18.09.1919
Neðri deild: 67. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1100)
26. mál, laun embættismanna
Sigurður Stefánsson:
Jeg þarf ekki að tala um viðaukatill. mína á þgskj. 843. Hv. frsm. (Þór. J.) er henni samþykkur, þar sem hún er eðlileg afleiðing af því, að Hólshjerað hefir verið samþykt.
En mig langar að víkja fáum orðum að brtt. á þgskj. 847, og þá sjerstaklega e-lið hennar. Það er, eins og menn vita, afturganga frá fyrri umr. þessa máls hjer. Er það hin mesta furða, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) skuli hafa þolinmæði til að vekja þennan draug upp á ný og sleikja hann svo rækilega. Það er þessi sífelda árás á þessa vesalings presta. Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) þykist gera þeim vel til með því, að ætla þeim dýrtíðaruppbót. af því að stjórnin ætlaði þeim ekki nema 500 kr., og telur það sæmilegt í samanburði við það. Játa jeg það rjett vera, því að það var hreinasta smánaruppbót.
Það er einlægt verið að endurtaka, að það sjeu svoddan hlunnindi fyrir presta að búa í sveit. Jeg get alls ekki fallist á. að það út af fyrir sig sje rjettmæt ástæða til að lækka dýrtíðaruppbót þeirra. Þegar litið er til þess, hvernig landbúnaðurinn er orðinn, þá hygg jeg, að menn hljóti að játa, að sömu erfiðleikarnir muni ganga yfir presta í sveit sem aðra bændur. Þessi bújarðahlunnindi prestanna eru svo langt frá því að vera nokkur hlunnindi, að þau eru stundum hin mestu óþægindi fyrir prestana. Það er orðið svo dýrt að reka þessar bújarðir prestanna, að það má telja frágangssök fyrir unga og efnalausa presta að reisa bú á þeim. Lögin eru þó víst líka samin fyrir ungu prestana sem smámsaman koma í embætti, en ekki fyrir þá eina, sem nú sitja í embættum. Það er vitanlegt, að landbúskapurinn hjer er orðinn mestmegnis einyrkjabúskapur, og má því nærri geta, hve þægilegt er ungum prestum að byrja búskap á stórum jörðum, enda eru þess dæmin í seinni tíð, að prestar hafa sama sem flosnað upp af góðum jörðum eftir skamman tíma, og jeg veit ekki betur en bændur hjer á þingi telji sömu hættuna vofa yfir landbúnaðinum, ef líku fer fram með dýrtíð og verkalaunahækkun og að undanförnu.
Menn mega ekki einblína á þau hlunnindi, sem prestar höfðu áður af búskap í sveit, því nú eru þau orðin hverfandi. Samkvæmt þessum lögum eru prestarnir olnbogabörn ríkisins, settir miklu lægra að launum en aðrir starfsmenn þess, og samt þykir nokkrum hv. þm. sæmandi að klípa af dýrtíðaruppbót þeirra og láta þá fá að eins helming hennar móts við aðra embættismenn. Þá vil jeg og bæta einu við, sem sýnir hvað prestarnir eru illa staddir. Þessum stóru jörðum fylgja vanalega stór húsakynni; stundum eru þau svo fallin, að presturinn verður að reisa þau upp með hinum svo nefndu prestakallalánum, sem telja má ein verstu lán á voru landi og jafnan miklu minni en þarf til að byggja upp prestssetrin. Þó að presturinn, auk þeirra lána, sem heimtuð eru undan hans blóðugu nöglum, hafi lagt mörg þúsund krónur frá sjálfum sjer, þá fær hann ekki eyri fyrir þau framlög sín, er hann flytur frá jörðinni, á ekkert í húsinu, þótt hann hafi lagt í það tugi þúsunda, heldur verður hann að svara álagi ofan á alt saman, og það þótt hann hafi bætt jörðina stórum. Við þetta eru aðrir embættismenn lausir. En úr því að farið er nú að gera þennan mun á dýrtíðaruppbót sveitapresta og annara embættismanna, hvers vegna þá ekki að láta það ná til annara embættismanna, er í sveit búa? Af prestunum er líka tekið afgjald eftir jarðirnar, svo að þeir fá jörðina ekki fría. Það mætti líka alveg eins fara að ganga í grafgötur um það, hvaða embættismenn ættu hluti í sjávarútvegi, og draga af dýrtíðaruppbót þeirra, er tekjur hefðu af slíku. Það er sem sje kunnugt, að hjer í Reykjavík eru embættismenn, sem eiga stóra hluti í sjávarútvegi og öðrum gróðavænlegum fyrirtækjum, og sama má segja um suma embættismenn úti um land, er við sjó búa. Jeg segi þetta ekki til þess, að farið væri að framkvæma þetta, heldur til þess, að sýna ósamræmið hjá þeim hv. þm., og þar á meðal hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), sem altaf eru að eltast við þessi hlunnindi prestanna, sem þó hafa langminst launin. Jeg veit, að hv. Ed. lítur sanngjörnum og rjettlátum augum á þetta mál, og mun aldrei líða slíkt ranglæti, sem brtt. hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) fer fram á, og ef því hv. Nd. ekki samþykkir frv., eins og það kom frá henni, þá mun frv. fara í sameinað þing. En slíkan flæking þykir mjer þetta frv. ekki eiga skilið fyrir þennan ómerkilega uppvakning.