08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)

26. mál, laun embættismanna

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil leyfa mjer að benda hv. nefnd á það að 2. brtt. hennar er óheppilega orðuð, þar sem hún er yfirgripsmeiri en nefndin hefir ætlast til.

Yrði brtt. samþ. myndi greinin hljóða svo: „Allar aukatekjur og lögmælt innheimtulaun, sem þessir embættismenn hafa notið hingað til, falla til ríkissjóðs“. Nú er þess að gæta, að sýslumenn og bæjarfógetar hafa haft, lögum samkvæmt, innheimtulaun af öðrum gjöldum en þeim, er renna til ríkissjóðs, svo sem ellistyrktarsjóðsgjöldum, vátryggingargjöldum o. fl. Mun ekki hafa verið tilætlun nefndarinnar, að þessi innheimtulaun fjellu niður, og því síður að þau rynnu í ríkissjóð, enda væri hlægilegt, ef ríkissjóður færi að taka skatt af ellistyrktarsjóði og vátryggingarsjóði. Þarf því að orða brtt. upp aftur, og mætti láta hana koma fram við 3. umr. í nýjum búningi.

Þá finst mjer ekki rjett að nema burt innheimtulaun af stimpilgjaldi. Samfara innheimtu stimpilgjaldsins er svo mikil peningaábyrgð, að mjer finst rangt og ósanngjarnt að ætla ekki neitt fyrir vanhöldum. Skal jeg í því sambandi benda á það, að samskonar ákvæði hefir ekki verið sett um frímerkjasölu, og virðast þó sömu ástæður vera fyrir hendi.

Jeg hafði ekki ætlað mjer að tala í þessu máli en býst við að hv. nefnd hafi ekki veitt þessu eftirtekt, og vildi því vekja athygli hennar á því.