08.09.1919
Neðri deild: 58. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í B-deild Alþingistíðinda. (110)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Frsm. fjárveitinganefndar (Bjarni Jónsson):

Nú liggur heldur lítið verk fyrir mjer, því að sumpart mun jeg ekki þrátta um minni háttar tillögur annara, þær sem nefndin leggur litla áherslu á, og auk þess hafa lítil andmæli komið gegn tillögum nefndarinnar.

Það hafa orðið nokkrar umræður um brtt. á þgskj. 722, um styrkinn til fjelagsins „Íslendingur“ til að halda við andlegu sambandi og viðkynningu við Íslendinga vestan hafs. Nefndin hefir ekki getað fallist á þessa fjárveitingu, sjerstaklega af því, að hún vissi ekki, til hvers ætti að verja fjenu, eða hvernig væri hugsað sjer að halda við þessu andlega sambandi milli landanna. hvort það væri til að rita bækur fyrir eða senda Íslendingum vestan hafs bækur, eða til hvers annars því skyldi varið. En nú hefir það komið fram undir umræðunum, að hin háa styrkveiting fyrra árið ætti að ganga til ákveðins manns, er senda skyldi vestur um haf. Það mundi hafa verið betra fyrir málið að umsækjendur hefðu þegar í umsókninni skýrt frá þessari fyrirætlun og nefnt manninn, sem ætlaður er til fararinnar, því að bera má fult traust til, að maður þessi fari með skynsemd með mál vort og verði oss til sæmdar vestra; hann er að svo góðu kunnur; það er alt annað en ef búast hefði mátt við, að einhver vandsjeður rekabútur yrði ráðinn til fararinnar. Sumir nefndarmanna mundu hafa verið öllu fúsari á að veita fje til þess að styðja Vestur-Íslendinga til að flytja heim, þá er þess óskuðu, en skorti fje til heimferðar, því að þjóðerni þeirra manna ætti þó að vera borgið. Þá mundu og sumir fremur kjósa, að veitt væri fje til að halda við þjóðerni Íslendinga hjer heima, þar sem svo margir taka nú að kasta nöfnum feðra sinna, en taka upp ýms ónöfn í staðinn og hafna fornum og góðum feðrasiðum. Hefðu umsækjendur vel mátt festa í huga sjer orð skáldsins:

„Maður, líttu þjer nær,

liggur í götunni steinn.“

Jeg teldi það meira um vert fyrir Íslendinga vestan hafs og heima, að stjórnin ljeti starfa að því, að útvega mönnum vestan hafs jarðnæði hjer heima, eða einhverja hagkvæma atvinnu. Sumir, sem heim hafa komið, hafa horfið vestur aftur, af því að ekki hefir legið opin fyrir þeim hæfileg atvinna eða jarðnæði. Mundi það vera viturlegast ráð til þess að halda við sambandi milli Íslendinga heima og vestra, að stjórnin stuðlaði að því, að sem flestir Íslendingar flyttu heim aftur. Hjer hlýtur að vera nóg handa þeim að starfa í fólkseklu þeirri, sem nú þjáir landið. Jeg vildi fá að heyra undirtektir stjórnarinnar undir þetta. Ef þær skyldu reynast daufar, mundi jeg fús á að bera fram þingsályktunartill., er skoraði á stjórnina að taka mál þetta til íhugunar.

Hv. frsm. fyrri hlutans (M. P.) hefir leyst mig af hólmi, að því er kemur til brtt. við 15. gr. 19. b. Kann jeg honum þökk fyrir að leysa mig undan að tala mikið um þann lið, því að hann er mjer svo nákominn. Þó vildi jeg í greiðaskyni benda hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó ) á eitt atriði, sem hann hefir líklega ekki tekið eftir þegar hann rjeðst í fyrirtæki þetta. En um leið verð jeg að fara nokkuð aftur í tímann. Þegar jeg hætti fyrirvaralítið viðskiftaráðunautsstarfinu, þá stóð jeg uppi atvinnulaus: þótti þinginu þá nokkuð hart að skilja mig eftir úti á gaddinum, og veitti mjer 1200 kr. til ritstarfa; en af því að jeg fann það best sjálfur, að jeg er hvorki stórskáld nje ritsnillingur, tók jeg að velta því fyrir mjer, hvaða starf jeg skyldi inna af hendi. þannig. að þingið hefði ekki vansa af fjárveitingu sinni. Varð niðurstaðan sú, að jeg rjeðst í að byrja á að þýða á íslenska tungu Faust eftir Goethe; jeg hafði lengi haft það í huga en jafnan dregist úr hömlu fyrir mjer, því mjer var það ljóst hvílíkt vandaverk það er., og taldi mig vanfæran til þess.

