13.09.1919
Efri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (1084)

26. mál, laun embættismanna

Eggert Pálsson:

Jeg ætla að eins að fara fáum orðum um brtt. mína á þgskj. 769. Þar er farið fram á, að allir sýslumenn sjeu settir í einn launaflokk, að undanteknum sýslumönnunum í Ísafjarðarsýslu, Norður-Múlasýslu og Eyjafjarðarsýslu. Jeg skal strax benda á, að það er rangnefni í till. að tala um sýslumanninn í Vestmannaeyjasýslu. Hann er að eins bæjarfógeti, og ætti að mega breyta þessu á skrifstofunni. Munurinn á launum sýslumanna, í 3. og 4. málsgrein, er orðinn svo lítill, að ekki er vert að vera að greina þá flokka sundur, nje halda nokkrum eftir. Það er, eins og allir vita, þörf sama undirbúnings og þekkingar til allra þessara embætta, og hvað snertir mismun á annríki þessara embætta, þá á það að koma fram í embættiskostnaðinum, en ekki í föstu laununum. Alt getur komið í sama stað niður, þó brtt. mín verði samþ. Það þarf ekki annað til en áætla kostnað af rekstri embættisins 200 kr. lægri fyrir þau embætti, sem hækkuð verða í launaflokki. Jeg tók ekki lögreglustjórann á Siglufirði með í brtt., því það embætti er nokkuð sjerstætt. Honum er ætlað 2500 kr. byrjunarkaup, sem er nokkru meira en laun fulltrúanna í stjórnarráðinu. Það liggur því næst að skoða þessar stöður sem prófstöður, áður en menn eru fluttir upp í hærri og ábyrgðarmeiri embætti. Lögreglustjórastaðan á Siglufirði er þar að auki ekki erfið Meiri hluta ársins er þar mjög lítið að gert.

Jeg get ekki fylgt brtt. hv. l. landsk. varaþm. (S. F.), þegar af þeirri ástæðu, að þar er um svo stórfelda breytingu að ræða, að hún myndi stofna frv. í heild sinni í voða, ef hún væri samþykt svona seint á þingi.

Í eðli sínu hefi jeg ekkert á móti brtt. hv. þm. G.-K. (K. D.), um hækkun á hámarkslaunum. En eins og komið er, álít jeg viðurhlutamikið að hrófla nokkuð við þessu ákvæði. Það gæti orðið frv. að fótakefli í hv. Nd. Eins mundi það koma illa heim, ef brtt. yrði samþ., að sagt er, að „engin uppbót skuli greidd af launum, sem eru hærri“, því þessi hærri laun eru ekki til. Jeg mun því greiða atkv. móti brtt. hv. þm. G.-K. (K. D.), en hefði þó sennilega geta felt mig við 10,000 kr. hámark, ef það hefði upphaflega verið lagt til.