tveggja ára fresti um 200 kr., upp í 1500 kr. í stað þess, sem hækkunin í stjórnarfrv. var 100 kr. á þriggja ára fresti, upp í 1300 kr. Þótti nefndinni þetta sanngjarnt, og þarf ekki annað en að bera launakjörin saman við kjör vinnumanna, sem hafa 1000–1500 kr. á ári og auk þess „alt frítt“, og hins ber og að gæta, að þetta starf er allerfitt.

Talsvert var rætt um það í nefndinni, hvort rjett væri að taka alla starfsmenn upp í launafrv., en eftir upplýsingum frá stöðvarstjóra, er benti á, að ef svo væri, mundi auðveldara að fá gott fólk á stöðvarnar, gat nefndin eftir atvikum fallist á, að það væri gert.

Hvað 17. gr. viðvíkur er bætt inn nýjum starfsmanni, sem sje húsameistara. Stjórnin hafði ráðið Guðjón Samúelsson, sem fullnuma er í byggingafræði, til að sjá um húsabyggingar ríkisins fyrir þessi laun, og þar sem nefndinni þótti þetta vel ráðið, þegar tekið er tillit til þess, að slík vinna er vel borguð, og hins vegar full þörf hennar, leggur hún til, að stofnað verði fast embætti handa þessum manni, með þeim launum, er í greininni segir.

Þá eru engar brtt. frá nefndinni fyr en við 22. gr., þar sem lagt er til, að byrjunarlaun biskups verði færð upp um 500 krónur, en hámarkið látið haldast. Meiri hluti nefndarinnar var með þessari brtt. og áleit rjett að setja byrjunarlaunin hærri en gert var í stjórnarfrv., þar sem í biskupsembættið veljast venjulega að eins rosknir menn. Af sömu ástæðu er lagt til, að launin hækki eftir 5 ára skeið upp í hæstu laun, í stað þess, að eftir stjórnarfrv. þurfti að þjóna embættinu í 10 ár til þess að ná hæstu launum.

Biskupi er í fjárlögum ætlað skrifstofufje, sem ætlast er til að hann haldi, og þykir því ekki ástæða til, að ákvæði um það verði sett inn í þetta frv.

Við 2. lið 22. gr. er gerð sú brtt., að í stað 5 ár komi 3 ár.

Þá er lagt til af nefndinni, að samþykt verði viðaukatill. við 22. gr., sem hafi inni að halda ákvæði um laun prófasta. Þeir eru ekki nefndir á nafn í stjórnarfrv., og má það sennilega kenna gleymsku. En frá sambandi starfsmanna ríkisins kom till. um að taka þá inn í frv. — Niðurstaða sú, er nefndin komst að og sjest í brtt. hennar, átti af ýmsum ástæðum mjög hverfulan meiri hluta innan hennar. — Komu fram í henni ýmsar brtt. Þar á meðal að þeir prófastar, er nú hafa 100 kr., fengju 500 kr., en hinir 1006 kr., sem 200 kr. laun hafa nú. Var þá ætlast til, að visitasiulaun þeirra fjellu niður. Sú hefir þó orðið niðurstaðan, að lagt er til, að þeir haldi visitasiulaunum sínum og laun þeirra hækki auk þess upp í 400 og 700 kr. Útkoman mun þó verða nokkuð lík, því gera má ráð fyrir, að visitasiulaunin sjeu 200–300 kr. Hafa komið fram ýmsar brtt. við þessa gr., svo þingmenn hafa nóg að greiða atkvæði um, og finn jeg því ekki ástæðu til að fjölyrða um hana.

Þá hefir nefndin komið fram með brtt. við 23. gr., sem hefir inni að halda ákvæði um laun prófessora og dócenta við háskólann. Í frv. stjórnarinnar eru byrjunarlaun þeirra sett 4500 kr., sem hækka upp í 6000 kr. Komu fram óskir frá sambandi starfsmanna ríkisins um það, að byrjunarlaunin yrðu hækkuð upp í 5000 kr., og hefir það orðið ofan á í nefndinni. Ástæðan fyrir þessari hækkun er sú, að í þessi embætti eru valdir bestu og hæfustu menn í hverri grein, og þykir því rjett að setja þá á borð við skrifstofustjóra í stjórnarráðinu. Að vísu má segja, að skrifstofustjórarnir sjeu bundnir alt árið, en prófessorarnir hafi sumarfrí, en nefndin sá þó ekki ástæðu til að gera upp á milli þeirra, þar sem um svo þjóðnýta menn er að ræða.

Sama brtt. hefir verið gerð viðvíkjandi dócentum, og af sömu ástæðum.

