04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1180)
25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina
Forsætisráðherra (J. M.):
Það ræður að líkindum, að jeg sje ekki á njóti þessari breytingu, því að hún færir frv. að mestu leyti aftur til þess, sem það var hjá stjórninni, eða öllu heldur bæjarstjórn Reykjavíkur. En jeg veit ekki samt, hvort það er ástæða til að breyta frá háttv. Ed. í þessu máli. Eftir byr þeim, er málið fekk þar, mætti jafnvel ætla, að þetta yrði til þess, að sektahámarkið yrði lækkað niður í t. d. 200 kr. Jeg er hræddur um, að frv. yrði aftur breytt í Ed., ef samþ. er 1000 kr. hámark í þessari háttv. deild. En ef til vill er ekki rjett að taka til greina vilja hv. Ed. í þessu máli. Þó vildi jeg gefa þessar upplýsingar, sem benda til þess, að háttv. Ed. muni ekki geta sætt sig við breytingu þessa, en að öðru leyti ræður háttv. deild, hvernig hún ræður málinu til lykta.