14.08.1919
Efri deild: 30. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)
25. mál, lögreglusamþykktir fyrir kaupstaðina
Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):
Í framhaldsnál. á þgskj. 339 er skýrt frá þeim 2 breytingum, er hv. Nd. hefir gert á frv. Þar er og skýrt frá því, að allsherjarnefnd þessarar hv. deildar telji aðra breytinguna til bóta, en geti ekki felt sig við hina, að sektarhámarkið sje aftur fært upp í 1000 kr., í stað 500. Til þess liggur sama ástæðan sem nefndin færði í fyrra nál., á þgskj. 85, að ákvæðin um afplánun fjesekta standa óbreytt. Það vill svo til, að hv. allsherjarnefnd Nd. hefir ekki minst á þá ástæðu, sem hjer er færð, í nál. sínu. Hún færir sömu ástæður fyrir rjettmæti hækkunarinnar sem stjórnin í frv. sínu, að peningar hafi fallið í verði og að menn hafi nú miklu meira fje milli handa en áður. Það er satt, að peningar hafa fallið mjög, en hækkun úr 100 kr. upp í 500 kr. virðist vera ærin til þess að vega á móti því verðfalli. Og þó að einstakir menn hafi auðgast á síðari tímum, þá er því miður ekki svo um allan almenning. Ef sektarhámarkið verður sett svo hátt, sem hv. Nd. vill, virðist nefndinni fátæklingum gert rangt til. Vitaskuld hafa þeir, sem geta borgað sektirnar, ekki af því að segja, þó að afplánunarákvæðunum sje ekki breytt, en fyrir fátæklingana, sem ekki hafa efni á að borga sektirnar, er það mikilvægt atriði, því að menn yrðu að sitja í fangelsi mánuðum saman til þess að afplána hæstu sektirnar. Og það eru ekki eingöngu efnaðri mennirnir, sem brjóta lögreglusamþyktirnar, heldur engu síður fátæklingarnir.
Mjer er og venjulega ekki um mikilvæg brot að ræða. Um flest stórvægilegri brot eru ákvæði í sjerstökum lögum, svo sem hegningarlögunum, bifreiðalögunum o. s. frv. Er því síður ástæða til að ákveða þessar sektir háar.
Jeg vil því leggja til, fyrir hönd allsherjarnefndar, að hv. deild haldi fast við fyrri ákvörðun sína og samþykki frv. með þeirri breytingu, sem nefndin leggur til að gerð sje.