Við 24. gr. er gerð sú brtt., að byrjunarlaun kennara mentaskólans, sem í stjórnarfrv. voru ákveðin 3000 kr., verði færð upp í 3400 kr., og að jafnframt verði feld niður laun yfirkennara, og að allir þeir fastir kennarar, sem verið hafa 16 ár við skólann, verði yfirkennarar. Þessi brtt. hefir nokkra hækkun í för með sjer.

Jeg sje, að háttv. þm. eru farnir að ókyrrast, og skal jeg því fara fljótar yfir sögu og sleppa ýmsum smábreytingum, sem óþarft er að tala um.

Við 29. gr. er gerð sú brtt., að reki skólastjórar á búnaðarskólum bú skólans á jörðinni fyrir eigin reikning, skuli þeir hafa í byrjunarlaun 1800 kr., er hækki upp í 2800 kr.

Er þetta gert í samræmi við till launamálanefndar, þar sem gera verður ráð fyrir, að skólastjóri græði á búskapnum.

Þá hefir nefndin bætt skjalaverði inn í frv. í stjórnarfrv. var gengið út frá, að frv. um sameining landsbókavarðar- og landsskjalavarðarembættanna yrði samþ. Eins og hv. þm. er kunnugt, var það frv. felt, og því sjálfsagt að taka þennan embættismann upp í launafrv.

Þá hefi jeg drepið á helstu brtt., er nefndin hefir gert við launin sjálf, og er kominn að 33. gr. frv., sem fjallar um dýrtíðaruppbót á laununum.

Ef launin eru hæfilega sett eins og nefndin hefir gengið frá þeim, er að eins einfalt reikningsdæmi að finna út dýrtíðaruppbótina, svo nákvæmt sje.

Krafan um dýrtíðaruppbótina er rjettlát krafa. Þegar peningar lækka mjög í verði af óviðráðanlegum orsökum, eins og átt hefir sjer stað á styrjaldartímunum, er ekki nema eðlilegt, að starfsmenn, hvort heldur þeir vinna hjá einstökum mönnum eða hinu opinbera, krefjist þess, að laun þeirra hækki að sama skapi, sem dýrtíðin eykst, eða m. ö. o. sem peningar falla í verði.

Nefndin hefir líka viljað líta sanngjarnlega á þetta mál, og yfirleitt gert litlar brtt. við þetta atriði frv.

Þó hefir hún gert eina mikilvæga breytingu, sem ekki verður neitað að brýtur bág við rjettlæti, og hún er sú, að setja hámark fyrir því, hversu miklu laun og dýrtíðaruppbót megi nema.

Jeg sagði áðan, að þetta væri órjettlátt, og jeg segi það enn, því þessi brtt. rjettlætist ekki af neinu öðru en erfiðum fjárhagsástæðum ríkissjóðs. En það hefir líka verið það, sem stöðugt hefir takmarkað dýrtíðaruppbætur til starfsmanna þjóðarinnar á undanförnum þingum. Önnur ástæða fyrir því er líka sú, að þessir starfsmenn eigi á einhvern hátt að taka þátt í þeim erfiðleikum landsmanna, sem heimsófriðurinn hefir skapað.

Og þetta hefir enn þá orðið ofan á, til þess að hlífa ríkissjóðnum. Og þetta er ekki að ástæðulausu, þegar launin að viðbættri dýrtíðaruppbót eru orðin 9600 kr.; má segja, að hver sá embættismaður, sem ekki hefir því stærri fjölskyldu, ætti að geta gert sig ánægðan með slík laun, jafnvel þótt ekki sje fylgt fylstu sanngirni. Það virðist ekki vera ósanngjörn krafa, að embættismenn landsins líti dálítið á kröggur ríkissjóðsins og láti sjer þau laun nægja, sem þeir geta komist af með.

Nú hafa komið fram ýmsar brtt. við frv. og brtt. nefndarinnar, og er erfitt að segja um, hvað þar kann að verða ofaná. Brtt. við þessa gr. eru þó smáar, t. d. að „ Reykjavík“ á tveim stöðum falli burt. Stjórnin ætlaðist til, að uppbótin væri miðuð við verðlag í Reykjavík; en nefndinni þótti rjett að miða líka við stærstu verslanir úti um land, og taka svo meðaltal af verðinu. Það er auðvitað, að verðið er dálítið breytilegt á hinum ýmsu stöðum úti um land, en hins vegar er ókleift að segja um, hversu sá munur er mikill. Annars er nefndinni þetta atriði ekki neitt áhugamál.

