08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1275 í B-deild Alþingistíðinda. (1058)

26. mál, laun embættismanna

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Nefndin hefir tekið mál þetta til nokkurrar athugunar, en jeg get þó búist við, að hv. þingdm. þyki till. hennar ekki fyrirferðarmiklar, og er það að vísu eðlilegt, þar sem nefndin hefir fjallað um málið síðan í þingbyrjun. En frv. tók litlum breytingum í hv. Nd. frá niðurstöðu samvinnunefndarinnar, og þar sem sömu mennirnir nú aftur fjalla um málið, er ekki að vænta stórvægilegra eða gagngerðra breytinga frá þeirra hálfu. Á hinn bóginn verð jeg að telja rjettmætt, þó búist hefði verið við því, að þær brtt., sem einstakir hv. þingdm. kynnu að hafa hugsað sjer að bera fram, væru fram komnar, en að þær eru svo fáar, sem raun ber vitni, stafar að líkindum af því, hve skamt er síðan brtt. nefndarinnar var útbýtt. Þetta kemur þó væntanlega ekki að sök, þar sem þeir, er óska að bera fram brtt., geta komið með þær til 3. umr.

Nefndin hefir þó komið fram með nokkrar brtt. við frv., sem sumpart snerta ýmislegt, sem verið hafði til meðferðar í samvinnunefndinni, og sumpart hefir nýju verið bætt inn í, t. d. eftirlaunamönnum, sem ekki voru teknir með áður.

Nefndin hefir sjerstaklega athugað það, sem hæstv. forsætisráðherra (J. M.) benti á við 1. umr. málsins og hagað till. sínum að nokkru eftir þeim bendingum. Enn fremur hefir nefndin haft hliðsjón af till. frá sambandi starfsmanna ríkisins. Taldi hún eðlilegt og sjálfsagt, að þeir menn ljetu heyra óskir sínar og kröfur, og sjálfsagt, að fult tillit væri tekið til þeirra, að svo miklu leyti sem Alþingi teldi fært og rjettmætt, að minsta kosti í aðalatriðunum.

Það, sem nefndin hefir komið sjer saman um, þ. e. a. s. meiri hluti hennar, sjá hv. þingdm. á brtt. hennar á þgskj. 682. Jeg skal að eins geta þess, að allmikill meiri hluti í nefndinni var með þessum brtt., en aftur á móti var ágreiningur í nefndinni um ýms atriði, og í atkvæðagreiðslunni um þau hafa nefndarmenn að sjálfsögðu óbundnar hendur.

Fyrsta brtt. nefndarinnar miðar að því, að færa sýslumennina aftur í sama flokk og nefndin hafði upphaflega sett þá. Hjer er að eins um tvær sýslur að ræða, og eru þá ekki nema fjórar eftir, sem eiga að vera í sjerstökum flokki. Það verður nú ekki betur sjeð en að minsta kosti sumar af þessum sýslum hefðu átt að koma í sama launaflokk og aðrar, sem skipað er annarsstaðar, og var þá eðlilegast, að þær fylgdust allar að. Nefndin vill nú ekki beita sjer fyrir að útiloka þessa flokkun algerlega, en vill þó bæta úr þessu með því, að hækka nokkuð laun lægsta flokksins.

Önnur brtt. nefndarinnar miðar að því, að bæta inn í frv. ákvæðum um innheimtulaun sýslumanna og bæjarfógeta. Það vakti fyrir nefndinni, að með aukatekjum væri hjer að eins átt við aukatekjur eftir aukatekjulögunum, en í brtt. er átt við aðrar aukatekjur, og þá sjerstaklega innheimtulaun af útflutningsgjaldi, innflutningsgjaldi, vörutolli og þess háttar. Um þetta var þó nokkur ágreiningur í nefndinni, þar sem sumir nefndarmenn vildu láta ákvæðið ná til allrar innheimtu, þar á meðal til ellistyrktarsjóðsgjaldsins. En jeg hygg, að það liggi í augum uppi, að þetta gjald sje ríkissjóði með öllu óviðkomandi. Vænti jeg, að þetta verði athugað nánar síðar.

