21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1382 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)
25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina
Karl Einarsson:
Jeg vil að eins mæla með því, að brtt. hv. þm. Ak. (M. K.) verði samþykt. Jeg sje enga ástæðu til að hækka hámark sektanna meira en upp í 200 kr. Það er oft vafasamt, hvort brot heyrir undir lögreglusamþykt, eða það á að fara með það sem sakamál, og þegar svo er, þá er hægt að hafa sektirnar bæði háar og lágar, því sektarákvæði hegningarlaganna eru svo rúm, og um flest stærri brot mun vera hægt að fá nóg önnur lög til að dæma eftir. 200 kr. sekt virðist vera fullhá fyrir smærri lögreglusamþyktarbrot, sem oft eru saklaus í eðli sínu.
Hina breytinguna tel jeg meinlausa, því aðalatriðið er, að hegningin komi rjett niður. Ef foreldrar, eins og hv. frsm. (Jóh. Jóh.) tók fram, nota börn sín til að láta þau erta nágranna sína, þá má hegna þeim eftir gildandi lögum. Jeg legg enga áherslu á, hvort sú breyting verður samþykt eða ekki.