30.08.1919
Neðri deild: 50. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1202 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)

26. mál, laun embættismanna

Forsætisráðherra (J. M.):

Það var rjett, sem háttv. frsm. (Þór. J.) sagði síðast, að ekki mundu þýða langar umræður um þetta mál, þar sem það hefir nú verið rætt svo mjög áður.

Brtt., sem fram hafa komið, eru heldur ekki svo margar. Skal jeg nú minnast að eins lauslega á nokkrar þeirra.

Skal jeg fyrst geta þess, út af því, sem háttv. frsm. (Þór. J.) sagði um skrifstofustjóra Alþingis, að þegar stjórnin var að semja frv., ætlaði hún að taka hann þar með, og leitaði hún álits forseta um það, hvort það væri ekki rett.

En hún fjekk þau svör, að Alþingi mundi sjá um hann, og var það auðvitað í samræmi við það, sem verið hefir.

En hins vegar var þó stjórnin á því, að laun hans bæri að ákveða, sem hvers annars starfsmanns landsins, eins fyrir það, þótt í þingsköpunum sje svo ákveðið, að forsetar ráði hann til 6 ára í senn og ákveði kaup hans.

Þess vegna vona jeg, að háttv. Ed. verði við tilmælum hæstv. forseta og taki þetta embætti upp í launafrv.

Jeg vil sjerstaklega leyfa mjer að mæla með till. háttv. nefndar um, að laun háskólakennara hækki þriðja hvert ár, í stað fjórða hvert ár. Aftur á móti greiði jeg atkv. á móti því, að lágmarkið hækki, en það er sanngjarnt, að launin hækki þetta fyr. Auðvitað er það afleiðingin af þessu, og dettur mjer ekki í hug að lasta það, að laun dócentanna hækka líka á sama hátt.

Jeg verð að taka undir með háttv. frsm. (Þór. J.) um brtt. 584, að verði hún samþykt, er sönnu næst að háttv. Ed. taki upp brtt. þeirra háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) og háttv. 2. þm. Árn. (E. A.), og geri öllum sýslumannsembættum jafnt undir höfði, því að þá eru þau orðin svo fá, sem eftir eru í öðrum flokki, að það tekur því varla að skilja þau að.

Jeg held, að jeg geti látið aðrar brtt. liggja á milli hluta. Þó vil jeg eindregið mæla á móti brtt. á þgskj. 559, og þó sjerstaklega síðari lið hennar. Hygg jeg, að búið sje að skerða 33. gr. stjórnarfrv. nægilega, þótt ekki sje gert meira að. Jeg vil sömuleiðis mæla á móti fyrsta tölulið hennar, því þótt vel geti hugsast, að komið gæti til mála, að þetta atriði yrði endurskoðað eftir ákveðinn tíma, þá er þó ekki rjett, að þetta ákvæði launauppbótarinnar skuli falla burtu eftir ákveðinn tíma, en ef það er ekki ætlunin, að þetta ákvæði falli burtu, þá þarf ekki að samþykkja það. Vildi jeg skjóta því til háttv. flm., hvort þeir gætu ekki komið sjer saman um að taka þessa till. aftur, og komast þá að samningum við háttv. Ed., ef nauðsynlegt væri að taka upp í lögin, að endurskoðun skyldi fram fara eftir ákveðinn tíma.

Þá get jeg ekki stilt mig um að minnast lauslega á brtt. á þgskj. 560. Ekki svo að skilja, að jeg hafi nokkuð á móti henni, því jeg býst við, að hún sje sanngjörn að mörgu leyti, og síst farið fram á of mikið. Þótt það nú komi ekki þessu máli beinlínis við, þá get jeg þó ekki stilt mig um að minnast á, að þegar verið var að ræða frv. mitt um sameining skjalavarðar og landsbókavarðar, þá kom nokkur annar reikningur fram frá háttv. 2. þm. Árn. (E. A.), sem var frsm. mentamálanefndar, og líka er flm. þessarar tillögu. Nefndin sagði, að ef þetta yrði gert, mundi útkoman verða 20,000 kr., en nú er reikningurinn alveg orðinn öfugur. Þá voru launin sett lágt, en eftir þessari till. verður þetta þó nokkru dýrara en eftir stjórnarfrv. Að öðru leyti A.: Þessu mun verða svarað). Það er ókleift að svara þessu.