18.07.1919
Efri deild: 10. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (1157)
25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina
Magnús Kristjánsson:
Jeg verð að segja það, að mjer virðist frv. þetta mjög óaðgengilegt, þótt brtt. hv. nefndar bæti nokkuð úr, en þó nægir hún ekki til þess að gera frv. aðgengilegt í mínum augum.
Það lítur svo út, að tilgangurinn sje sá, að gera tilraun til þess að afla kaupstöðunum tekna á þennan hátt, en þær tekjur verða að líkindum hvorki miklar nje eftirsóknarverðar.
Það er kunnugt, að sumar bæjarstjórnir ganga nokkuð langt í því að semja langa lagabálka, sem sjálfsagt ekki 10. hluti bæjarbúa kynnir sjer til nokkurrar hlítar, og verður þannig ekki nema fáum kunnugt, hvað leyfilegt er eða ekki. En hitt er víst, að varlega er farandi í að setja slíkar reglur, nema vissa sje fyrir því, að þær verði almenningi kunnar og að þær sjeu ekki óþarflega strangar, því að mínu áliti verður það oftast til þess að vekja mótþróa, í stað þess að bæta siðferðisástandið. Og um þetta frv. er það að segja, að ef það yrði þannig samþykt, þá yrðu þeir mjög fáir, sem int gætu af höndum slíkar sektir, og sje jeg þá ekki betur en að frv. miði að því að baka ríkinu kostnað, með því að menn verða með svo háum sektum neyddir til þess að afplána þær á annan hátt.
Jeg verð því að vera á móti frv., þótt jeg greiði brtt. nefndarinnar atkv., af því að hún er til bóta. Mun jeg síðan tala við nefndina eða sjálfur bera fram brtt. í þá átt, að færa hámarkið niður í 200 kr.; hærra má það ekki vera.