18.09.1919
Neðri deild: 67. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)
26. mál, laun embættismanna
Magnús Guðmundsson:
Jeg hefi ekki tekið eftir því fyr en nú, að með þessu frv. eru ekki numin úr gildi gömlu dýrtíðaruppbótarlögin. Leyfi jeg mjer því að koma með brtt., er ræður bót á þessu. Vona jeg, að nefndin gangi inn á þetta, enda hygg jeg, að sú hafi verið tilætlun hennar. Aftur á móti býst jeg við, að dýrtíðaruppbót fyrir síðara helming þessa árs verði greidd eftir núgildandi lögum til allra þeirra, sem ekki taka laun sín eftir nýju launalögunum. Brtt. mín kemur því inn í 34. gr. frv., á eftir orðunum „laun sóknarpresta“, og verður á þessa leið: ......
(Sjá A. 904).