08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1290 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)

26. mál, laun embættismanna

Halldór Steinsson:

Háttv. formaður nefndarinnar (E. P.) hefir nú skýrt frá skoðun sinni um læknaskipun landsins. Eins og hv. deild er kunnugt, hafði samvinnunefnd beggja deilda aðallega farið eftir till. læknafundarins, en læknafundurinn hafði aðallega skift hjeruðunum eftir mannfjölda. En þegar málið kom til Nd., þá komu einstakir þm. með brtt í þá átt, að færa hjeruðin til milli flokkanna, og var því svo breytt þar að nokkru leyti. En þegar frv. kom til nefndarinnar hjer, fjelst hún á það, að færa frv. í sama búning sem áður, að þessu leyti. Hæstv. forseti hefir nú upplýst það, að erfitt væri að fá lækni í eitt hjerað, sem sje Síðuhjerað. Þetta má vel vera, en hitt er þó víst, að eftir fólksfjölda á það hjerað að vera í 2. flokki. Það má vel vera, að örðugleikar sjeu miklir í þessu hjeraði, en ef líta ætti á það, þá mundu fleiri hjeruð en síðan koma til greina. Þetta er þó ekki svo að skilja, að jeg vilji sjerstaklega spyrna á móti því, að þessari tilfærslu sje breytt.

Jeg get ekki verið sammála hv. formanni nefndarinnar (E. P.) um það, að ekki hafi verið tekin rjett stefna í læknamálinu. Segir hann, að stefna sú, sem tekin hafi verið, muni leiða til þess, að bestu læknarnir lendi í fámennustu hjeruðunum. En þetta er rangt. Þótt þessi munur sje á laununum, þá er hins vegar svo mikill munur á praxis, að læknar eru miklu betur settir í lægst launuðu hjeruðunum en í hinum. Það er mikið rjett, að læknafundurinn hafði til athugunar kjör læknanna, og leit svo á, að læknum væri ómögulegt að lifa fyrir lægri laun. Maður, sem hefir 400 til 500 kr. í aukatekjur, getur ekki lifað fyrir minna en 3500 kr. að auki. Er þetta svo ljóst, að jeg þarf ekki að eyða fleiri orðum að því.

Jeg skal þá snúa mjer að brtt., sem jeg hefi flutt um það, að dýrtíðaruppbótin verði miðuð við verðlag í Reykjavík, en ekki við verðlag í fjórum höfuðkaupstöðum landsins, eins og frv. nú ætlast til. Í fyrsta lagi er þetta ákvæði mjög ógreinilegt, eins og það er orðað. Því að hverjir eru þessir 4 kaupstaðir landsins? Líklega myndi það svo lagt út, að átt væri við Reykjavík, Ísafjörð, Akureyri og Seyðisfjörð, af því að þeir eru hver í sínum landsfjórðungi. En til eru þó stærri kaupstaðir hjer en Seyðisfjörður. Hafnarfjörður og Vestmannaeyjar eru fólksfleiri staðir en Seyðisfjörður, og það er við búið, að á næstu árum verði fleiri staðir, sem fái kaupstaðarrjettindi; ef á að taka fleiri staði en Reykjavík, þá væri rjettast að nafngreina þá. Annars væri það rjettara, ef miða á við sinn stað í fjórðungi hverjum, að hver starfsmaður ríkisins fengi dýrtíðaruppbót, eftir því, hvernig verðlagið er í fjórðungi þeim, sem hann er búsettur í Austfirðingar eftir Seyðisfirði, Norðlendingar eftir Akureyri o. s. frv., en fyrir því er ekki ráð gert í frv. Jeg játa það, að mismunurinn er ekki mikill, en þar sem allur þorri starfsmanna ríkisins býr á Suðurlandi, þá er rjettast að miða uppbótina við Reykjavík. Auk þessa hefir hagstofustjórinn skýrt mjer frá, að verra sje að reikna vísitöluna með þessu, og að hún verði ekki eins ábyggleg. Þetta er auðskilið. Jeg vænti þess, að hv. þm. sjái, að þessi till. stefnir í rjetta átt, og auk þess er hún ekki um annað en að setja í frv. þær skorður sem það var í um þetta, er það kom frá stjórninni.