Þriðja brtt. nefndarinnar fjallar um, að færa skipun læknaumdæmanna í sama horf og hún var upprunalega hjá nefndinni. Nefndinni fanst ekki ástæða til þess að víkja frá aðalreglunni og teyma einstök læknahjeruð út úr leið, og kippa þannig burt þeim aðalgrundvelli, sem hún hefir bygt læknaskipunina á. Hún leggur því til, að þessi þrjú læknisdæmi verði aftur færð í samt lag. Nefndin telur enda, að með lögum þessum sjeu kjör lækna yfirleitt svo mikið bætt, að ekki sje ástæða til reipdráttar um einstök læknisdæmi.

Fjórða brtt. er að eins orðabreyting. Setningin er óþörf, þar sem ekki er gert ráð fyrir að breyta stöðunni í bráð, eins og ætlað var í stjórnarfrv.

Fimta brtt. fer fram á, að laun fyrst bókavarðar við Landsbókasafnið sjeu hækkuð um 500 kr. Nefndin leit svo á, að laun hans væru of lág, í samanburði við laun aðalbókavarðar, en aftur á móti fann nefndin ekki næga ástæðu til þess að leggja til, að laun fyrir starf 2. bókavarðar yrðu einnig hækkuð, en ef til vill kemur fram brtt. í þá átt, og þá sjerstaklega með tilliti til núverandi 2. bókavarðar. Jeg tel alla sanngirni mæla með því, að laun þessa starfsmanns, 2. bókavarðar, verði rífkuð, en jeg segi þetta fyrir eigin reikning. en hefi ekki umboð til að bera neitt fram fyrir hönd nefndarinnar.

Aftur á móti er ekki samkomulag í nefndinni um aðstoðarmanninn við skjalasafnið, og stafar það ef til vill að nokkru leyti af því, að sá maður nýtur á annan hátt fjár úr ríkissjóði, en hve rjettmætt er að setja hann hjá fyrir þá sök, skal jeg engan dóm á leggja.

Sjötta brtt. nefndarinnar er um það, að taka eftirlaunamenn upp í frv., og er hún sjálfsögð, enda enginn ágreiningur um það, að þeir eigi að njóta sömu dýrtíðaruppbótar og aðrir, og það er óhætt að segja, að þeir hafi að minsta kosti ekki minni þörf fyrir uppbótina heldur en aðrir.

Sjöunda og áttunda brtt. nefndarinnar eru viðvíkjandi því, að dýrtíðaruppbótin falli niður 1925, og sje miðuð við 1. október 1914. Að því er kemur til ákvæðisins um það, að uppbótin skuli niður falla 1925, er það álit nefndarinnar, að það í sjálfu sjer sje harla þýðingarlítið atriði. Á hinn bóginn telur nefndin það útlátalítið að taka til greina tilmæli sambands starfsmanna ríkisins um það, að þetta ákvæði sje felt burtu. Frá nefndarinnar sjónarmiði horfir málið þannig við, að Alþingi sem nú má vænta að hjer eftir komi saman á hverju ári, ávalt hafi það í hendi sjer að taka lögin til endurskoðunar og breyta þeim eftir því sem þá og þá horfir við.

Aftur á móti varð ekki samkomulag í nefndinni um það að fella burtu ákvæðið um að miða dýrtíðaruppbótina við verðlagið 1. október 1914. Jeg veit ekki, hvernig atkv. háttv. þingdeildarmanna kunna að falla um þetta atriði, en annars var það yfirleitt álit nefndarinnar, að þetta skifti ekki miklu máli. Þó má vænta þess, að þó miðað sje við haustið 1914, nemi uppbótin nálægt 100%, og það er það, sem altaf hefir verið gengið út frá og talið að eigi best við, eins og nú á stendur. Það er líklegt, að sú verði niðurstaðan, þó miðað sje við 1914. En, sem sagt, geta háttv. þingdeildarmenn skorið úr þessu.

