18.09.1919
Neðri deild: 67. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)
26. mál, laun embættismanna
Þorsteinn Jónsson:
Jeg hefi borið fram brtt. á þgskj. 838, sem fer í sömu átt og brtt. sú, er háttv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) hefir borið fram. Ed. hefir gert þá breytingu um Hróarstunguhjerað, að setja lækninn þar í 2. launaflokk. En í frv., er það fór frá hv. Nd., var sá læknir í hæsta launaflokki.
Jeg tók það fram við 2. umr. launalaganna í þessari hv. deild, að læknafundurinn hefði lagt til, að þetta hjerað væri í hæsta flokki. En launanefnd setti það í 2. flokk, af því að aukatekjur læknisins þar voru dálítið hærri en þess flokks lækna, sem settir voru í hæsta flokk. Ástæður þær, sem jeg bar fram þá, þarf jeg ekki að endurtaka. En þar sem bæði læknafundurinn, sem ætla má að þessum hnútum sje kunnugastur, og hv. deild síðan, hafa litið svo á, að þetta hjerað eigi að vera í hæsta flokki, þá vona jeg, að hv. deild samþykki það nú aftur. Býst jeg við, að þessi breyting hafi komist inn í hv. Ed. vegna ókunnugleika. Þetta hjerað er eitt með erfiðustu hjeruðum landsins, og lengi var það, að enginn læknir fekst til hjeraðsins. En launanefnd hefir yfirleitt, eins og sjálfsagt er tekið tillit til þess, er um laun lækna er að ræða, hve hjeruðin eru erfið, sem þeir þjóna. Hafa mjer virst ýms hjeruð, er hún hefir sett í 1. launaflokk, ekki frekar eiga þar heima en Hróarstunguhjerað. Jeg þekki t. d. bæði Vopnafjarðarhjerað og Fljótsdalshjerað, og tel ekki ástæðu til að hafa þau í hærra flokki en Hróarstunguhjerað. Þessi hjeruð eru mjög sviplík því að aukatekjum, en Hróarstunguhjerað einna erfiðast yfirsóknar.