Þegar jeg hafði sýnt kunningjum mínum dálítið sýnishorn af þýðingunni, þá skoruðu um 100 mentamenn á mig að halda áfram þýðingunni, og varð það mjer mesta hvöt til þess að halda starfinu áfram og vanda það sem mest. Hv. þm. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) heggur annars nokkuð nærri sínum garði, er hann vill bana fjárveitingu þessari, því að jeg veit ekki betur en hann sje hagvanur í Tímans högum, en án þess jeg vilji þreyta hv. deild á því, að lesa upp nöfn allra þeirra, sem undir áskoruninni stand. vil jeg þó geta þess, að einn í þeim hóp er sjálfur ritstjóri Tímans: þar getur að líta nafn hans, ritað með eigin hendi og fleiri eru þar nöfn Tímans manna. Það er meira en illa gert, og lýsir lítilli ræktarsemi háttv. þm. (Sv Ó.), að snúast nú móti meistara sínum, ritstjóra Tímans, er hann kvað fylgja gegnum þykt og þunt. Þykist jeg nú hafa goldið greiða með greiða, og sleppi að tala fleira um þetta.

Þá verð jeg að minnast á eina till., þótt jeg geri það nauðugur; það er brtt. á þgskj. 714. um 2000 kr. styrk á ári til Hallgríms Hallgrímssonar. sagnfræðings, til að rannsaka og skrifa sögu Íslands yfir tímabilið 1800 til 1. desember 1918. Jeg mæli nauðugur móti þessari till., af því að jeg vil manninum vel og vildi vinna að því, að hann gæti fengið lífvænlega stöðu, þar sem honum gæfist góður kostur á að stunda fræðigrein sína. En eftir þeirri nasasjón sem jeg hefi á þessari fræðigrein, þá mun engin þjóð hafa ætlað nokkrum sinna manna þá dul að rita sögu þjóðarinnar fram á síðustu ár; slíkt er ofætlun. Jeg veit, að maður þessi er vel gáfaður og vel að sjer og hann hefir vitnisburð kennara síns, Arups prófessors, um það að hann sje dugnaðarmaður og sagnfróður vel. En jeg veit líka, að hans sjergrein við sögunámið var ekki saga Íslands heldur Englandssaga á seinni öldum. Nú er það eigi að síður vitað, að maðurinn hefir þá undirstöðuþekking í sagnfræði, að hann á að geta orðið vel að sjer í sögu Íslands: og jeg mundi hafa mælt með honum til styrks til að rannsaka eitthvert annað tímabil í sögu vorri en þetta hið síðasta; það liggur of nærri til hlutdrægnislausrar rannsóknar: síst er það og, að jeg telji styrkinn of háan.

Maður sá, er hjer ræðir um, er ungur að aldri og hefir dvalist erlendis nú á meðan skapast hefir síðasti og merkasti þáttur sögu sjálfstæðisbaráttu okkar. Þess er og vart að vænta, að hann eða nokkur annar, geti verið laus við alt flokksfylgi eða sje laus við að vera tengdur vináttu- og samúðarböndum ýmsum þeim mönnum, er í stríði þessara síðustu tíma hafa staðið, og það nægir eitt til þess, að óhlutdræg saga verður eigi rituð af samtímismanni söguviðburðanna, og þótt einhver vildi hugsa sjer, að slíkt mætti verða. þá yrði allur helmingur slíkrar sögu einskisvirði, því að fjöldi söguheimilda samtíðarinnar liggur dulinn í brjefum einstakra manna, eða í ritgerðum og brjefum í skjalasöfnum, sendum þangað með því skilorði, að eigi megi þau opna eða nokkrum óviðkomandi í hendur seld fyr en eftir ákveðinn árafjölda. Ef tillögumenn vildu breyta þannig till. sinni, að manni þessum væri ætlað annað verkefni, þá mundi jeg mæla með, og eigi minni styrk en hjer er nefndur. En af því jeg hefi dálitla nasasjón af sagnfræði og söguritun. þá get jeg engum trúað fyrir að rita slíka sögu, sem hjer er gert ráð fyrir, hvorki yngra manni nje eldra, svo að ábyggileg og óhlutdræg verði.

Jeg hefi ásamt öðrum hv. þm. komið með till. um, að Byggingarfjelagi Reykjavíkur sje veittur styrkur til að reisa hús hjer í bæ. Fjelag þetta er samvinnufjelag, og ætlar að gangast fyrir því að reisa hús handa efnalitlum fjölskyldum. Það á ekki að verða gróðafjelag, en á að hjálpa mönnum til að eignast þak yfir höfuðið. Það er farið fram á, að ríkið veiti fjelagi þessu 15% af byggingarkostnaði húsa þeirra, er það reisir, þó ekki yfir 18000 kr. á ári gegn því að Reykjavíkurbær leggi fram helmingi meira, eða 30%; þetta mundi svara til þess, að fjelagið gæti með þessum tvöfalda styrk, bygt hús fyrir hjer um bil 120000 kr. á ári. Vera má, að það þyki allmikið harðræði að heimta af bænum 30%, því að sjálfsagt kæmi það mest niður á húseigendum, sem búa undir þungum álögum og hörðum húsaleigulögum. En nýjar húsabyggingar ættu að verða til þess að hinum óvinsælu húsaleigulögum verði ljett af fyr en ella, og flestir munu sammála um að þau þurfi, sem fyrst að auðið er, að hverfa úr sögunni. Jeg vænti þess að allir, sem hlyntir eru samvinnustefnunni muni greiða frv. þessu atkv. og styðja með því þennan nýja samvinnufjelagsskap. Þeir, sem ekki hafa sjeð lög fjelags þessa, geta fengið þau hjá mjer, og vona jeg, að þeir muni gefa málinu fúslega atkvæði sitt, þegar þeir hafa kynt sjer lögin.