Þá kem jeg að síðustu brtt. nefndarinnar, en hún ræðir um launauppbót presta. Í frv. er þeim prestum, sem eigi er skylt að búa í kaupstað eða verslunarstað, ætluð hálf dýrtíðaruppbót, en brtt. nefndarinnar gengur í þá átt, að þeir fái 2/3 uppbótar þeirrar, er öðrum embættis- og starfsmönnum er ætluð eftir frv. — Þegar gengið er út frá því, að verðstuðullinn sje 100%, munar þetta ríkissjóð um 40 þús. kr., en þó um svo stóra upphæð sje að ræða, hikar nefndin ekki við að mæla með tillögu sinni, því ekkert rjettlæti mælir með því, að prestar fái ekki launauppbót eftir sömu reglum og aðrir starfsmenn ríkisins — Að vísu má segja, að ódýrara sje að lifa í sveitum en kaupstöðum, en til þess sýnist tekið fult tillit með því að draga frá % af uppbótarupphæðinni.

Jeg sje, að komin er fram brtt. um þetta efni frá hv. 1. landsk. varaþm. (S. F.), þar sem lagt er til, að launauppbót presta, sem búa í sveit og jörð hafa til ábúðar, sje takmörkuð við 1/3 uppbótar annara starfsmanna, og skal jeg ekki fjölyrða um þá till., þar sem háttv. flutnm. (S. F.) hefir enn ekki talað um hana. En það liggur í hlutarins eðli, að þar sem brtt. þessi brýtur bág við tillögur nefndarinnar, mun hún ekki geta greitt henni atkv.

Þetta eru þá þær tillögur, sem urðu ofan á í nefndinni, en búast má við, að ýms önnur atriði sjeu í frv. þessu, sem hv. Ed. vill skera úr fyrir sitt leyti.

Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) benti við 1. umr. þessa máls á ýmisleg atriði í frv., er hann taldi að væri ósamræmi í, og má vel vera, að það sje rjett, enda er það vandaatriði, og jafnan mikið álitamál, hvert hlutfall eigi að vera milli launa hinna ýmsu starfsmanna, og má margt um það mál segja áður en menn geta orðið sammála. Hann benti á laun 1. bókavarðar og aðstoðarmanna í stjórnarráðinu, er hann taldi hafa of lág laun eftir frv., saman borið við fulltrúa í stjórnarráðinu.

Nefndin hefir tekið til greina bendingar hans um að hækka laun 1. bókavarðar, en um laun aðstoðarmanna í stjórnarráðinu gerði nefndin, sem slík, enga ályktun, og hafa því nefndarmenn óbundin atkvæði, ef brtt. kæmi fram um það atriði.

Þá mintist hæstv. forsætisráðh. (J. M.) á, að ástæða væri til að athuga laun lögreglustjórans á Siglufirði. Nefndin komst ekki að neinu samkomulagi um það atriði. Jeg fyrir mitt leyti álít það ekki rjett, að teknar sjeu aukatekjur þessa manns, án þess að laun hans hækki. — En þetta kemur til af því, að málsgreinarnar hafa skift um sæti í greininni, þannig að aukatekjur hans hverfa, en það var ekki tilætlun stjórnarinnar.

Þá gat hæstv. forsætisráðh. (J M.) þess. hvort ekki væri rjett að taka skrifstofustjóra Alþingis upp í frv., en það varð ekki ofan á í nefndinni. Skrifstofustjóri Alþingis er, svo sem kunnugt er, skipaður af forsetum til ákveðins tíma, og taldi nefndin sjálfsagt, að forsetar bættu honum upp laun sín í fullu samræmi við aðrar launabætur. — Að minsta kosti taldi nefndin rjettast, að breyting á þingsköpum færi fram áður en slíkt ákvæði væri sett í launalögin, en endurskoðun þingskapanna fer að sjálfsögðu fram um leið og stjórnarskrárbreytingin verður samþykt. Allir starfsmenn þingsins, hvort heldur þeir skipa þingbekk eða ekki, eru kosnir til ákveðins tíma, og auk þess lausir í starfi sínu, og taldi nefndin ekki rjett að víkja frá þeirri reglu, enda fult samkomulag um það, að draga þetta ekki undan umráðum forseta eða þingsins sjálfs.

