02.09.1919
Efri deild: 46. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)

26. mál, laun embættismanna

Magnús Kristjánsson:

Jeg skal að eins leyfa mjer að gera stutta fyrirspurn.

Mjer skilst svo, sem dýrtíðaruppbótin eftir frv. nái að eins til þeirra launa, sem frv. sjálft hefir að geyma. Nú er það vitanlegt, að eftir gildandi lögum eru það fleiri en þeir, sem í frv. eru taldir, sem notið hafa dýrtíðaruppbótar. Og þá verður spurningin sú, eftir hvaða reglum þessir menn eiga að taka dýrtíðaruppbót. Ef þeir ættu að taka dýrtíðaruppbót eftir lögunum, sem nú gilda um dýrtíðaruppbót, þá myndi koma fram talsverður munur, og þessir menn verða beittir misrjetti í samanburði við hina.

Það leiðir af sjálfu sjer, að setja verður ákveðin fyrirmæli um þetta, því að ella yrði öll uppbótartilhögunin á reiki. En mönnum ríður á að gera sjer þetta ljóst bráðlega, með því að fjárlögin eru nú svo langt komin, að ákvæði um þetta komast þar ekki að, nema því að eins, að nú þegar verði afráðið, hvernig þeim skuli hagað.