18.09.1919
Neðri deild: 67. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)
26. mál, laun embættismanna
Björn R. Stefánsson:
Jeg hafði ekki ætlað mjer að hafa önnur afskifti af þessu máli hjer í deildinni en að greiða atkv., er til kæmi, eftir því, sem jeg teldi rjett vera. En þá var það hv. þm. N.-Ísf. (S. St.), sem kom mjer til þess að segja nokkur orð um c.-lið till. á þgskj. 847. Jeg ætla að greiða atkv. með þeim lið, en vil þó láta þess getið, að það er ekki af þeim ástæðum, að jeg vilji setja prestana skör lægra en aðra embættismenn, heldur af því, að jeg álít þá betur setta en flesta aðra. á ýmsan hátt. Þeir eru ekki eins bundnir við sitt starf og t. d. læknar, sem um má segja, að aldrei megi um frjálst höfuð strjúka, og mega búast við því að vera rifnir að heiman þegar minst vonum varir. Hv. þm. (S. St.) vildi telja jarðahlunnindin byrði. Jeg vil ekki neita því, að ungir kandidatar, sem koma blankir frá prófborðinu, eigi erfitt með að nota sjer jarðirnar; að þær þurfi að vera þeim til byrði vil jeg þó ekki kannast við, því svo mikil eftirspurn er nú eftir jörðum í sveit, þar sem jeg þekki til, að jeg efast ekki um, að þeir prestar, sem ekki treysta sjer til að taka sjálfir jarðirnar, muni eiga hægt með að leigja þær fyrir þá upphæð — það eftirgjald — sem þeim eru metnar þær upp í tekjur sínar, og tryggja sjer einhver hlunnindi um leið. (S. St.: Og vera svo húsviltir sjálfir). Það eru læknarnir líka víða, og verða sjálfir að sjá fyrir því. Prestarnir eru að því leyti ekkert ver settir en þeir. Af þeim ástæðum, sem jeg hefi nú lýst, raun jeg greiða atkv. með c.-lið till. á þgskj. 847, en ekki af því, að jeg vilji setja prestana að nokkru leyti skör lægra en aðra embættismenn. Annars furðar mig á því, að hv. þm. (S. St.) skyldi geta setið á sjer um daginn, er verið var að tala um aðskilnað ríkis og kirkju, því þá fengu prestarnir marga hnútuna, sem jeg taldi að þeir ættu ekki skilið. Ætlaði jeg að mótmæla þeim áburði þá, en þar eð þá var orðið svo áliðið dags, hætti jeg við það, en geri það aftur á móti nú, fyrst hv. þm. (S. St.) kom mjer til að standa upp. Jeg veit sem sje ekki betur en að ef það kemur til mála að leggja niður prestakall, þá rísi alþýðan öfug á móti því og vilji hafa prest áfram; og jeg veit ekki betur en að hjer fyrir þinginu hafi altaf legið beiðnir, og þær margar, um það, að sundurgreina aftur sem þau prestaköll, sem steypt hefir verið saman við önnur brauð. Þessar beiðnir mundu ekki liggja svona margar fyrir, ef vegur prestanna væri svo lítill hjá þjóðinni. Það eru því ranglátar getsakir, þegar verið er að bera þeim það á brýn, að þeir standi yfirleitt illa í stöðu sinni, og að alþýða lítilsvirði þá og hafi horn í síðu þeirra, eins og hátt var látið hjer um fyrir skemstu. Auðvitað má segja það að í þeirri stjett sem öðrum geti verið „misjafn sauður í mörgu fje“, en þó mun það alment, að prestar eru vel metnir menn í sinni sveit, og margir þeirra vinsælir og vel metnir sveita- og hjeraðahöfðingjar, sem söfnuðirnir vilja ekki láta frá sjer taka.
Það er sagt, að prestar sjeu of margir, og jafnvel óþarfir með öllu, en þó er altaf söngurinn sami, ef taka á prest frá söfnuði eða fækka prestaköllum. Þetta sýnir, að þjóðin vill í raun og veru ekki án prestanna vera, og ef þeim fækkaði að mun, eða væru afnumdir alveg, þá held jeg, að sannaðist, að enginn veit hvað átt hefir fyr en mist hefir. Þjóðin mundi því alls ekki hætta að hafa presta, þó að ríki og kirkja væru aðskilin, eins og jeg tel að ætti að vera, eins og ríkið nú orðið stjórnar kirkju sinni. En út í það skal ekki farið.