Þá mintist hæstv. forsætisráðh. (J. M.) á það, hvort nefndin sæi sjer ekki fært að hækka hámark launa + dýrtíðaruppbótar upp úr 9500 kr., og tilmæli komu frá miðstjórn sambands starfsmanna ríkisins um, að það yrði gert. Nefndin sem slík hefir þó ekki sjeð sjer fært að koma með tillögu um að breyta þessu. Hún telur rjett, að sett sje eitthvert hámark, en álitamál er um það, hvort þetta hámark sje rjett. Álít jeg, að sumir nefndarmenn geti sætt sig við að greiða atkvæði með brtt. í þessa átt ef hún kemur fram.

Með þessu frv. er bætt svo um laun embættismanna, að ef skýrsla háskólans um brúkun embættismannaheimilis er lögð til grundvallar, hafa þeir 500 kr. auk þess, sem þar er gert ráð fyrir að þeir noti til jafnaðar.

Tillögu hæstv. forsætisráðh. (J. M.) um það, að launauppbót presta, sem eigi er skylt að búa í kaupstað eða verslunarstað, skuli vera ákveðin peningaupphæð, eins og ákveðið var í stjórnarfrv., gat nefndin ekki fallist á. Taldi hún rjett, að starfsmenn þessir hefðu hlutfallslega launauppbót við aðra starfsmenn, miðaða við það, hversu dýrt eða ódýrt væri að lifa.

Þá urðu umræður í nefndinni um það, hvort heldur embættismaður, er fær laun sín hækkuð eftir frv., ætti að greiða lífeyrisgjald það, er getur um í 8. gr., af öllum launum eftir frv., eða að eins þeirri hækkun, er verður á launum hans.

Niðurstaðan varð sú sama og hv. Nd. komst að, að hann skuli að eins greiða gjaldið af hækkuninni.

Með því að greiða lífeyrisgjald af öllum tekjunum, hefði sjóðurinn fengið auknar tekjur. En það hefði orðið vafasamur ágóði, þar sem útgjöld hans hefðu þá einnig hækkað, og ekki gott að reikna út, hvort hentugra hefði orðið.

Jeg álít, að þetta skifti ekki miklu máli fyrir lífeyrissjóðinn, en tel sanngjarnara gagnvart embættismönnunum, að þeir greiði einungis af tekjuaukanum, þar sem lífeyrisgjald og ekkjutrygging heggur talsvert skarð í tekjur þeirra.

Jeg skal geta þess í þessu sambandi, að málaleitun kom fram frá sambandi starfsmanna ríkisins, þess efnis, að verðlagsskráin yrði miðuð við verðlag í Reykjavík, í stað verðlagsins í 4 aðalkaupstöðum landsins. Varð ekki samkomulag í nefndinni að verða við þessari kröfu, en sumir nefndarmenn voru þeirrar skoðunar, að það væri rjettast, og er mjer engin launung á, að jeg var einn meðal þeirra.

Jeg álít að eins flóknara að fara að eltast við verðlag úti um land, enda þess varla að vænta, að nokkur verulegur munur verði, og hann síst rjettlátur.

Þá hefir samband starfsmanna ríkisins farið fram á, að dýrtíðaruppbót þessa árs verði reiknuð eftir frv. fyrir alt árið, en ekki helming þess, eins og þar er gert ráð fyrir.

Má segja margt bæði með og móti þessari málaleitun, en nefndin áleit, að krafa þessi ætti ekki að ná fram að ganga, en dýrtíðaruppbót eftir frv. þessu væri rjett að reikna frá samkomudegi Alþingis í þetta sinni, eða frá 1. júlí.

Veit jeg ekki, hvort hv. deildarmenn vilja koma með brtt. í þessa átt.

Skal jeg svo gefa öðrum hv. þm. færi á að segja álit sitt á þessu máli.