08.09.1919
Efri deild: 51. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1311 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)
26. mál, laun embættismanna
Guðmundur Ólafsson:
Það hafa þegar orðið fjörugar umræður um þetta mál, og það á milli manna, sem búast má við að hafi vit á því, því það eru tómir embættismenn, sem þekkja betur til málsins en við bændurnir, enda hefir orðið hnotabit á milli þeirra.
Jeg ætlaði aðallega að minnast á brtt. hv. þm. Snæf. (H. St.), á þgskj. 709 Samskonar brtt. kom fram í samvinnunefndinni í launamálinu, en fjekk ekki fylgi meiri hluta nefndarinnar, enda finst mjer hljóta að vera sanngjarnara að miða verðlagið við 4 aðalkaupstaði landsins en Reykjavík eina. Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) taldi brtt. til bóta, og gat þess sjerstaklega, að útreikningurinn yrði þægilegri. Get jeg hugsað mjer, að það sje rjett, því auðveldara er að afla upplýsinga um verðlag á vörum í einum kaupstað en fjórum, en þar með hygg jeg að kostirnir sjeu taldir, því það hlýtur að gefa gleggra yfirlit yfir verðlag á öllu landinu, að taka 4 kaupstaði í stað eins. Hæstv. forsætisráðh. (J. M.) taldi ósanngjarnt að setja kaupstað með 1500 íbúum á bekk með kaupstað með 15 þús. íbúum við verðlagsútreikninginn, en þess er að gæta, að margir fleiri versla í kaupstöðunum en íbúarnir einir t. d. sveitirnar, og hefir það auðvitað áhrif á verðlagið, enda tók hann fámennasta kaupstaðinn til samanburðar.
Mjer þótti það hálfeinkennilegt, að hæstv. forsætisráðh. (J. M.) skyldi mæla helst með þeim brtt. einstakra þm., er ganga lengst móti stjórnarfrv., t. d. brtt. háttv. 1. þm. Rang. (E. P.), en móti brtt. háttv. 1. landsk. varaþm. (S. F.), en hún fór næst því, er stendur í stjórnarfrv. Finst mjer það illa farið að flutningsmönnum frv. skuli þykja það lakast, er kemur frá þeim sjálfum, og því fremur þegar um stjórnarfrv. er að ræða.
Nefndin hafði bundið sig við skipun þá á læknahjeruðum er læknafundurinn lagði til að gerð yrði. Hv. Nd. breytti því á þá leið, að hún færði 3 hjeruð upp í hærri launaflokk. Sje jeg ekki, að betri grundvöllur fáist til að byggja á en álit læknafundarins, og því ástæðulaust að flytja þessi hjeruð um set.
Frv. þetta er nú búið að ganga á milli beggja deilda. Hafa komið fjölmargar brtt. við það og þær flestar verið taldar til bóta. Líst mjer því ekki á blikuna, og álít jeg að ef til vill hefði verið eins mikil ástæða til að vísa því aftur til stjórnarinnar og frv. um refaeldi, enda býst jeg fastlega við, að lögin þurfi fljótt lagfæringar við.