Þá hefir nefndin lagt það til, að fyrir orðin „næsta haust á undan stríðinu“ komi: haustið 1914. Og nefndin hefir mið að uppbótina við hlutfallið, sem hagstofan hefir fundið milli verðlagsstuðlanna 1914 og 1918. Hins vegar vissi nefndin það ekki fyr en eftir á, að hagstofan hafði ekki miðað verðlagsstuðulinn 1914 við haustið 1914, heldur við verðlag í júlímán. þetta ár. Þetta varð nefndinni fyrst kunnugt þegar brtt. komu. Þetta veldur dálitlum mun, því að vörur munu hafa hækkað um 10% frá því í júlí til haust. Gæti ef til vill komið til mála að draga atkvæðagreiðsluna, þangað til búið er að greiða atkvæði um hina brtt., sem fer í líka átt, eða að hækka hina dauðu % úr 25 upp í 35, því þá kemur hið sama út.

Þá er annað atriði í þessari grein, sem skiftir miklu máli. Það er, að síðasta málsgrein greinarinnar, um launauppbót presta, falli burt. Eftir launafrv. stjórnarinnar fá prestar utan kaupstaða aldrei meira en 500 kr. launauppbót. Þetta ákvæði vill nefndin fella burtu, og hefir sú breyting meiri útgjöld í för með sjer en breyting nefndarinnar við 12. gr. En stjórnin hefir aftur á móti ætlast til, að laun prestanna ættu að vera tiltölulega lág vegna hlunninda þeirra, sem þeir nytu með prestssetrunum. Það er rjett, að prestar hafa haft mikil hlunnindi af þeim, sem erfitt er að reikna til peninga. En nefndin lítur svo á, að þetta horfi nú öðruvísi við. Nú á tímum er svo erfitt að byrja búskap, að engum fátækum kandídat dytti í hug að kaupa búslóð og byrja búskap í sveit, og það yrði sennilega allvíða ofan á, að þeir gætu ekki sætt þeim kjörum, sem prestum stendur til boða. Að öðru leyti er þess að gæta, að hið lága mat, sem nú er á afgjaldi prestsetranna, má ekki búast við að standi lengur, þar sem á að meta þau öll upp á næsta ári. En nefndinni virðist hins vegar rjett, að þessum mönnum sje gert jafnhátt undir höfði sem öðrum embættismönnum þjóðarinnar.

Þá kemur ný grein, þar sem lagt er til, að „lög þessi gangi í gildi 1. jan 1920. Þó skal dýrtíðaruppbót fyrir síðara missiri 1919 teljast af núverandi launum eftir reglunum í 33. gr.“ Nefndinni barst ósk um það frá starfsmannasambandinu, að lögin væru látin gilda frá 1. jan 1919. En henni þótti óviðkunnanlegt að láta lögin gilda þannig aftur fyrir sig, en vildi hins vegar reikna dýrtíðaruppbótina frá 1. júlí. Nú er búið að borga hana út til 1. júlí, og telur nefndin rjett að láta þessi síðari greiðslu fara eftir þessum lögum.

Þá vildi jeg beina þeirri spurningu til stjórnarinnar, hvað hún á við með ákvæðinu í byrjun 33. gr., um að allir starfsmenn landsins skuli fyrst um sinn fá launauppbót, auk hinna föstu launa, meðan dýrtíð sú helst, sem hófst með heimsstyrjöldinni. Þetta hefir nefndin skilið svo, að hjer væri átt við alla starfsmenn úti um land, sem ekki væru nefndir í frv. Þetta skiftir ekki litlu máli, því að þessir starfsmenn eru ærið margir, laun þeirra lág og því eigi síður þörf á að bæta þau upp; mundi þetta valda mikilli breytingu á frv. Ef hjer er átt við eftirlaunamennina, má geta þess, að sú fúlga nemur um 52 þús.

Þá eru og starfsmenn við síma. Laun þessara manna munu nema um 50 þús., og landssímastjórinn gerir ráð fyrir, að þau hækki upp í 60 þús. á næsta ári, því altaf bætast einhverjir við. Þetta er því einnig umfram það, sem gert er náð fyrir í frv.

Þá má nefna ýmsa fleiri, t. d. starfsmenn við skóla og sjúkrahús, hjúkrunarkonur o. fl. Ef þetta starfsfólk fengi dýrtíðaruppbót, mundi hún nema um 30 þús. kr., miðað við prósentur þær, sem 33. gr. gerir ráð fyrir.

Enn fremur má nefna póstmenn utan Reykjavíkur, sem ekki eru nefndir í frv. Laun þeirra munu nema um 19 þús. kr. samtals.