Að endingu leyfi jeg mjer að gera nokkrar almennar athugasemdir, og þótt jeg sje lítill fjármálamaður, þá vona jeg að kettinum leyfist að líta á kónginn, og jeg vænti, að hv. þingdeildarmenn ljái orðum mínum eyra, þótt ekki verði þau jafnviturleg sem sumra annara.

Það hefir mjög verið kvartað yfir því að upphæðirnar í fjárlögunum væru ærið háar að þessu sinni, og að um 2 miljónir muni vanta á, að tekjurnar hrökkvi fyrir gjöldunum. Þetta mun nú rjett vera, en það er ekki nema eðlilegt. Peningar hafa fallið stórum í verði, og menn geta nú ekki lifað á sömu krónutölu sem fyr; því þarf nú fleiri krónur til samskonar fyrirtækja sem fyr, og öll laun og styrkir hljóta að hækka stórum að krónutali. Geta menn best áttað sig á þessu með því að bera saman krónur og landaura. Fyrir stríðið var alinin um 60 aura, og 1000 álnir þá 600 kr. eða 1000 kr. 16662/3 alin; en nú er alinin um 1,44 kr. og 1000 álnirnar 1440 kr. og þá 1000 kr. nú ekki nema rúmar 694 álnir. Alinin er nú orðin nálega þrefalt hærri en hún var fyrir stríðið, og hverjar 1000 kr. nú ekki meira virði en um 350 kr. áður.

Verðmæti 1000 kr. nú er ekki meira en verðmæti 340 kr. áður, fyrir stríðið.

Þetta kemur líka alveg heim við reynslu mína og annara, að margfalda þarf með 3 hverja peningaupphæð, sem varið er fyrir lífsnauðsynjar.

Ef einhverjum dugðu 3000 kr. fyrir stríðið, þá kemst sá maður ekki af með minna nú en 9000 kr. Þetta er þá alt saman eðlilegt, og undan því verður ekki komist.

Þetta er því ekki af eyðslusemi háttv. fjárveitinganefndar, eða þingsins, að hækka verður svo laun öll og fjárveitingar, heldur er það bein afleiðing stríðsins

Og þótt mönnum finnist það súrt í brotið að verða að hækka svo krónutöluna, þá dugir ekki um það að fást; nauðsynin knýr.

En þá er vandinn, hversu ríkið eigi að afla sjer þessa fjár aftur.

Nú er það auðsætt, að ef þrefalda þarf útgjöldin, þá verður líka að þrefalda tekjurnar.

Nú hafa menn hitt á það ráð, að nota vísitölu til þess að reikna eftir laun embættismanna. Sú vísitala er nú ekkert annað en verðlagsskrárhlutfallið, sem jeg las upp áðan. Og hvað er þá eðlilegra, þegar gjöldin eru margfölduð með 2,4, eða hækkuð um 140%, en að fara þá eins að með tekjurnar. Það, sem er þjóðinni nauðsynlegt til útgjalda, það verður hún sjálf að borga.

Ef einhver heldur, að þetta sje skakt hugsað, þá er það misskilningur hjá honum, svo framarlega, sem tollar og skattar hafa verið rjettlátir áður.

Það hefir heldur enginn sýnt fram á að væri rangt, að menn greiddu nú þrefalt meira í ríkissjóð en áður.

Sá, sem selur nú eina á, loðna og lembda, fyrir 100 kr., en seldi hana, áður fyrir 15–20 kr., hann á sannarlega ekki erfiðara með að borga 3 kr. nú en 1 kr. fyrir stríðið.

En nauðsynin heimtar gjöldin, og sá, sem verður að reikna gjöld sín nú eftir þessari vísitölu, hann verður líka að heimta tekjur sínar eftir samskonar reikningi.

Auðvitað má ekki margfalda alla tolla, t. d. sykurtollinn, sem var of hár áður, og ekki heldur það, sem lagt hefir verið á á þessu þingi. Um það er alt öðru máli að gegna.

En hjer verður ekki bæði slept og haldið.

Hjer þýðir ekkert smánurl. Annaðhvort verður að strika út allan þorra gjaldanna, svo að ekki standi eftir nema 1/3, og mun þá nægilegt vera til í þau, eða láta þau halda sjer, og taka þetta eina rjetta ráð til að fá fje í þau.

Hjer dugir ekki að fara að eins og hvolpur, sem eltir rófuna á sjálfum sjer, og tala stundum um krónuna eins og hún hafi fult gildi, en aðra stundina eins hún sje að eins 1/3 af sjálfri sjer

Þetta er svo augljóst mál, að menn ættu ekki að þurfa að heyra það að munni barna og fáfræðinga í fjármálum, eins og þeim þm., sem nú talar.