08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (1071)
26. mál, laun embættismanna
Halldór Steinsson:
Ræða hv. þm. Ísaf. (M. T.) var öfgafull, eins og þeim háttv. þm. hættir við, þegar hann hefir sett sjer að hrekja það, sem er óhrekjandi með heilbrigðum rökum. Hann byrjaði á landlækni og hjelt því fram, að laun hans yrðu lakari en annara lækna, enda mundi að því leiða, að hann færi að sækja norður á Hornstrandir. Eftir frv. hefir landlæknir 3500 kr. hærri laun en lægst launaði læknirinn, en 2500 kr. hærri en sá hæsti. Skekkja háttv. þm. Ísaf. (M. T.) liggur í því, að hann gerir engan mun á föstum launum og dýrtíðaruppbót. Hann virðist halda, að dýrtíðin verði eilíf.
Háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) ber fram till. um, að landlækni verði borgað ritfje eftir reikningi. Það er sanngjörn till., sem jeg býst við að verði samþykt, en þá batna líka kjör landlæknis, og verða þau ekki talin annað en sæmileg.
Þá sagði háttv. þm. Ísaf. (M. T.) að „miðlungslæknir“ hafi á síðasta ári haft 8000 kr. í aukatekjur. Jeg veit ekki, hvort hann hefir sagt þetta í niðrunarskyni, að læknir sá, sem hann á við, sje ekki nema miðlungslæknir, eða hann hefir átt við, að læknirinn hafi haft miðlungstekjur. En hvor meiningin sem er, þá er hún röng. Læknirinn, sem háttv. þm. (M. T.) á við, hefir altaf verið talinn góður læknir, og tekjur hans voru langhæstu aukatekjur á landinu. Einn læknir gaf jafnvel upp ekki meira en 100 kr. aukatekjur, svo ekki er við 8000 kr. að miða. Jeg get fullyrt, að meðalaukatekjur fara ekki fram úr 1400–1500 kr. En háttv. þm. Ísaf. (M. T.) má sjálfum sjer um kenna, að dýrtíðaruppbót lækna var greidd á síðasta ári af aukatekjum. Hann var einn af fylgismönnum þess fyrirkomulags.