08.09.1919
Neðri deild: 58. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Benedikt Sveinsson:

Nefndin hefir borið fram samskonar till. og þá, er jeg flyt hjer á þgskj. 734, og tek jeg mína því aftur. Háttv. frsm. (M. P.) hefir talað svo skörulega fyrir till., að jeg hefi þar engu við að bæta.

Jeg á einnig brtt. á þskj. 735 um að veittar verði 8 þús. kr. til að gera steinbryggju á Kópaskjeri, en þó ekki yfir þriðjung kostnaðar. Málið er þannig til komið, að þarna hafa verið gerðar bryggjur úr timbri, en ís hefir grandað þeim hverri af annari. Var það síðast í vor, að íshroða rak inn í flóann og barst upp að landi með vestanveðri. Hroði þessi braut bryggjuna í smátt, enda var það veigalítil trjebryggja. Ef gerð væri þar steinbryggja, eða vel sterk trjebryggja, þá mundi hún vel standast ísrekið, því að sakir útgrynnis komast stórjakar ekki upp að bryggjunni, enda er hjer um bátabryggju að ræða.

Kaupfjelag Norður-Þingeyinga hefir nú í hyggju að gera þarna steinbryggju eða steinum studda trjebryggu, sem vel má duga, en telur sjer um megn að ráðast í það, nema að það njóti styrks úr landssjóði. Samskonar styrkur hefir oft verið veittur öðrum, með sömu skilyrðum, þannig, að bygðarlagið eða aðrir hafa lagt fram tvo þriðjunga fjárins móti landssjóði. Jeg hefði nú að sjálfsögðu beðið um hærra tillag hlutfallslega, vegna þess að fátækt sýslufjelag á hlut að máli, sem lítið fje fær úr landssjóði, en háttv. fjárveitinganefndarmenn eru svo formfastir, að þeir gefa mjer engan ádrátt um stuðning til þess, þótt þeir hafi að öðru leyti tekið liðlega í málið. Jeg hefi því skorið nær helming af þeirri fjárhæð, sem óskað var eftir, og vænti þá, að þessi hóflega tillaga sæti ekki andmælum.

Það hefir verið rannsakað, hve mikið bryggjan mundi kosta, og er áætlað um 22–24 þús. kr. Jeg fer fram á, að Kaupfjelagi Norður-Þingeyinga sje falin framkvæmd á verkinu. Kaupfjelag þetta er trygg og öflug stofnun, og er óhætt að trúa því fyrir fjenu og framkvæmd verksins. Skip koma þarna oft við, enda viðskifti allmikil, og gefa skipverjar á þeim skipum sem þangað hafa komið, þann vitnisburð, að hvergi sje fljótari og rösklegri afgreiðsla eftir ástæðum heldur en á Kópaskeri. Ætti kauptúnið því fremur skilið, að því væri rjett þessi hjálparhönd, enda er og hjeraðinu brýn nauðsyn á því.

Jeg skal geta þess, að eigi hefir náð til verkfræðings til þess að rannsaka kostnaðinn, en hagsýnir og þaulvanir smiðir hafa gert áætlun um hann, og er engin ástæða til að fetta fingur í hana. Verkið þolir ekki bið, en ef bíða ætti eftir því, að verkfræðingur næðist, þá gæti staðið á framkvæmd verksins árum saman.

Jeg vona, að þetta örláta þing taki þessu máli vel. Jeg hefi ekki ónáðað þingið með mörgum kröfum fyrir kjördæmi mitt, og þar sem slíkar fjárveitingar hafa verið veittar öðrum, þá skil jeg ekki í öðru en að þessu erindi verði vel tekið.