13.09.1919
Efri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)

26. mál, laun embættismanna

Sigurjón Friðjónsson:

Jeg býst við því, að jeg komist ekki hjá því að fara nokkrum orðum um brtt. mínar á þgskj. 749, og vil þá um leið nota tækifærið til að minnast nokkuð á málið alment.

Jeg fór í þeirri trú af þingi í fyrra, að ekki yrði hjá því komist að bæta kjör embættismanna að mun. Og jeg kom aftur á þetta þing í þeim hug, að verða stuðningsmaður sanngjarnrar launahækkunar. En um það má segja, að „verður það, er varir, og það, er ekki varir“. Því eins og málinu er nú komið, er líklegast, að jeg geti ekki látið atkv. mitt fylgja frv. út úr deildinni. Vil jeg nú gera grein fyrir afstöðu minni til þess með nokkrum orðum.

Þetta mál má skoða frá ýmsum sjónarmiðum, og skal jeg nefna fyrst sjónarmið landssjóðs og þeirra manna, sem fyrir hag hans eiga sjerstaklega að sjá. Þegar launamálið er athugað frá því sjónarmiði, tekur maður fyrst eftir því, að horfur eru á að minsta kosti 2. milj. kr. tekjuhalla á næsta fjárhagstímabili, og það þrátt fyrir það, þó bætt hafi verið tollum á tolla ofan á þessu þingi, bæði óvinsælum og rjettlátum. En megnið af þessum aukna tekjuhalla stafar einmitt einkum af hækkun embættalaunanna. Það er sjálfsagt rjett, að sjá verði embættismönnum fyrir sæmilegum launum, hvað sem líður hag landssjóðs. En menn eru litlu nær fyrir, þó það sje viðurkent, því skoðanir manna um það, hvað sje sæmilegt, eru mjög mismunandi. Og yfirleitt verð jeg að undrast það hversu litlar upplýsingar fylgja þessu frv. um raunverulega launaþörf embættismanna. Jeg minnist þess ekki að hafa sjeð neitt ábyggilegt í skjölum málsins um tekjuþörf embættismanna, nema helst áætlun um útgjöld embættismannsheimilis í Reykjavík í árbók háskólans f. á. En þó sú áætlun sje allsennileg, virðist mjer viðurhlutamikið að byggja á henni einni í svo stóru máli. Í þessu sambandi má til samanburðar minna á það, að 1916 komu víða í blöðum og tímaritum greinar og áætlanir um tekjur landbúnaðarins árið 1915, meðal annars eftir merkisprest á Austurlandi og bónda í Rangárvallasýslu. Beindust þær í þá átt að sýna, að landbúnaðurinn hefði tæplega eða ekki borið sig þá — og var þó veltiár.

Er þetta til marks um það, hve áætlunum má ýmislega haga og hve lítið er einatt á þeim að byggja.

Það er sjónarmið embættismanna, sem þetta mál hefir einkum verið athugað frá á þessu þingi.

En frá því sjónarmiði sjeð virðast mjer sjerstaklega koma til greina þrjú atriði sem grundvöllur krafanna um launahækkun, í fyrsta lagi launahækkunarþörfin sjálf, í öðru lagi almenn verðhækkun lífsnauðsynja og rjettmæti tilsvarandi launahækkunar, og í þriðja lagi, að betri kjör sjeu í boði annarsstaðar en hjá ríkinu. Merkast af þessum atriðum virðist mjer það fyrsta, um launaþörfina, eða það, að launin nægi nú ekki, og mun jeg víkja að því á eftir. Um annað atriðið er það skemst að segja, að auðvitað eiga embættismenn heimting á launum í rjettu hlutfalli við aðra, en þá er eftir að rannsaka það hlutfall og ákveða, og kem jeg líka að því síðar. Þá er þriðja atriðið, og er ekki laust við, að reynt hafi verið að gera einna mest úr því, þó það sje í rauninni veigaminst. Menn þykjast sem sje sjá hættu á því, að embættismenn yfirgefi störf sín, ef ekki verði hækkuð launin eins og þeir vilja sjálfir. En jeg fyrir mitt leyti lít svo á, að aldrei geti komið til mála, að ríkið geti kept við bestu boð frá einstaklingum, t. d. kaupmönnum, sem venjulega skamta sjer launin sjálfir, og fá einatt orð fyrir að sníða fullbreiðar lengjur í skæði sín af hrygg almennings. Yfirleitt virðist mjer kenna fullmikillar frekju, sjerdrægni og samhendarleysis með almenningi hjá embættismönnunum í þessu máli, og tel þeim það ekki til sóma.

