08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1292 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)
26. mál, laun embættismanna
Atvinnumálaráðherra (S. J):
Það fer að vonum, að till. hv. nefndar raska ekki frv. mjög frá því, sem það var samþykt í hv. Nd., þar sem launanefndir beggja hv. deilda hafa unnið saman að málinu, frá því á öndverðu þinginu. Munurinn er helst á 33. gr. Aðalbrtt. er 9. brtt. nefndarinnar, og vil jeg minnast á hana og í sambandi við hana á brtt. hv. 1. landsk. varaþm. (S. F.)
Hv. 1. landsk. varaþm. (S. F.) mintist á það, að hlunnindi þau, er prestarnir hefðu, jörð og bú, væru mikils virði. Það kann nú að vera, að svo megi segja, en óneitanlega virðist það ekki benda til þess, að svo sje, hversu fáir guðfræðingar sækja um brauð, að þeir líti svo á, að hjer sje um mikil hlunnindi að ræða. Jeg sje altaf hjer í bænum fleiri og færri guðfræðikandidata og uppgjafapresta, sem eru við allskonar störf, bæði hjer á þingi og úti um bæ, og bendir það síst á, að þeim þyki álitlegt að taka við starfa í sveitaprestaköllum. Sumir hafa reynsluna fyrir sjer með þessi svo kölluðu hlunnindi, en ýmsir þeirra hafa gefist upp við kjörin, og það mætir menn, fyrir flestra hluta sakir.
Jeg verð að líta svo á, að prestastjettin hafi yfirleitt verið þarfasta stjett landsins, og svo sje enn, og jeg tel, að hið lægsta, sem hægt sje að fara fram á með dýrtíðaruppbót þeirra, sje till. nefndarinnar. Ef laun þeirra verða svo eins og frv. og nefndin ráðgerir, mætti segja, að þeir gætu betur fylgt köllun sinni, keypt ný guðfræðirit og gefið sjer betri tíma til prestlegra starfa yfirleitt. Jeg vil benda á það, sem annars liggur í augum uppi, þó þess virðist eigi nægilega gætt nú af sumum hv. þm., að samlíf prestanna við söfnuðinn er mjög mikils virði, og eitt þýðingarmesta atriðið í framkomu þeirra; þeir verða, og eiga að vera, hold af holdi safnaðarins. Það verður affarasælast.
Ef prestarnir hættu að búa, en það gæti verið afleiðing af till. hv. l. landsk. varaþm. (S. F.), þá má einnig benda á það, að það er kunnugt, að jarðir, sem ekki eru í fastri ábúð, níðast niður og stórskemmast, lenda jafnvel í örtröð, þótt eitthvað lifi altaf eftir, þegar þær hafa áður verið í góðri rækt. En prestarnir gætu ekki leigt jarðirnar, nema frá ári til árs. Jeg held því, að afleiðingar þeirrar till. sjeu ekki heillavænlegar, frá hvaða hlið sem á málið er litið, ef till. nær fram að ganga.