Enn má gera ráð fyrir, að hreppstjórar geri sömu kröfu, og gæti dýrtíðaruppbót handa þeim numið um 20 þús. kr.

Samtals mundi þetta geta numið um 170 til 180 þús. kr. Hjer er því ekki um smáa fjárhæð að ræða, og þess vegna vill nefndin, að það sje skýrt ákveðið, hvar dýrtíðaruppbótin á að takmarkast, hvort hún nær til allra starfsmanna landsins eða að eins þeirra, sem getið er í frv. Nefndin væntir þess, að hún fái greinileg svör um þetta frá stjórninni.

Þá skal jeg geta þess, að nefndinni hafa borist ýms erindi, sem hún hefir ekki tekið ákvörðun um, en býst við að athuga þau fyrir 3. umr.

Loks skal jeg geta þess, að komnar eru margar brtt. við till. nefndarinnar. Mun varla eiga við að minnast frekar á þær að svo stöddu; það yrði svo langt og leiðinlegt mál, enda geta þær vel beðið, þangað til flutningsmenn þeirra hafa gert grein fyrir þeim. Ýmsar þessar brtt. eru samhljóða till. nefndarinnar, og aðrar valda tiltölulega litlum breytingum. Sumar fara fram á að klípa 100 til 300 kr. af launum ýmsra embættismanna. En nokkra breytingu gera þær þó samanlagðar.

Brtt. á þgskj. 499 er róttækust. Hún fer í þá átt, að fyrir 25% í 33. gr. frv. komi 35%, og að fyrir 3000 kr. komi 2000 kr. Á það hefir verið minst áður, að ef verðlagsstuðullinn er miðaður við júlí 1914, í stað okt. 1914, þá næmi sú hækkun 10%. En þegar þessi prósentutala er hækkuð, færast hlutföllin saman, og verður því verðstuðullinn lægri eða 2,38, í stað 2,52, eða að prósentutalan af öllum launum yrði um 89, í staðinn fyrir 100. Þetta er þegar mikil breyting, og þegar þess er þar á ofan gætt, að 3000 eru færð niður í 2000, vex breytingin að miklum mun. Eftir þessum stuðli nemur uppbótin aldrei meiru en röskum 3000 kr., í stað 4500 kr. En þetta kæmi órjettlátlega niður, því að munurinn yrði tilfinnanlegastur á lægri laununum.

Þessi lækkun þurftarlauna úr 4500 niður í 3500 kr. er órjettlát. Stjórnin hafði miðað hámark sitt við háskólaskýrsluna um þurftir meðalheimilis. Eru þar áætlaðar 4500 kr., sem nefndinni þykir sennilegt að ekki geti verið lægra. Og nefndin er því mótfallin röskun á þessu ákvæði. Hinsvegar er ekki hægt að segja, hvernig fara muni um þessa brtt. Jeg býst við, að nefndin hafi óbundnar hendur um þetta atriði.

Þá á jeg að eins eftir að minnast á eitt atriði. Það hefir verið haft orð á því, að starfsmannasambandið hafi gengið helst til langt í kröfum sínum, og að embættismenn mundu yfirgefa embættin, ef þeir fengju þær ekki uppfyltar. Menn hafa litið heldur köldum augum á kröfur þeirra og sagt, að þær væru gerðar í því skyni að hræða nefndina. En þetta hefir ekki haft hin minstu áhrif á nefndina. Hún hefir litið svo á, að í kröfunum fælist svo mikil sanngirni, að skylt væri að taka tillit til þeirra. Henni var það ljóst, að ekki gæti komið til mála, að allir embættismenn landsins gengju úr embættum sínum, þótt kröfum þeirra væri ekki sint. En hitt þótti henni líklegt, að sumir yngri embættismenn gætu leitað sjer annarsstaðar atvinnu, þótt aðrir sjeu svo settir, ýmsir eldri embættismenn, að þeir gætu ekki yfirgefið embættin, til þess að leita sjer lífvænlegrar stöðu. Og nefndin lítur svo á, að það sje órjettlátt gagnvart þessum mönnum að kúga þá til þess að yfirgefa embættin, þar sem þeir hafa haft samtök við hina. Þjóðarheildinni má standa á sama, þó að stöku einstaklingar hennar geri svo við starfsmenn sína, að þeir gangi úr vistinni. En henni má ekki vera sama um það, þar sem sæmd hennar er í veði, að bola bestu mönnunum burtu úr embættunum fyrir smásálarskap, og því hefir nefndin ekki viljað ganga í berhögg við það, sem henni fanst vera sanngjarnt og rjett.