Þá kem jeg að þeirri ástæðu, að embættismenn hafi rjett til launahækkunar í hlutfalli við verðhækkunina. Lagarjettur er þetta auðvitað ekki, en þar fyrir getur það verið náttúrlegur rjettur. Í þessu sambandi er það aðallega tvent, sem komið getur til greina, almenn tekjuhækkun landsmanna og verðhækkun nauðsynjanna

Eftir bestu heimildum hafa tekjur landsins ekki aukist nærri því að sama skapi og launakröfurnar, sem farið er fram á. Samkvæmt verslunarskýrslum nam vöruútflutningurinn árið 1914 ca. 20 milj. kr., en rúmlega 40 milj. kr. síðastl. ár, eftir þeirra sögn, sem kunnugastir eru. En þegar litið er á verðlækkun lífsnauðsynja, er í Hagtíðindunum talið að hún sje um 233% í júlí þ. á., frá því 1914. Þetta er mikil hækkun, en þó skilst mjer, að sú launahækkun, sem gert er ráð fyrir, sje hlutfallslega enn þá meiri. Því eftir þeim gögnum sem fyrir liggja, var launaupphæðin áður, þ. e. fyrir stríðið, ca. 600 þús. kr., en nú um 736 þús. Samkvæmt stjórnarfrv. eiga föst laun að vera um 1 milj. kr., og hækkunin orðin um 66%, en samkvæmt till. nefndarinnar eiga sömu laun að verða ca. 1 milj. 145 þús. kr., og hækkunin þar er því um 90%, en öll laun saman lögð þ. e. með dýrtíðaruppbót, áætlast eftir till. nefndarinnar um 2 milj. og 200 þús. kr., og þar er því hækkunin um 270%, og er það augsýnilega meira en þær hækkanir, sem áður voru nefndar, á tekjum þjóðarinnar og lífsnauðsynjum. Að vísu má segja, að það rugli nokkuð þessi hlutföll, að launamönnum hefir fjölgað. En það virðist þó mega telja það víst, að launahækkunin sje yfirleitt fullkomlega á móts við verðhækkun lífsnauðsynjanna, og mikið meiri en hækkunin á meðaltekjum almennings, því ætla má, að hlutföll þeirra þjóðartekna, sem út eru fluttar, og þeirra, sem neytt er í landinu, hafi ekki breyst mikið á stríðstímanum. Og mjer sýnist ekki annað rjettara en að embættismennirnir verði að þola með þjóðinni súrt og sætt, og laun þeirra því aðallega að miðast við þjóðartekjurnar, með rjettu tilliti þó til námskostnaðar og annara sjerstaklegra menningarþarfa.

Nú hefi jeg talað um tvær af ástæðunum fyrir hækkuninni og sýnt fram á, að þær eru reistar á hæpnum grundvelli. Þá er eftir þriðja og veigamesta ástæðan, launahækkunarþörfin. Jeg hefi áður tekið það fram, hversu ótrúlega lítið liggur fyrir af upplýsingum um launaþörf embættismanna. Jeg hefi því reynt að gera mjer nokkra grein fyrir þessu frá mínu sjónarmiði. Jeg get að vísu ekki hælt mjer af því, að þekking mín sje mikil á þessu sviði. En þó held jeg, að hún sje að ýmsu leyti meiri en margra annara. Jeg hefi verið deildarstjóri í einni af stærstu deildum kaupfjelags í Þingeyjarsýslu, og þar að auki endurskoðari reikninga þess. Við þetta hefi jeg fengið talsverða þekkingu á högum manna af ýmsum stjettum á allstóru hjeraðssvæði. Af því mjer virðist læknastjettin hafa togað sinn hlut í frekara lagi fram í þessu frv., skal jeg geta þess, að mjer er allvel kunnugt um fjárhag eins læknis á þessu svæði, og veit, að hann er að vísu fremur örðugur, en hefir þó farið heldur batnandi og staðist dýrtíðina ekki ver en í meðallagi þar í sveit, og hefir þó læknirinn leyft sjer meira, sem að lífsþægindum lýtur, en almenningur.

En ef launahækkunin, sem gert er ráð fyrir í frv., nær fram að ganga, mundu tekjur hans að líkindum hækka um rúman helming frá því, sem nú er, en ca. fimmfaldast frá því, sem var fyrir stríðið, að frátöldum aukatekjum. Og af þeim kynnum, sem jeg hefi af högum presta og sýslumanna, virðist mjer, að þeir hafi sloppið ekki ver en almenningur, nema prestar þeir, sem lítið eða ekki hafa haft við bú að styðjast. En vel skil jeg, að þessu sje öðruvísi háttað hjer í Reykjavík og víðar í kaupstöðum, sökum dýrara húsnæðis, eldsneytis o. fl. Jeg hefi reynt að afla mjer upplýsinga um það, hvað þurfi til lífsframfæris hjer í Reykjavík, og hníga þær upplýsingar helst að því, að ekki sje á mann, og mun það þó tæplega hrökkva, þegar fáir eru í heimili — þó að spart sje á haldið — því þar verða ýms útgjöld tiltölulega meiri. Indriði Einarsson hefir í ritgerð um þjóðartekjurnar, í „Iðunni“ 1917, talið, að hjer á landi kæmu 3 menn á hvern framfæranda, þ. e. að meðalheimili væri ekki stærra en svo. Slíku heimili ætti þá að ætla 3000–3500 kr. lágmarkslaun, 7 manna heimili nálægt 7000 kr. launum o. s. frv. Lægstu laun einhleypra manna gætu þannig talist hæfilega sett 1200–1500 kr., hæstu lágmarkslaun fjölskyldumanna um 10000 kr. Jeg játa, að þetta væru ekki neitt sjerlega rífleg laun, en álít, að þau mættu, eftir atvikum, teljast viðunandi.

Að öllu þessu athuguðu virðist mjer, að saman borið við allan hag almennings sje farið fulllangt í ýmsum atriðum launafrv., þegar dýrtíðaruppbótin er tekin til greina, og sje nokkur lækkun því ekki ósanngjörn.